Morgunblaðið - 26.08.2022, Page 4

Morgunblaðið - 26.08.2022, Page 4
Jarðlitir og pasteltónar Eftir litríkt sumar koma jarðlitir og ljósir pasteltónar sterkt inn í bland við ein- staka skærari liti og mynstur. Einfaldleiki virðist vera allsráðandi í hönnun íþrótta- fatnaðar ef marka má nýjustu línur íþróttarisanna. Pastellitir, sérstaklega blár, grænn og fjólublár, virðast einnig koma sterkir inn í haustið. Sett í stíl Það hefur verið gríðarlega vinsælt að klæðast íþróttatopp og buxum í stíl er- lendis, en þessi tíska virðist vera á hraðri leið hingað á klakann. Í sumar snerist allt um skæra liti eins og bleikan, appelsínugulan og bláan, en með haustinu virð- ast brúnir, rauðir og grænir tónar koma sterkt inn í settunum. Rifflaðir íþróttatoppar Þegar velja á íþróttatopp þurfa þægindin alltaf að vera í fyrirrúmi. Rifflað efni hefur verið afar vinsælt í íþróttatoppum, en það hefur þann eiginleika að veita góðan stuðning án þess að vera of stíft. Víðir bolir Víðir bolir, hvort sem er lang- erma eða stutterma, virðast einnig ætla að vera vinsælir í haust, enda bæði þægilegir og smart. Það er nauðsynlegt að eiga hið minnsta einn slíkan til að henda yfir sig á kaldari dög- um. Buxur í lit Þótt svartar íþróttabuxur séu klass- ískar og innan þægindarammans virðast buxur í öðrum litum vera að koma sterkt inn, og þá helst í pastelfjólubláu, her- mannagrænu eða rauðu. Það er hollt að fara út fyrir þægindarammann annað slagið og tilvalið að bæta smá lit í fataskáp- inn í haust. Buxurnar fást í H verslun og kosta 8.995 kr. Jakkinn fæst í Sportvörum og kostar 16.990 kr. Eftir sumarmánuðina er fátt betra en að koma sér í góða rútínu á ný. Með haustinu virðist aukinn metn- aður færast í landann, ekki síður hvað viðkemur hreyfingu. Eins og flestum er kunnugt er hreyfing ein af grunnstoðum heilsu okkar og því afar mikil- vægt að fólk finni hreyfingu sem veitir því ánægju, hvort sem hún finnst í hóptímum, líkamsræktarsal, sundlauginni eða úti í náttúrunni. Irja Gröndal | irja@mbl.is Bolurinn fæst í Mfitness og kostar 7.490 kr. Toppurinn fæst í Wodbúð og kostar 5.990 kr. Samfesting- urinn fæst í Ethic og kostar 15.900 kr. Settið fæst í Wodbúð. Bux- urnar kosta 9.500 kr. og toppurinn kostar 5.900 kr. Jakkinn fæst í Sportvörum og kostar 15.900 kr. 4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2022 Lækjargata 34a / 220 Hafnarfjörður - Við erum hér til að aðstoða þig! - Stoðtækni er með samning við Sjúkratryggingar Íslands og nú einnig varðandi sölu á ökklaspelkum og bjóðum við með stolti uppá 5 mismunandi gerðir. Sérhæfum okkur í göngugreiningum, sérsmíðuðum skóm, innleggjasmíði og skóbreytingum Skóviðgerðir - Komdu með skóna þína í yfirhalningu Tímapantanir í síma 533 1314 Göngugreiningar • Sérsmíðaðir skór • Spelkur Hlýrabolurinn fæst hjá Wod- búð og kostar 5.790 kr. Hlaupaskórnir fást hjá Sport- vörum og kosta 24.990 kr. Tryllt íþróttaföt fyrir veturinn Jakkinn fæst hjá Sportvör- um og kostar 36.990 kr. Stutterma- bolurinn fæst hjá H Verslun og kostar 5.495 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.