Morgunblaðið - 23.09.2022, Page 37
sonur okkar geti leikið sér alveg frjáls í „já-rými“. Þá þarf ekki að
eltast við hann og kalla „nei, má ekki, bannað“, sem er þreytandi
fyrir alla. Leikföng og bækur eru honum alltaf aðgengileg og við
viljum að þetta sé heimili hans alveg jafn mikið og okkar. Hans dót
og hlutir eru partur af heimilinu og það finnst mér fallegt og sýna
að heimili eru til þess að nota en ekki til sýnis,“ segir Svanhildur
og bætir við að hvíti sófinn í stofunni hafi verið keyptur áður en
sonurinn kom í heiminn og áklæðið síðan verið sett ósjaldan í þvott.
Áttu þér uppáhaldshlut eða listaverk?
„Ég elska Venus mína sem ég keypti í Góða hirðinum. Rassinn á
henni fær að múna á gangandi vegfarendur. Síðan elska ég mynd-
irnar af okkur eftir Korkimon og köttinn eftir Ými Grönvold.“
Ertu að safna fyrir einhverju eða er eitthvað á óskalistanum fyr-
ir heimilið?
„Það er aldrei nóg af list og mig langar í verk eftir Kristínu
Gunnlaugsdóttur, Claudiu Hausfeld, Kristínu Morthens, Rúrí og
endalaust fleiri sem ég læt mig dreyma um.“
Appelsínugul
rönd setur
sterkan svip
á íbúðina.
Svanhildur Gréta
kann vel við sig í
miðbænum.
„Ég hef sterkar skoðanir á því hvað
mér finnst flott og ekki. Það skiptir
mig miklu máli að hafa fallegt heim-
ili sem er líka praktískt.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ljós frá Frandsen.
Casa 22.900 kr.
Falleg og áberandi loftljós lýsa ekki bara upp stofuna heldur
gera hana skemmtilegri líka. Ertu bast-týpa, hvít týpa eða týpan
til þess að hafa stóra kúlu yfir borðstofuborðinu? Það er til alls-
konar fyrir alla og ljósin þurfa ekki endilega að kosta mikið.
Flott ljós sem
kosta undir 25
þúsund krónum! Loftljós frá Hay.
Epal 7.600 kr.Hangandi ljós
frá Amsfield.
Pfaff 15.500 kr.
MISTERHULT-ljós.
IKEA 11.990 kr.
Loftljós úr pappír.
Søstrene Grene 3.098 kr.
Ljós frá Nuage.
Rafkaup 20.950 kr.
Ljós frá Normann Copenhagen. Epal 14.700 kr.
Ljós frá Zago.
La Boutique Design
16.990 kr.
SKYMNINGEN-ljós.
IKEA frá 11.990 kr.
FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2022 MORGUNBLAÐIÐ 37
Vandaðar vörur
fyrir þig og heimilið
y jÁrmúla 42 - 108 Re k avík - islenskheimili.is