Morgunblaðið - 26.08.2022, Blaðsíða 17
FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2022 MORGUNBLAÐIÐ 17
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
Vörur sem hjálpa til við að auka liðleika og draga
úr bólgum og verkjum.
Nuddrúllur | Nuddboltar | Teygjur o.fl.
skóna. Ég þurfti að fara úr þeim á milli ferða en gerði það
þannig að enginn gæti séð að eitthvað væri að – faldi mig á
bak við einhvers staðar. Eitt sinn leið yfir mig í brekkunni á
æfingu, og í annað skipti tognaði ég og var sett í gifs en ég
komst ekki í myndatöku vegna æfinga og var talið að ég
væri handleggsbrotin. Samt fór ég í æfingabúðir og var á
sama tíma að læra fyrir lokapróf.“
Merkilegt nokk tókst Söndru Líf að klára námið og út-
skrifaðist af sjúkraliðabraut, ásamt stúdentsprófi norska
menntaskólans, með meðaleinkunnina 9,8. Hún flutti aftur
til Íslands með fjölskyldu sinni og byrjaði strax að vinna í
100% starfi. „Eftir þriggja ára búsetu á Íslandi var ég búin
að ganga á tómum tanki í sjö eða átta ár, og farin að finna
miklu meira fyrir einkennunum. Svo
sagði líkaminn endanlega stopp í jan-
úar síðastliðnum.
Mér fannst mér versna eftir flutn-
ingana til Íslands. Áður hafði ég æft
að jafnaði einu sinni eða tvisvar á dag
en gat allt í einu varla lengur reynt á
líkamann án þess að þurfa að hvíla
mig í tvær vikur á eftir. Ég svaf ótrú-
lega mikið og var örmagna af þreytu.
Í janúar fæ ég taugaáfall í tvígang,
með stuttu millibili. Ég hafði áður
fengið kvíðaköst en þetta var eitthvað
miklu meira, og ég lenti að lokum á
spítala af því að meltingin, stoðkerfið
og taugakerfið hrundu.“
Líkaminn þarf að ráða ferðinni
Bataferlið hefur verið langt og strembið og er Sandra Líf
þakklát fyrir hversu vel læknirinn hennar hefur haldið utan
um hana. „Á stofunni bugaði álagið mig loksins og ég brotn-
aði niður. Ég man að læknirinn sagði við mig að ég fengi
ekki að fara heim öðruvísi en að tryggt væri að ég tæki mér
að minnsta kosti tveggja mánaða veikindaleyfi frá öllum
störfum, en leyfið varð á endanum sex mánuðir.“
Loksins gaf Sandra Líf sér tíma til að hvílast, en hún var
svo örþreytt á líkama á sál að fyrst um sinn gat hún varla
bifast úr stað. „Ég man hvað mér fannst mér ég mikill aum-
ingi, og löt, að geta ekki æft og ekki unnið. Ég var lengi að
fást við minn eigin haus um hvað hefði gerst, og átta mig á
að nú þyrfti ég að finna nýja leið fyrir sjálfa mig.“
Smám saman kom þrótturinn til baka og hefur Sandra Líf
m.a. fengið aðstoð markþjálfa sem hjálpar henni að skilja
sjálfa sig og vinna að áframhaldandi uppbyggingu. Hún
byrjaði líka að stunda jóga, stunda æfingar byggðar á kerfi
Wims Hofs og vinna í hálfu starfi á meðan hún byggir sig
upp.
Sandra Líf áttaði sig líka á að hún mætti ekki láta metn-
aðinn hlaupa með sig í gönur í bataferlinu. Líkaminn verður
að ráða ferðinni og það verður margra ára verkefni að ná
aftur jafnvægi: „Ég þarf að gæta þess að fara rólega af stað,
og þegar ég t.d. geri Wim Hof-æfingar er ég ekki að keppast
við að halda sem lengst í mér andanum eða vera eins lengi
og ég mögulega get í ísbaði, og í jógatímum er ég ekki að
reyna að komast í erfiðustu stellingarnar þó svo að ein-
hverjir aðrir í tímanum geti það. Ég
þarf að passa mig á því að leyfa sjálfri
mér að vera einfaldlega manneskja,“
segir hún. „Ég er búin að keyra á
tómum tanki í mörg ár og það mun
taka jafnlangan tíma fyrir líkamann
að safna aftur orku.“
Ofurkraftur sem þarf að beisla
Ekki er þar með sagt að Sandra Líf
ætli að leggja metnaðinn á hilluna.
Hún segist hafa áttað sig á, með tíð
og tíma, að það sé nokkurs konar of-
urkraftur að geta lagt eins hart að sér
og hún gerði. „Eftir að ég lenti á vegg
bölvaði ég því að vera eins og ég er –
að ég geti ekki verið venjuleg og sett
axlirnar aðeis niður – en núna lít ég á þetta sem minn ofur-
kraft og ákveðna guðsgjöf að vera með svona haus eins og
ég. Mig langar að nota þennan ofurkraft, en bara í betra
jafnvægi. Ég viðurkenni að ég er hrædd alla daga við að
falla aftur í sama farið en ég veit að fólkið í kringum mig
mun hjálpa mér að hægja ferðina ef ég verð of kappsöm.“
Langar Söndru Líf til að nota eigin reynslu til að hjálpa
öðrum og hún hefur verið dugleg að segja sögu sína á sam-
félagsmiðlum, en hana má finna á Instagram undir notanda-
nafninu „Sandralifasmunds“. „Fólk má endilega heyra í mér
og ég vil gjarnan hjálpa, og langar mig sérstaklega til að lið-
sinna þeim sem eru undir miklu álagi í íþróttastarfi. Eftir að
ég lenti í þessu öllu hefur áhugi minn færst yfir á andlega
heilsu og hvernig líkaminn og hausinn vinna saman, og ég
stefni núna á að læra íþróttasálfræði.“Ljósmynd/Guðmundur Karl Sigurd
Það kom ekki til greina að
gera eitthvað eins og að
sitja í rólegheitum og
horfa á sjónvarpið eða
eignast vinkonur, hvað þá
að hitta stráka. Ég fór ekki
einu sinni með fjölskyldu
minni í frí því ég varð að
halda áfram að vinna, æfa
og læra og ætlaði mér að
komast ógeðslega langt.
Sandra Líf vill nota eigin
reynslu til að hjálpa öðrum
og hún stefnir núna á að
læra íþróttasálfræði.