Morgunblaðið - 26.08.2022, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 26.08.2022, Qupperneq 22
Jóga og endurnæring á spænskri strönd Hvernig hljómar það að byrja daginn með jóga á ströndinni við sólarupprás og læra að- ferðir til að sporna við steitu í daglega lífinu? Edith Gunnarsdóttir, sem er menntuð í sál- fræði, heilbrigðisvísindum og jógafræðum, ætlar meðal annars að bjóða upp á þetta í vikuferð til Albir á Spáni í september á vegum Úrvals-Útsýnar. Ferðin hentar vel fyrir þá sem vilja endurnæra líkama og sál þar sem áhersla ferðarinnar verður að hlúa að andlegri og líkamlegri vellíðan þátttakenda, m.a. með jóga, hugleiðslu, djúpslökun og gönguferð. Draumar, jóga og aukin gleði Í október bjóða Heimsferðir upp á endur- nærandi sjálfstyrkingar- og og lífsstíls- námskeið á Tenerife. Á dagskránni er jóga, núvitund og námskeið þar sem unnið er með drauma og innri hindranir. Katrín Ósk Garð- arsdóttir kennir námskeiðið Draumar og drekar en þar leggur hún meðal annars áherslu á að þátttakendur læri að stýra huga sínum og setja athyglina á það sem þeir vilja út frá sér sjálfum. Þá er innri ótti skoðaður en hann stýrir hugsun og hegðun ómeðvitað og hefur þannig áhrif á líf fólks og líðan. Íris Más- dóttir mun leiða jóga og hugleiðslu sem miðar að því að auka sjálfstraust, minnka streitu og auka gleði og vellíðan. Einnig verður unnið að því að styrkja jákvæðni og gleði með afrískum dansi. Hamingja og heilsa í fyrsta sæti í Tossa de Mar Fagurkerinn og lífsstílsleiðbeinand- inn Bjargey Ingólfsdóttir mun halda uppbyggjandi sjálfstyrk- ingarnámskeið fyrir konur í samstarfi við Visitor í september í Tossa del Mar á Spáni. Nám- skeiðið nefnist leiðin að hjartanu og er mark- mið þess að þátttak- endur upplifi tengingu hugar og hjarta í end- urnærandi umhverfi og hafi tækifæri til að hvíl- ast frá daglegu amstri hversdagsins. Ferðin og námskeiðið er fyrir allar konur sem vilja setja hamingju og heilsu fyrsta sæti í sínu lífi. Fjarvinna og góð geðheilsa Úrval-Útsýn býður upp á átta daga ferð til höfuðborgar Tenerife, Santa Cruz de Tenerife í september þar sem fólki gefst tækifæri á að blanda saman fríi, fjarvinnu og heilsuefl- ingu. Þátttakendum í þessari ferð býðst meðal annars að stunda jóga á morgnana og að taka þátt í hugleiðslumorgun- stund og teygjum einu sinni í viku. Þessa sömu morgna býðst gestum að taka þátt í námskeiðum með Sigur- steini Mássyni þar sem farið er yfir vinnu og velferð með áherslu á góða geðheilsu, fjarvinnu sem svar við kulnun og vinnukvíða, vinnuskipulag, frítíma í fjarvinnu, reglusemi og heilsusamlega rútínu. Líkamsæfingar og pólskt dekur Líkamsræktarkennarinn og einkaþjálfarinn Gyða Eiríksdóttir er fararstjóri í heilsu- og æfingaferð til Póllands í lok september á veg- um Vita. Markmið ferðarinnar er að gefa þátt- takendum tíma fyrir eigin heilsu og kynnast heilsumeðferðum sem eru vinsælar í Póllandi á borð við súrefnismeðferðir. Gist er á hóteli í gömlum kastala með fimm stjörnu heilsulind. Boðið er upp á skipulagðar æfingar daglega þar sem unnið er með pilates-bolta, eigin lík- amsþyngd og mikil áhersla lögð djúpteygjur. Þá er hægt að fara í tennis og leigja reiðhjól. Uppbygging og zumba Ferðaskrifstofan Skotganga býður upp á nokkrar ferðir í haust þar sem hugað er að bæði líkama og sál. Í október er á dagskrá ferð fyrir konur til Albir á Spáni þar sem zumba, jóga og ganga er á dagskrá. Í lok október og í nóvember eru svo tvær ferðir í boði til Tene- rife þar sem sjálfsrækt, uppbygging og göng- ur í fallegu landslagi eru í forgrunni. Hugað að heilsunni á nýjum slóðum Fjölmargar áhugaverðar ferð- ir eru í boði í haust þar sem markmiðið er að endurnæra líkama og sál með hug- leiðslu, slökun og lærdómi á nýjum slóðum. Hér er dæmi um nokkrar af þeim heilsu- ferðum sem íslensku ferða- skrifstofunnar eru að bjóða upp á í haust. Snæfríður Ingadóttir | snaeja@gmail.com Hvernig hljómar það að byrja daginnmeð jóga á ströndinni við sólarupprás og læra aðferðir til að sporna við steitu í daglega lífinu? Það er spennandi möguleiki að samtvinna heilsu og ferðalög. Hugaðu að heilsunni á sama tíma og þú heimsækir nýja staði. Sigursteinn Más- son kennir nám- skeið um vinnu og velferð. Morgunblaðið/Hari Morgunblaðið/Hari Auður Bjarna dóttir (t.v) og Edith Gunn- arsdóttir en hún fer fyrir jógaferð til Albír á Spáni. 22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2022

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.