Morgunblaðið - 19.10.2022, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2022 11VIÐTAL
Fyrir einu og hálfu ári ákvað
Elvar Orri Hreinsson að söðla um.
Hann kvaddi fjármálageirann og
tók við stöðu framkvæmdastjóra
hjá Verkfærum ehf. sem selur
tæki og búnað til jarðvinnuverk-
taka, framleiðslufyrirtækja, sjávar-
útvegsfyrirtækja o.fl.
Hverjar eru helstu áskoranirnar
í rekstrinum þessi misserin?
Félagið var hrátt þegar ég hóf
störf en bjó yfir miklum tækifær-
um til vaxtar. Til að gera sér mat
úr þeim tækifærum þurfti að bæta
við hæfu og reyndu starfsfólki
hratt og örugglega. Ég var tólfti
starfsmaður félagsins þegar ég hóf
störf um mitt síðasta ár, en nú
starfa 25 hjá félaginu. Tvöföldun,
bæði í veltu og starfsmannafjölda,
á rúmu ári er ansi hröð þróun og
því fylgja talsverðar áskoranir.
Áskorunin felst m.a. í fjármögnun,
en hraður vöxtur felur í sér mikla
kostnaðaraukningu og því þarf að
halda vel á spilunum. Einnig felst
áskorunin í því að slípa saman
hópinn svo að nýir starfsmenn geti
gengið greiðlega til verks og í takt
við þau gildi og markmið sem við
viljum standa fyrir og ná.
Hvernig heldurðu
þekkingu þinni við?
Ég leita mikið í að auka færni
mína og ver miklu af frítíma mín-
um í að viða að mér frekari þekk-
ingu. Þar notast ég að mestu við
hina stafrænu miðla. Ég ver t.d.
miklum tíma í að verða betri í að
sjálfvirknivæða síendurtekin verk-
efni með það að markmiði að spara
tíma. Dagurinn er yfirleitt of stutt-
ur fyrir þau verkefni sem ég vil
koma frá mér og þá skiptir máli að
nýta tímann vel og verja honum
með skilvirkum hætti. Þar get ég
nefnt forrit á borð við Power Au-
tomate og Power Query í Excel.
Að búa yfir færni á þessu sviði
hefur gerbreytt því hvernig ég
nálgast „handavinnu“ í tölvu og
einföld endurtekin verkefni. Þessi
verkefni eru nú unnin í eitt skipti
og svo þegar þau ber aftur að
garði er einfaldlega ýtt á „play“ og
verkefnin svo gott sem vinna sig
sjálf. Tíminn sem ég hef eytt í að
auka færni mína á þessu sviði hef-
ur þegar borgað sig margfalt til
baka. Þekkinguna hef ég sótt
sjálfur á netinu að öllu leyti. Fróð-
leikurinn þar er svo gott sem
endalaus svo ég er með nóg af les-
efni til að bæta þekkingu mína á
þessu sviði enn frekar.
Hver var síðasti fyrirlesturinn
sem þú sóttir?
Ég sit marga fyrirlestra frá
okkar helstu birgjum. Ég hef
þurft að læra mikið á skömmum
tíma. Sem dæmi þá tók Verkfæri
nýverið við umboði fyrir sölu og
þjónustu á tækjum frá þýska stór-
fyrirtækinu Jungheinrich, sem er
leiðandi framleiðandi lyftara og
vöruhúsatækja á heimsvísu.
Undirbúningur fyrir viðtöku um-
boðsins hefur staðið yfir í tölu-
verðan tíma þar sem ég hef þurft
að sitja fundi, námskeið og fyr-
irlestra þar sem farið er yfir þær
gæðakröfur sem gerðar eru til
okkar sem umboðsaðila bæði hvað
viðkemur sölu og þjónustu. Þetta
hefur verið mjög lærdómsríkt ferli
og alveg hreint magnað að sjá hve
faglega er staðið að hlutunum hjá
starfsfólki Jungheinrich.
Hugsarðu vel um líkamann?
Ég hef alltaf lagt ríka áherslu á
hreyfingu enda hefur hreyfing
iðulega leitt til þess að ég borða
hollari mat, einbeiti mér betur
yfir daginn og sef betur. Hreyfing
er því ákveðið grundvallaratriði ef
ég á að vera vel stemmdur í því
sem ég tek mér fyrir hendur
hverju sinni.
Vinnudagurinn hefur lengst á
nýjum starfsvettvangi og hreyfing
minnkað því samhliða. Ég og
markaðsstjóri Verkfæra erum
hins vegar búnir að skora hvor á
annan að rífa okkur í gang. Ég
hef því litlar áhyggjur af þessu,
enda stutt í keppnisskapið og ekki
ætla ég að lúta í lægra haldi fyrir
samstarfsfélaga mínum og tapa
þannig montréttinum á vinnu-
staðnum.
