Morgunblaðið - 23.09.2022, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2022
sem blandað er saman grófri „crustal“ áferð á veggjum og grófum „Travert-
in“-flísum á móti fínlegum ljósum viðarinnréttingum og fallegum ljósum hör-
gluggatjöldum. Þá er strigi notaður á nokkra veggi og ýmsir fylgihlutir og
plöntur til að klára heildarmyndina,“ segir hún.
Vildi alls ekki gula eik!
Það eru ljósir litir á veggjum og innréttingar í ljósari kantinum? Hvaða við
notar þú í innréttingar?
„Ég var búin að vera til með þessa efnis- og litapallettu í kollinum í langan
tíma og var orðin spennt að fá tækifæri til að nota hana í verkefni. Mig lang-
aði í ljósar innréttingar úr eik og vildi passa að hafa hana hlýja en alls ekki
gula. Ég vann með frábæru innréttingafyrirtæki í þessu verkefni og þeir
gerðu fyrir mig ótal prufur áður en við urðum sátt við útkomuna,“ segir Rut
en fyrirtækið sem smíðaði allar innréttingar í íbúðina heitir Smíðaþjónustan.
Borðplöturnar koma hins vegar frá Fígaró. Rut segist hafa valið þennan
stein á borðplöturnar til þess að það væri meira líf í hönnuninni.
„Ég vildi gæta þess að allt efnisvalið væri ljóst og létt án þess að útkoman
yrði of flöt. Borðplatan sem varð fyrir valinu fannst mér tóna frábærlega við
annað efnisval í íbúðinni,“ segir Rut.
Engin verksmiðjulýsing
Rut leitaði til Lúmex til þess að hanna lýsingu íbúðarinnar enda er hægt að
drepa niður alla stemningu með verksmiðjulýsingu. Fyrir ofan eyjuna í eld-
húsinu er til dæmis afar fallegt ljós sem er látlaust en getur töfrað fram ein-
staka birtu.
„Lýsingin skipar háan sess í þessari íbúð, enda lýsing eitt af þeim atriðum
sem skipta höfuðmáli í allri innanhússhönnun. Lýsingin hér var öll hönnuð í
samráði við lýsingarhönnuði. Lýsing er höfð þannig að hún er með mikla
möguleika á að breyta eftir því hvað er í gangi hverju sinni í íbúðinni, auk
þess sem ljósin sjálf eru valin þannig að þau undirstriki þá stemningu sem ég
var að reyna að skapa,“ segir hún.
Síðustu ár hafa dökkir litir verið áberandi hérlendis í innréttingum. Þegar
Rut er spurð hvort fólk sæki nú í ljósari liti segir hún allan gang á því.
„Hvað viðkemur litavali finnst mér mestu máli skipta hvaða heildarmynd
er verið að reyna að skapa í hvert sinn. Ég er til dæmis persónulega hrifin af
dökkum litum fyrir mitt heimili en það er líka vegna þess að þar eru miklir og
stórir gluggar og því mikil náttúruleg birta. Ef ég væri hins vegar í húsnæði
með minni gluggum og lítil börn á heimilinu myndi ég alltaf hafa íbúðina í
ljósari kantinum. Það að ljósari litir séu að koma meira til baka kann að vera
einmitt vegna þess að margir hafa áttað sig á að dökkir litir henta ekki þeirra
húsnæði eða smekk og svo er bara svo auðvelt að breyta heildarmyndinni
með því að skipta um litapallettu á nokkurra ára fresti! Hluti af veggjunum í
íbúðinni er spónlagður með sama viði og innréttingarnar en á aðra veggi fór
svokölluð „crustal“-málning sem gefur grófa áferð en hlýja ásýnd,“ segir
Rut.
Öll gólf flísalögð
Rut lét flísaleggja íbúðina. Hún segir að það hafi þurft flísar til þess að
spila á móti spónlögðu veggjunum og innréttingunum. Það hefði hreinlega
orðið of mikið ef það hefði líka verið parket á gólfunum.
„Öll íbúðin er flísalögð með ljósum stórum „Travertin“-flísum og sums
staðar ná þær líka upp á veggina. Þar sem mikill viður var kominn í íbúðina í
innréttingum, spónlögðum innihurðum og veggjum fannst mér ekki annað
koma til greina en að velja flísar á gólfin.“
Húsráðendur óskuðu eftir því að Rut hannaði ekki bara innréttingar íbúð-
arinnar heldur myndi hún sjá um að raða upp húsgögnum og velja þau inn á
heimilið. Þegar hún er spurð hvaðan húsgögnin eru kemur í ljós að hún
keypti þau á nokkrum ólíkum stöðum.
„Húsgögnin koma víða að. Til dæmis Gubi-lampar frá Lúmex og svo eru
húsgögn meðal annars frá Norr 11 og StudioHomestead.“
Í íbúðinni eru tvö baðherbergi. Rut notaði sömu flísar á veggina á baðher-
bergjunum og eru á gólfum íbúðarinnar.
„Bæði baðherbergin eru í takt við önnur rými í íbúðinni. Það er að segja
með sömu flísum og innréttingum úr sama ljósa viðnum. Valin voru Gessi-
blöndunartæki og fylgihlutir inn á baðherbergin,“ segir hún en stórir spegla-
skápar setja svip á rýmin.
Hvað ertu ánægðust með í íbúðinni?
„Ég er ánægðust með flæðið í íbúðinni og þá stemningu sem okkur tókst að
skapa með litavali, húsgögnum og lýsingunni, sem setur punktinn yfir i-ið.“
Ljósmyndir/Gunnar Sverrisson
Flísarnar úr
Ebson prýða
bæði veggi og
gólf. Hér sést
hvað þær fara
vel inni á bað-
herbergi við
speglaskápa
og ljósar eik-
arinnréttingar.
Horft inn í eldhús. Öll íbúðin er
máluð með málningu frá Sér-
efni og mikið er lagt í glugga-
tjöldin sem eru úr hörefni.
Það er friðsælt í
hjónaherberginu.
Rut valdi öll
gluggatjöld í
íbúðina. Þau
koma frá
Casalísa.
Lampinn Serge Mo-
uille frá Lúmex fer
vel við flísarnar og
innréttingarnar.