Morgunblaðið - 23.09.2022, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2022
fyrir því sem mig virkilega langar í. Uppáhalds-
húsgögnin mín eru Y-eldhússtólarnir mínir, sem
eru klassísk hönnun eftir Hans J. Wegner, og nýj-
asta mublan mín, Little Big Chair frá NORR11,“
segir Hugrún.
Aðspurð lýsir Hugrún stílnum sínum sem skand-
inavískum í bland við módern. „Ég vil ekki hafa of
mikið af hlutum í kringum mig heldur frekar leyfa
þeim sem eru að njóta sín. Svo er alltaf hægt að
poppa rýmið upp, til dæmis með afskornum blóm-
um,“ segir Hugrún.
Veikindin gáfu sköpunargleðinni tíma og pláss
Hugrún hefur alla tíð verið skapandi, en með
málverkum sínum fær hún mikla útrás fyrir sköp-
unargleðina. „Ég held að áhugi minn á stíliseringu,
hönnun og ljósmyndun sé einmitt hluti af því, að
skapa. Í náinni framtíð þætti mér gaman að sækja
námskeið sem efla mig frekar sem listamann, en
þar að auki er alltaf gaman að takast á við sínar eig-
in áskoranir tengdar þessu,“ segir Hugrún.
Aðspurð segir Hugrún heimili sitt endurspegla
listaverk sín á ákveðinn hátt. „Verkin mín eru öll í
jarðlitum og eru í raun aðeins í takt við heimilið mitt
þar sem mikil ró ríkir yfir þeim og hafa margir talað
um þau áhrif, ásamt ákveðinni dulúð. Innblásturinn
er fenginn úr íslenskri náttúru og veðurfari ásamt
öllum þeim smáatriðum sem í náttúrunni finnast. Í
verkunum mínum er það meðal annars gróf áferð
þeirra sem leika stóran part í því að ná fram nátt-
úrunni og tilfinningunni um grýtt landslag,“ segir
Hugrún.
„Það sem ég sé jákvætt út frá veikindum mínum
er það að þau gáfu mér tíma og pláss til að skapa og
uppgötva þennan vettvang sem hefur gefið mér svo
margt gott. Planið var alltaf að búa mér til aðstöðu í
bílskúrnum heima, en eftir að hafa haft aðsetur í
sveitinni hjá mömmu og pabba finnst mér erfitt að
flytja mig um set. Þar eru tveir góðir gluggar sem
hleypa mikilli birtu inn og svo er sérstaklega fallegt
útsýni með bæði hestum og kindum út um
gluggana,“ útskýrir Hugrún.
Hugrún hefur hlotið frábærar viðtökur við list
sinni og segir allt í kringum það hafa orðið mun
stærra en hana hafi nokkurn tímann órað fyrir.
Hún segir það afar hvetjandi fyrir sig sem listakonu
og horfir björtum augum til framtíðar. „Síðar meir
væri gaman að koma sér upp almennilegri vinnu-
stofu og ég stefni að því,“ segir hún. Ljósmynd/Hugrún Hekla
Viðurinn gefur heim-
ilinu mikla hlýju.
Stóllinn Little
Big Chair
kemur vel út
á heimilinu.
Það fer vel um hundinn
Nóel á mjúkri mottunni.
Baðherbergið
er eins og
heilsulind.
Spegillinn er frá
Ferm Living.
Hugrún leyfir einfald-
leikanum að njóta sín.