Hvað myndirðu læra
ef þú fengir að bæta við þig
nýrri gráðu?
Sennilega eitthvað tengt for-
ritun. Það er mikil eftirspurn eftir
slíkri færni í dag og möguleik-
arnir fyrir færan forritara enda-
lausir. Ég er með nokkrar hug-
myndir í höfðinu sem ég væri
fljótari að gera mér mat úr ef ég
hefði betri færni í forritun, og
kannski aðeins fleiri klukkustund-
ir í sólarhringnum.
Hvaða kosti og galla sérðu
við rekstrarumhverfið?
Kostirnir eru þeir að það er
mikið um að vera og nóg af verk-
efnum hjá þeim fyrirtækjum sem
við getum flokkað undir mögulega
viðskiptavini okkar. Stjórnvöld
leggja t.d. mikla áherslu á stór-
aukið framboð húsnæðis sem ætti
að leiða til vaxandi umsvifa m.a.
hjá jarðvinnu- og byggingar-
verktökum sem ætti að leiða til
vaxandi eftirspurnar eftir tækjum
og búnaði í tengslum við þeirra
starfsemi. Þar komum við til sög-
unnar með tæki, búnað og þjón-
ustu sem ætti engan að svíkja.
Helsti gallinn er vaxtastigið. Við
erum í miklum vaxtafasa og störf-
um í fjármagnsfrekum bransa. Að
sjálfsögðu kæmi það sér betur
fyrir okkur ef vaxtastigið væri
hóflegra. Að því sögðu þá hefur
maður fullan skilning á samspili
vaxta og verðbólgu og ástæðum
Seðlabankans fyrir hressilegri
hækkun vaxta undanfarið. Von-
andi dregur úr verðbólgu næsta
kastið þannig að Seðlabankinn
geti skipt úr hækkunar- í lækk-
unarferli stýrivaxta sem fyrst.
Lægri stýrivextir stuðla að væn-
legra rekstrarumhverfi fyrir lítil
og meðalstór fyrirtæki, líkt og
okkar.
SVIPMYND Elvar Orri Hreinsson, framkvæmdastjóri Verkfæra ehf.
Vonandi að stýrivextir lækki sem fyrst
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Elvar segir erfiðara fyrir lítil og meðalstór félög að vaxa ef vextir eru háir.
NÁM: Stúdentspróf frá Borgarholtsskóla 2007; BSc. í við-
skiptafræði frá HR 2010; MSc í fjármálum fyrirtækja frá HR 2011;
skiptinám við Anderson School of Business í BNA árið 2011;
löggilding í verðbréfamiðlun 2016.
STÖRF: Áætlunarstjóri hjá Ölgerðinni 2010 til 2011; sérfræð-
ingur á fyrirtækjasviði Íslandsbanka 2012 til 2014, síðar sérfræð-
ingur hjá viðskipta- og þróunarsviði 2014 til 2015, sérfræðingur
hjá greiningardeild 2015 til 2019, formaður ferðaþjónusturáðs
2019 og stjórnarmaður í starfsmannafélagi 2019; sérfræðingur
hjá Samtökum fjármálafyrirtækja (SFF) 2020 til 2021; fram-
kvæmdastjóri Verkfæra ehf. frá 2021.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Í sambúð með Örnu Rún Guðlaugsdóttur
og fyrsta barn væntanlegt í janúar. Stelpa.
HIN HLIÐIN
ATHAFNAMENN
Hagnaður útgáfufélagsins Fulls
tungls ehf. nam í fyrra um 54,9 millj-
ónum króna, en félagið var stofnað í
mars í fyrra. Fullt tungl er í eigu
Bananalýðveldisins, sem er í eigu
Björns Braga Arnarssonar. Félagið
gefur út Kviss-spilin vinsælu sem og
bækur á borð við skipulagsbækur
Sólrúnar Diego og bókina Fjárfest-
ingar sem kom út fyrir síðustu jól.
Tekjur félagsins námu í fyrra um
128 milljónum króna en rekstrar-
gjöld um 59 milljónum króna. Hagn-
aður fyrir skatta var 68,6 milljónir
króna. Þar af nam launakostnaður
og aðkeypt vinna rúmlega 21 milljón
króna.
Morgunblaðið/Ernir
Björn Bragi Arnarsson hefur verið í
ýmsum rekstri á síðustu árum.
Fullt tungl
fyllir vasa
Björns Braga
ELTAK sérhæfir sig
í sölu og þjónustu
á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
hafðu það notalegt
vottun reynsla
ára
ábyrgð
gæði
miðstöðvarofnar
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - sími 577 5177 - ofnasmidja.is
Eigum úrval af
miðstöðvar- og handklæðaofnum