Morgunblaðið - 26.08.2022, Page 21

Morgunblaðið - 26.08.2022, Page 21
H afi maður viðað að sér þekkingu á blóðsykri og hvaða matvæli hreyfa hvað mest við blóðsykrinum er ekki flókið að sjá að hefðbundnir þeytingar eru síður en svo góðir fyrir blóðsykurinn. Í stað þess að einblína á ferska ávexti er betra að einblína á að koma sem mestu próteini og hollri fitu í þeytinginn. Próteinið getum við fengið úr skyri eða grískri jógúrt eða bara sett nokkrar skeiðar af góðu próteindufti í þeyting- inn. Avocado er líka hið fullkomna innihalds- efni í þeyting, stútfullt af hollri fitu. Einnig er gott að nota chia-fræ til að bæta við próteini, eins og í þessum þeytingi. Í þessum þeytingi fáum við fituna úr kókosmjólk, en best er að nota eins feita kókosmjólk og þú getur. Blóðsykursvænn þeytingur 280 ml af feitri kókosmjólk 2 matskeiðar af chia-fræjum Væn lúka af spínati 1-2 skeiðar af próteindufti með vanillubragði 2 ísmolar Öllu blandað saman í kraftmiklum blandara. Best er að skella þeytingnum sem fyrst í sig. Blóðsykursvænn þeytingur Grænn þeytingur með fitu og próteini hreyfir ekki við blóðsykrinum. Í mínu starfi er til dæmis ótrúlega hátt hlutfall inn- lagna á gjörgæsludeild tengt áfengisneyslu og það hjá öllum aldurshópum. Áfengi veldur alvarlegum slysum og alvarlegum bylt- um hjá eldra fólki. www.kaelitaekni.is Byrjaðu daginn með Vitamix blandarar eiga sér fá jafningja Fjárfestu í sjálfum þér hópur útskrifast ekki með neina sérstaka þekk- ingu á því hvað er heilsusamlegt. En svo lengi lærir sem lifir og í starfinu fær maður einnig fljótlega á tilfinninguna hvað er heilsusamlegt og hvað ekki. Með árunum hefur áhuginn á þessu einnig aukist og flestir heilbirgðisstarfs- menn reyna líklega að tileinka sér nýjustu rannsóknir innan síns fags og þá einnig hvað hægt er að gera til að halda í góða heilsu,“ segir Þóroddur. Hann bendir á að heilsuiðnaðurinn og markaðurinn honum tengdum er ógnarstór og fjárhagslegir hagsmunir miklir. Af þessu geti stafað ákveðin ógn og mikið til af rann- sóknum innan þessa sviðs þar sem ákveðnar niðurstöður eru dregnar sem fara svo í umfjöll- un og oft dregnar frekari ályktanir sem í sum- um tilfellum eru of viðamiklar. „Í dag held ég að það sé hægt að styðja óteljandi mismunandi skoðanir um heilbrigði með einhverjum rann- sóknum. En flestar þeirra eru stakar, litlar rannsóknir og ein slík rannsókn sannar ekkert. Flestir læknar búa yfir þekkingu til að rýna í rannsóknir og eru því sjaldan höfundar eða vitnað í þá í fyrirsögnum um heilsu. Til dæmis hafa rannsóknir ekki getað með óyggjandi hætti bent á neitt ákveðið mataræði umfram annað sem bætir heilsu. Í mínum huga eru eft- irfarandi atriði staðreyndir sem studdar eru stórum endurteknum rannsóknum sem falla einnig vel inn í það sem ég hef séð í starfi mínu sem svæfinga- og gjörgæslulæknir. Hreyfing bætir heilsu. Reykingar, offita og langvarandi stress er slæmt fyrir heilsuna. Þá er áfengi slæmt fyrir heilsuna og eru ekki til nein lægri öryggismörk þar sem segja má að áfengi sé ekki skaðlegt heilsu.“ Hann segir þetta vissulega engar nýjar frétt- ir nema kannski hvað varðar áfengisneysluna, því sú mýta sé lífseig að eitt og eitt rauðvínsglas sé jákvætt fyrir heilsuna. „Í mínu starfi er til dæmis ótrúlega stórt hlutfall innlagna á gjör- gæsludeild tengt áfengisneyslu og það hjá öll- um aldurshópum. Áfengi veldur alvarlegum slysum og alvarlegum byltum hjá eldra fólki. Langvarandi áfengisneysla veldur alvarlegum langvinnum sjúkdómum eins og til dæmis lifr- arbilun, heilabilun og eykur líkur á krabba- meinum. Aukin tíðni er um alvarlegar sýkingar sem þurfa meðferð á gjörgæslu hjá ein- staklingum sem drekka áfengi. Heilbrigðis- kerfið í Svíþjóð ráðleggur til dæmis algjört bindindi 4 vikum fyrir og 4 vikum eftir allar að- gerðir til að draga úr líkum á aukaverkunum. Í mínum huga er það jákvætt fyrir heilsuna sem bætir líf okkar í gegnum árin en bætir ekki bara árum við lífið og hvað það er verður nú hver og einn að finna út úr sjálfur á endanum.“ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2022 MORGUNBLAÐIÐ 21

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.