Morgunblaðið - 03.11.2022, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.11.2022, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2022 faxafloahafnir.is Faxaflóahafnir sf. leita að metnaðarfullum og framsýnum einstaklingi til að bætast í hóp starfsmanna á viðskiptasviði • • • • • • • • • Menntunar- og hæfniskröfur Haldgóð reynsla og þekking á bókhaldi og afstemmingum Reynsla af bókhaldskerfum. Reynsla og/eða þekking á Dynamics 365 Business Central kostur Menntun við hæfi, sjálfstæði og góð samskiptahæfni Hæfni til að vinna í hópum Helstu verkefni Tekjuskráning og umsjón með skráningu gagna í fjárhags- og skjalakerfi Afstemming viðskiptamanna og lánadrottna Þátttaka í kostnaðareftirliti Þátttaka í mánaðarlegu uppgjöri Faxaflóahafna Önnur tilfallandi verkefni á viðskiptasviði Viltu vera hluti af góðri liðsheild? Faxaflóahafnir er stærsta höfn landsins þar sem starfa um 75 manns og er umráðasvæði hennar í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi. Fyrirtækið leggur áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum auk þess að vera í vegferð að þróa snjallar og grænar hafnir. Sá einstaklingur sem við leitum að þarf að hafa góða hæfni í mannlegum samskiptum, vera sjálfstæður í starfi, hafa góða tölvukunnáttu og færni í helstu Microsoft forritum. Ef þú ert þessi einstaklingur þá viljum við heyra frá þér. Starfsmaðurinn mun hafa aðstöðu á skrifstofu Faxaflóahafna að Tryggvagötu 17 í Reykjavík. Við hvetjum hæfileikaríkt og metnaðarfullt fólk til að sækja um starfið, óháð kyni, en fyrirtækið hefur skýra jafnréttisstefnu og vill auka fjölbreytileika í starfsliði sínu. Nánari upplýsingar um starfið gefur Ragnheiður Ragnarsdóttir, deildarstjóri fjármála ragnheidur@faxafloahafnir.is Umsókn, ásamt ferilskrá sendist til Faxaflóahafna sf., á netfangið olafur@faxafloahafnir.is, eigi síðar en sunnudaginn 13. nóvember n.k. Starfsmaður á viðskiptasviði Við leiðum fólk saman hagvangur.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.