Morgunblaðið - 23.09.2022, Síða 32
Sveinn Kjartansson matreiðslumeistari býr í fallegu bárujárnshúsi í mið-
bænum ásamt eiginmanni sínum Viðari Eggertssyni. Eitt það fyrsta sem
þeir gerðu þegar þeir festu kaup á húsinu var að breyta eldhúsinu.
Guðrún Selma Sigurjónsdóttir | gudrunselma@mbl.is
alls ekki eins vel þannig. Við vildum einnig fá
látlaust, hlýlegt eldhús sem passaði inn í
þetta gamla hús.
Þeir Sveinn og Viðar vildu heimilislegt eld-
hús með góðri vinnuaðstöðu. Það sem heppn-
aðist einna best við eldhúsið er falleg marm-
araborðplata sem er í gamaldags stíl.
„Við fengum okkur marmara á borðplötuna
sem er að sjálfsögðu sérsmíðuð. Hún er ein
heil plata en sú hlið sem liggur að veggnum
og bak við vaskinn er með rúnnuðum kanti
sem nær aðeins upp á vegg. Þetta gerir það
að verkum að það kemur gamaldags blær yfir
marmarann og hann lítur út fyrir að hafa ver-
„Um leið og við fengum húsið afhent og áð-
ur en við fluttum inn fórum við í fram-
kvæmdir, settum inn nýtt eldhús og breyttum
uppsetningunni. Við fengum dyggilega að-
stoð frá vinkonu okkar Guðrúnu Margréti
Ólafsdóttur innhússarkitekt. Við létum smíða
eldhúsið í U en fyrra eldhúsið var lína eftir
endaveggnum og nýttist rýmið að okkar mati
H
úsið var byggt árið 1901 og er
bárujárnsklætt timburhús byggt
á steingrunni. Húsið er bjart og
hlýlegt með litlum garði, frábær-
lega gott hús að búa í. Við höfum
verið hér í átta ár en vorum búnir að hafa
augastað á húsinu mun lengur,“ segir Sveinn
um húsið.
ið hérna eins lengi og húsið. Einnig er fram-
kanturinn rúnnaður og með gamaldags
munstri, sem undirstrikar það sem áður kom
fram um að hann smellpassi inn í eldhúsið í
gömlu húsi af þessari gerð.“
Stórt og áberandi listaverk fær að njóta sín
í eldhúsinu.
„Uppáhaldslistaverkið í borðstofunni er
textílverk, búið til úr endurunnum áldósum
en lítur út fyrir að grasflötur og alveg ómögu-
legt að sjá að séu áldósir – bjórdósir að
mestu. Verkið er eftir listamanninn Ingu
Huld Tryggvadóttur. En uppáhalds-
nytjahluturinn í eldhúsinu er án efa ítalska
Rancilio-kaffivélin mín.
Ég kaupi mér yfirleitt hluti sem ég vil eiga
til lengri tíma, en auðvitað er stundum flókið
við flutninga að allt nýtist aftur eða fari vel á
nýjum stað, þannig að auðvitað hef ég keypt
einhverja hluti sérstaklega inn í þetta hús
sem ég bý í núna. Smekkur minn hefur lítið
breyst en þó hefur einhver smá þróun átt sér
stað. En hlutir sem ég á lengi eru mér oftast
meira virði og ég er ekki að endurnýja bara
til að endurnýja,“ segir Sveinn.
„Yfir borðstofuborðinu okkar hangir
ljós sem við keyptum fyrir 20 árum í
Amsterdam og við lögðum mikið á okkur
að taka það með okkur í fluginu heim.
Hönnunin er mjög einföld og stenst að
mínu viti fyllilega alla tískustrauma og
sveiflur og ég er enn þá jafnánægður með
það.“
Hvað gerir borðstofu að góðri borðstofu?
„Eins og með flestar vistarverur þá er aðal-
atriðið að fólki líði vel í rýminu en það sem
gerir borðstofu að góðri borðstofu er auðvitað
góður félagsskapur að njóta góðs matar. Ann-
ars er svo sem ekki mikið um matarboð hjá
mér, ég fæ góða útrás fyrir sköpunarþörfina
og að dekra við fólk í vinnu en er með litla
veisluþjónustu, svona sem aukabúskap. Þar
tek ég aðallega að mér að elda í veislum fyrir
litla hópa, í matarboðum í heimahúsum eða til
dæmis sendiráðum og þessháttar.“
Hvað finnst þér besti kosturinn við hvernig
eldhúsið tengist borðstofu og stofu?
„Eins og það er hjá okkur er borðstofan
inni í eldhúsi og er því einskonar eldhúsborð
líka en við erum með frekar stórt borð sem er
eiginlega miðja heimilisins og það er mikið
notað. Við sitjum mikið við það, fáum okkur
morgunkaffi, föndrum, vinnum, hlustum á
tónlist og annað þvíumlíkt. Þegar tekið er á
móti gestum er það tilhneiging oftar en ekki
að borðstofuborðið sé notað frekar en stof-
an.“
Marmarinn gefur
eldhúsinu gamaldags blæ
Sveinn með
hundinn Ísar.
Hundurinn er
af tegundinni
Yorkshire
Terrier.
Háfurinn var smíðaður eftir hugmynd
Guðrúnar Margrétar Ólafsdóttur eftir
samtal hennar við þá Svein og Viðar.
Hillan fyrir ofan kemur líka mjög vel út.
Marmarinn er í stíl við
aldur hússins. Hugað var
að öllum smáatriðum.
32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2022
ÓÐINSGATA 1
101 REYKJAVÍK
WWW.SKEKK.COM