Morgunblaðið - 03.11.2022, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2022 5
Fyrirtækið rekur nú rúmlega 200 hleðslustöðvar um allt land. ON rekur Jarðhitagarð við
Hellisheiðarvirkjun og nýsköpunarfyrirtæki hafa sprottið upp í samstarfi við fyrirtækið, t.d.
Carbfix, Vaxa og Orca. Orka náttúrunnar beitir sér fyrir fræðslu um orkuskipti, auðlindir og
orkumál. Gildi Orku náttúrunnar eru framsýni, hagsýni og heiðarleiki.
Viltu leiða fyrirtæki í fararbroddi
í loftslagsmálum og orkuskiptum?
Orka náttúrunnar leitar að leiðtoga sem býr yfir færni og reynslu til að leiða hóp
úrvals fagfólks með brennandi áhuga á umhverfisvænum lausnum, ábyrgri nýtingu
náttúruauðlinda og er í fararbroddi í loftslagsmálum og orkuskiptum.
Orka náttúrunnar framleiðir og selur rafmagn frá Nesjavallavirkjun, Hellisheiðarvirkjun og Andakílsárvirkjun. Frá
Nesjavalla- og Hellisheiðarvirkjunum kemur líka um helmingurinn af heita vatninu í hitaveituna á höfuðborgarsvæðinu.
Við sölu heits vatns og rafmagns ermarkmiðið að gæta auðlinda landsins og viðskiptavinameð sjálfbærni að leiðarljósi.
Við styðjum við nýsköpun, sýnum ábyrgð í loftslagsmálum og nýtingu auðlindarinnar og flýtum fyrir orkuskiptum með
minna vistspori, samfélaginu öllu til heilla.
Orka náttúrunnar er hluti af samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur. Heildareignir ON nema 148milljörðum króna, velta er um
22 milljarðar og eigið fé um 79 milljarðar.
Nánari upplýsingar um Orku náttúrunnar má finna á on.is, en þar er einnig sótt um starfið.
Nánari upplýsingar um starfið veita:
Ellen Ýr Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastýra mannauðs og menningar OR; ellenyr@or.is,
Hilmar G. Hjaltason; hilmar@vinnvinn.is og Auður Bjarnadóttir; audur@vinnvinn.is.
Umsóknarfrestur er til og með 13. nóvember 2022.