Morgunblaðið - 23.09.2022, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 23.09.2022, Qupperneq 10
H ugmyndafræði Fléttu kemur bersýnilega í ljós á heimili Birtu en hún á mikið af gömlum mun- um. Birta og Hrefna Sigurðar- dóttir stofnuðu hönnunarstúdíóið árið 2018. Þær leggja áherslu á nýtingu um- framefna, staðbundna framleiðslu og sjálf- bærni. „Vinnan okkar felst bæði í að skapa og framleiða okkar eigin vörulínur, sem og að hanna fyrir önnur fyrirtæki í hönn- unarbransanum,“ segir Birta. „Stofan er griðastaðurinn á heimilinu. Þar hef ég komið fyrir uppáhaldshlutunum mínum, eins og nokkrum munum frá Fléttu. Þar er hægt að nefna Mínútustjakana, Trophy-ljósin og Den- im on denim on denim-gallamottuna. Stofan er hálfgert tilraunarými þar sem ég prufa hina og þessa hluti frá okkur í Fléttu. Svo finnst mér yndislegt að eiga handverk frá fjölskyldu og vinum, eins og kistuna frá föðurafa mínum og rýjamottu frá móðuraf- anum. Einnig finnst mér mjög gaman að stilla upp óvæntum og skemmtilegum hlutum sem ég hef fundið á ýmsum flóa- og nytja- mörkuðum. Stofan setur tóninn fyrir heimilið en það er nú ekki svo stórt, þannig að stofan er stærsti og mest skreytti hlutinn. Flest á heimilinu er keypt notað og ég hef gaman af því að leita uppi gullmola á sölusíðum og mörkuðum. Þessi endurnýting er líka kjarninn í Fléttu, við leitumst við að gefa gömlum hlut- um nýtt hlutverk með endurhönnun.“ Áttu þér uppáhaldshlut í stofunni? „Þetta er stöðugt að breytast en í augna- blikinu er það tekkskenkur frá Valbjörk á Akureyri, sem ég keypti í vor. Hann er frá sjöunda áratugnum og setur mikinn svip á stofuna,“ segir Birta. „Ég kaupi nánast allt notað, hvort sem það eru húsgögn eða fatn- aður. Sama hugarfar ræður ríkjum hjá Fléttu þar sem við nýtum gamalt hráefni til að búa til nýja vörur. Annar samnefnari sem birtist bæði á heimilinu og í hönnun Fléttu er leikgleði. Við höfum gaman af hlutum sem eru með húmor og skilja eitthvað eftir sig.“ Birtu finnst gott að slaka á heima og kúpla sig út. „Vinnan kemur þó stundum með heim og þá er gott að sitja í stofunni og setja á góða tónlist og dýfa sér í verkefnin,“ segir Birta sem hefur í nógu að snúast þessa stundina. Í lok september verður opnuð sýn- ingin Þæfingur í sýningarrými Epal þar sem sýnd verða verk unnin í samstarfi við textíl- hönnuðinn Ýrúrarí. Verkin eru unnin úr ull- arafgöngum og afskurðum á nálarþæfingavél frá íslenskum ullariðnaði. Morgunblaðið/Árni Sæberg Gefur gömlum hlutumnýtt hlutverk Birta Rós Brynjólfsdóttir vöruhönnuður hjá hönn- unarstúdíóinu Fléttu á lit- ríka og skemmtilega stofu. Stíllinn endurspeglast í hönnun hennar. Guðrún Selma Sigurjónsdóttir | gudrunselma@mbl.is Birta Rós Brynjólfsdóttir kaupir helst allt notað, bæði húsgögn og fatnað. Það fer vel um alla í þessari litríku stofu. Trophy-ljósin setja svip sinn á rýmið. Stofan er hálfgert til- raunarými þar sem ég prufa hina og þessa hluti frá okkur í Fléttu. Svo finnst mér yndislegt að eiga handverk frá fjöl- skyldu og vinum, eins og kistuna frá föður- afa mínum og rýja- mottu frá móður- afanum. 10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2022

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.