Morgunblaðið - 23.09.2022, Page 14
H
ugrún er uppalin í sveit og kann því
vel við sig í rólegu umhverfinu á Sel-
fossi, enda sækir hún mikinn inn-
blástur í náttúruna þegar hún inn-
réttar heimili sitt. Líf Hugrúnar tók
U-beygju fyrir nokkrum árum þegar hún greindist
með sjúkdóm, en í kjölfarið fór hún að leita mikið í
listina sem hún segir hafa veitt sér mikla hugarró.
Hugrún málar undurfögur málverk sem öll tengjast
náttúrunni á einhvern hátt og hefur hlotið frábærar
viðtökur við list sinni.
Stórir gluggar og björt rými
„Við búum í 154 fermetra parhúsi með bílskúr í
tiltölulega nýju hverfi hér á Selfossi sem okkur líð-
ur afar vel í. Þetta er okkar fyrsta eign, en áður
höfðum við verið að leigja. Við fluttum inn í nýja
húsnæðið okkar í apríl 2021 eftir að hafa unnið í því
í nokkra mánuði. Við gáfum okkur góðan tíma til
þess að velja nákvæmlega það sem okkur langaði í
varðandi innréttingar, gólfefni og fleira til að ná að
fanga stemninguna sem við vorum að leita eftir,“
útskýrir Hugrún.
„Það sem heillaði mig hvað mest við íbúðina er
hvað hún ert björt. Það eru margir stórir gluggar í
alrýminu og þar sem við keyptum hana fokhelda
áttum við kost á að breyta teikningunni og laga
íbúðina að okkur,“ segir Hugrún. Á upprunalegu
teikningunni voru þrjú svefnherbergi í íbúðinni, en
Hugrún og Sigurður breyttu einu þeirra í sjón-
varpshol og eru þau hæstánægð með ákvörðunina.
„Það sem er líka einstaklega skemmtilegt við
þessa íbúð er að æskuvinkona mína og maki hennar
keyptu hinn helminginn á móti okkur, svo draumur
okkar vinkvenna um að búa hlið við hlið rættist í
orðsins fyllstu merkingu,“ segir Hugrún.
Framkvæmdir öll kvöld og allar helgar
Eftir kaupin tóku við miklar framkvæmdir, en
Sigurður og pabbi Hugrúnar eru báðir húsasmiðir
og voru þeir önnum kafnir allar helgar og öll kvöld
eftir vinnu að græja og gera í íbúðinni. „Fram-
kvæmdunum fylgdi sannarlega töluvert álag í bland
við mikla tilhlökkun og gleði. Við erum mjög ánægð
með útkomuna og það má segja að framkvæmd-
unum sé því lokið í bili,“ segir Hugrún.
Þegar kom að því að innrétta heimilið sótti Hug-
rún mikinn innblástur í Pinterest, en þar að auki
segir hún marga fallega Instagramreikninga, meðal
annars íslenska, hafa veitt sér mikinn innblástur
ásamt heimilis- og hönnunartímaritum.
Vildi skapa hlýlegt andrúmsloft
Á heimili Hugrúnar og Sigurðar er stemningin
afar notaleg, en mikill glæsibragur er yfir íbúðinni
þar sem hlýir litir eru áberandi. „Eftir að hafa verið
að vinna meira með kalda tóna, mest grátt og svart,
í seinustu íbúð fann ég að mig langaði að skapa
hlýrri stemningu í þetta sinn. Það er mikið um hlýja
jarðtóna heima og mikið um brún og drapplituð
húsgögn í bland við eik,“ útskýrir Hugrún.
„Eikin finnst mér virkilega falleg í bland við
mjúkar línur og form í húsgögnum og innanhúss-
munum. Mér finnst líka gaman að blanda minni
hlutum úr til dæmis marmara inn því þá skapast
skemmtilegar andstæður í efnisvali,“ segir Hugrún.
Uppáhaldsrými Hugrúnar eru stofan og eldhúsið
sem eru samliggjandi í aðalrými íbúðarinnar.
„Rýmið er allt svo opið og bjart, sem ég er mjög
hrifin af. Svo auðvitað sameinumst við í eldhúsinu
og eigum notalegar stundir þar saman við kvöld-
verðinn,“ útskýrir Hugrún.
Vill leyfa hlutunum að njóta sín
Hugrún hefur mikla ástríðu fyrir hönnun, en það
sést vel á heimili hennar þar sem hún sækir frekar í
færri og vandaðri hluti. „Ég safna mér oft lengur
Ljósmynd/Hugrún Hekla
Y-stólarnir eftir Hans J. Wegner
passa vel við borðið.
Listakonan Hugrún Hekla Hannesdóttir er mikill fagur-
keri, en hún festi kaup á sinni fyrstu eign á Selfossi árið
2020 ásamt kærasta sínum, Sigurði Maríasi Sigurðssyni,
sem þau hafa síðan innréttað á sérlega fallegan máta.
Irja Gröndal | Irja@mbl.is
5 SJÁ SÍÐU 16
Hugrún
Hekla á fal-
legt heimili
á Selfossi.
Málverkið er eftir
Hugrúnu Heklu.
Ljósið frá Astep kemur
vel út yfir borðinu.
Velur færri og vand-
aðri hluti á heimilið
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2022