Morgunblaðið - 23.09.2022, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 23.09.2022, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2022 Í þessu verkefni var ég bæði að verkstýra framkvæmdum og með fullt vald yfir að kaupa inn ný húsgögn og smáhluti,“ segir Edda um þátt sinn í verkefninu en þetta var ekki í fyrsta skipti sem hún vann með eiganda íbúðarinnar. „Ég veit eftir hverju hann var að leita í þess- ari íbúð, ekki of mikið af hlutum en að hver hlutur væri vel valinn og að auðvelt væri að umgangast íbúðina og það væri viss upplifun að koma í hana. Svo vinn ég auðvitað innan þess fjárhagslega ramma sem settur er hverju sinni.“ Samspil lita og umhverfis Hvernig var að vinna með þetta fallega út- sýni? „Það er alltaf gaman að vinna þar sem er fal- legt útsýni og það er kannski það fyrsta sem ég pæli í þegar inn er komið, hvernig eiga sófar, stólar að snúa? Hvernig geta þeir sem hér búa notið þess sem oftast og best? Í þessari íbúð valdi ég að vera með mínimalíska list á veggj- unum til að taka ekki mikið af fallega útsýninu. Einnig að hægt væri að sitja og horfa beint út á sjó og á Esjuna.“ Edda Sif ákvað að velja marmara og eik- arplötur í staðinn fyrir hefðbundinn bólstraðan höfuðgafl í svefnherberginu. „Mig langaði að gera mikinn höfuðgafl og vegna þess að hátt er til lofts þurfti að hugsa út í hljóðvistina líka. Þess vegna notaði ég hljóðdempandi eik- arplötur á móti marmaranum. Eikin er gott jafnvægi við marmarann og gefur ákveðinn hlýleika. Marmarinn er klassískur og stenst tímans tönn. Þessi veggur kallaði bara akkúrat á þessa stemningu.“ Hvað getur þú sagt mér um litina í húsinu? „Íbúðin er á móti sjó og víðáttu sem gefur töluvert kalda birtu til norðurs, þá er gott að passa að setja extra hlýja dropa í málninguna svo hún verði ekki of blá og grá. Ég pæli mjög mikið í litum og ég vel vanalega fjóra grunnliti til að vinna með. Svo bætast áferðir í efnisvali ofan á það.“ Hvernig var að velja inn húsgögn í íbúðina? „Það var mjög skemmtilegt að velja húsgögn í þessa íbúð. Íbúðin kallaði svolítið á lág hús- gögn sem gefa ákveðinn klassa. Vanalega ræð- ur húsið og byggingarstíllinn förinni þegar kemur að því að velja muni innanhúss. Það þarf að taka mikið tillit til hússins þegar velja á inn í það, er húsið rómantískt, mínimalískt, hvenær er það byggt og svo framvegis. En auðvitað getur maður svo sett smá tvist á það allt sam- an.“ Erfiðu rýmin fá athygli Komu þínar hugmyndir eigandanum á óvart að einhverju leyti? „Það vona ég. Já ég hugsa að maður sé alltaf svolítið samdauna sjálfum sér og sínu heimili. Fersk augu koma alltaf með eitthvað nýtt. Þetta á líka við um mig sjálfa. Mér finnst stundum erfitt að ákveða breytingar heima hjá mér, en svo liggur allt í augum uppi þegar ég fer annað.“ Var eitthvað í ferlinu sem var krefjandi? „Það eru alltaf einhverjar áskoranir þegar maður vill gera vel og er að vanda sig. Ef engar áskoranir koma upp þá er maður kannski ekki að vanda sig nóg. Erfiðu svæðin í rými fá oft aðalfókusinn hjá mér og reyni ég að nýta það til góðs og að vera skapandi þegar að því kem- ur.“ Hvað skiptir máli til þess að líða vel á heim- ilinu? „Það er mjög margt sem skiptir mig máli þegar ég kem í ráðgjöf. Þetta snýst alls ekki um að gera allt bara geggjað fallegt fyrir aug- að, það sem ég kynni mér vel er til dæmis hvernig lífi lifir manneskjan heima hjá sér? Hvað gerir hún þar? Hver eru áhugamálin? Er hraði á lífsstílnum eða er viðkomandi mikið heima að lesa, horfa á sjónvarp, halda veislur og svo framvegis? Eru börn á heimilinu? Hvað eru þau gömul? Vantar meira rými til að vera saman eða vera í einrúmi? Það skiptir miklu máli að hanna heimilið fyrir þá sem búa þar, ekki fyrir gesti eða aðra. En gott að hafa til hliðsjónar að gott sé að taka á móti fólki með ekki of miklum tilfærslum. Ég elska að nota hluti sem þjóna fleiri en einum tilgangi, t.d. bekki, rennihurðir og þess háttar. Þá getur heimilið lifað lengur með breyttum aðstæðum.“ Þarf maður að vera góður mannþekkjari þegar maður hjálpar fólki að velja hluti inn á heimilið? „Já, ég myndi segja að það skipti miklu máli. Það er svo margt sem getur spilað inn í hjá fólki, litir, tilfinningar, jafnvel eitthvert rými í húsinu sem er erfitt að fara í vegna þess að þar er kassi með einhverju ofan í þar sem fólk á eft- ir að fara í gegnum, svo sem sorg eða þess hátt- ar. Ég þarf að vita hvenær fólk þarf að láta ýta sér aðeins og hvenær er gott að aðstoða fólk að kjarna hlutina niður. Ég er með bakland í hár- greiðslu til 20 ára þar sem samskipti við við- skiptavin eru afar mikilvæg og þetta er mjög líkt að mörgu leyti.“ Vildi ekki taka neitt frá útsýninu Edda Sif Guðbrandsdóttir, framkvæmda- og innanhússráðgjafi, fékk það hlutverk að velja inn húsgögn og hluti í nýja íbúð við höfnina þar sem Esjan tekur á móti stofugestum. Henni fannst skemmtilegt að velja inn húsgögnin í íbúðina og segir hana hafa kallað á lág húsgögn. Guðrún Selma Sigurjónsdóttir | Gudrunselma@mbl.is Húsgögnin veita ákveðinn klassa. Mjúkur og skemmtilegur sófi prýðir stofuna.Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Málningin gefur skemmtilegan og hlýjan tón. Hægt er að horfa á útsýnið úr borðstofunni. Marmarinn kemur vel út í svefnherberginu. Edda Sif segir mikilvægt að hlusta vel á þarfir fólks.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.