Morgunblaðið - 19.10.2022, Page 12
Skeifan 3 • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is • rafver@rafver.is
K 7 Premium
Smart Control
Háþrýstidæla
VIÐSKIPTA
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Gísli Freyr Valdórsson fréttastjóri, gislifreyr@mbl.is Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
INNHERJI
RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON
Mörgum gestum Smáralindar brá í
brún nú í upphafi vikunnar þegar
viðskiptavinir Ísey Skyrbars gripu í
tómt. Veitingahúsinu hefur verið
lokað í kjölfar þess að endi var bund-
inn á leigusamning milli rekstrar-
aðila staðarins og Hagkaups, sem
hefur forræði á rýminu. Sömu sögu
má segja um samninga fyrirtækj-
anna í Kringlunni og Skeifunni.
Fyrirtækið Skyrboozt ehf., sem er
m.a. í eigu Kristins Sigurjónssonar
og Sigrúnar Magnúsdóttur, hefur
rekið staðina þrjá undir merkjum
Íseyjar skyrbars. Heimildir
ViðskiptaMoggans herma að þau
muni einnig hafa með höndum
rekstur samnefnds staðar í nýju
mathallarrými í Kringlunni. Athygli
vekur að staðirnir sem nú hefur
verið lokað hafa aðeins verið starf-
ræktir frá því á fyrri hluta árs 2020.
Heimildir Morgunblaðsins herma að
það hafi verið ákvörðun Haga,
móðurfélags Hagkaups, að binda
enda á leigusamningana, enda hafi
náið samstarf komist á milli Íseyjar
skyrbars um mitt ár 2020 þegar N1,
dótturfélag Festar, helsta keppi-
nautar Haga, festi kaup á rekstri Ís-
eyjar skyrbars á þjónustustöðvum
sínum. Seljandi var Skyrboozt ehf.
Ekki vitað hvað kemur í staðinn
Ekki liggur fyrir á þessari stundu
hvað Hagkaup ætlast fyrir með veit-
ingarýmið sem losnar, nú þegar Ísey
skyrbar hefur lokað dyrum sínum í
Hagkaupsverslununum þremur.
Ársreikningur Skyrboozt ehf.
fyrir árið 2021 hefur ekki verið
birtur á heimasíðu Skattsins. Fyrir-
tækið hagnaðist hins vegar um 33
milljónir króna á árinu 2020 og vöru-
sala nam 408 milljónum króna.
Skyrbarirnar sem reknir eru í
tengslum við starfsemi N1-
stöðvanna eru orðnir sjö talsins,
fjórir í Reykjavík, einn í Hafnarfirði,
í Borgarnesi og Hveragerði. Þá er
Ísey skyrbar einnig í rekstri í Vest-
mannaeyjum og í mathöllinni á Sel-
fossi, þar sem skyrsafnið er einnig
starfrækt.
ViðskiptaMogginn leitaði til Sig-
ríðar Steinunnar Jónsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Íseyjar skyrbars,
sem á vörumerkið sem staðirnir eru
reknir undir og spurði hvort ákveðið
hefði verið með nýjar staðsetningar í
stað þeirra sem nú hefur verið lokað
í Smáralind og Skeifunni. Segir hún
að það liggi ekki fyrir. Hún nefnir
hins vegar að fyrirtækið sé í sókn,
m.a. í Hollandi þar sem búið er að
opna stað undir merkjum þess og að
stefnan sé sett á að opna fleiri þar í
landi innan skamms.
Ísey skyrbar hverfur úr verslunum Hagkaups í Kringlunni og Skeifunni.
Ísey skyrbar segir
skilið við Hagkaup
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Hagkaup hefur sagt upp
leigusamningi við rekstrar-
aðila Ísey Skyrbars í þrem-
ur verslunum fyrirtækisins.
Ámorgun verður kosið í stjórn
Sýnar í þriðja og líklega síð-
asta sinn á þessu ári. Atburðarásin í
kringum ítrekuð stjórnarkjör hefur
verið óvenjuleg og óheppileg fyrir
félagið en ekki endilega fyrir hluta-
bréfamarkaðinn í heild sinni. Fyrir
félagið hefur þetta þýtt óvissu sem
aldrei er æskileg en út af fyrir sig er
skiljanlegt að nýir stórir hluthafar
vilji hafa meira að segja um hvert
félagið stefnir. Ítrekaðir hluthafa-
fundir og stjórnarkjör eru þó ekki til
marks um að yfirtaka eigi ekki að
vera „óvinveitt“ eins og fram kom í
aðdraganda síðasta hluthafafundar,
þó að vissulega megi deila um
hvernig skilja eigi það hugtak í
þessu sambandi. Hún er í það
minnsta til marks um að nýir hlut-
hafar ætla sér að taka stjórnina,
hvernig svo sem til tekst á morgun.
Aðalatriðið fyrir hluthafa er þó
að á fundinum fáist botn í það
hver eða hverjir stjórna félaginu í
raun því að niðurstaðan í ágúst og
það sem síðar hefur gerst er ekki
endilega sannfærandi fyrir þá sem á
horfa af markaðnum og tæplega til
að auðvelda þeim sem stýra félaginu
dagleg störf.
Ýmislegt er umhugsunarvert í því
sem á undan er gengið, til að
mynda sú staðreynd að tveir stjórn-
armanna, þar með talinn stjórnar-
formaðurinn, voru kosnir með sára-
litlu atkvæðamagni sem byggðist á
kynjakvóta og klækjum lífeyrissjóð-
anna sem vekur spurningar um
hvort þeir hafi haft samráð sín á
milli í stjórnarkjörinu. Þetta dregur
fram þá staðreynd að kynjakvótar
eru ekki mjög lýðræðislegir, en
mikilvægt er að í almenningshluta-
félögum fái atkvæðavægi að ráða.
Stjórnun almenningshlutafélaga
hefur verið umdeilanleg á síð-
ustu árum. Lífeyrissjóðir eiga stóra
hluti en hafa lítið beitt sér þar til ný-
lega í einstaka tilvikum og aðrir hafa
því getað stýrt félögum í krafti lítils
eignarhlutar. Það er út af fyrir sig
ekki heppilegt. Þá er ekki heldur
heppilegt hve lítið er um að raun-
verulegir eigendur eða fulltrúar
þeirra sitji í stjórnum en mikið um
„óháða“ stjórnarmenn.
Átökin um stjórn Sýnar geta haft
jákvæð áhrif á þessi atriði og
orðið til þess að hlutabréfa-
markaðurinn hér verði virkari og
raunverulegir eigendur hafi meira
um eignir sínar að segja. Verði það
niðurstaðan getur þessi undarlega
atburðarás þrátt fyrir allt orðið til
góðs.
Endurtekið efni hjá Sýn