Morgunblaðið - 23.09.2022, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2022
Þ
ú kláraðir meistaragráðu í myndlist
frá Bergen, eru norsk áhrif einhvers
staðar á heimilinu?
„Norðmenn eru almennt mjög
duglegir að hafa smart heima hjá
sér, gríðarlega mikill panill og kósí „hyttufíl-
ingur“, þó að heimilið okkar sé kannski frá degi
til dags meira eins og heima hjá fyrrverandi
forsætisráðherranum Ernu Solberg. Ég tók
eftir því að þegar hún fær ljósmyndara heim til
sín er alltaf allt gjörsamlega í steik, straubretti
og tómar flöskur og allt í kássu. Veit ekki hvort
þetta er „power move“ eða hvort hún er að
reyna að vera alþýðleg, hún allavega hlýtur að
vera með fullt af aðstoðarfólki sem gæti reddað
þessu með engum fyrirvara þannig að þetta
hlýtur að eiga að vera einhver meining hjá
henni. Svo náttúrulega er hérna í öndvegi mál-
verk eftir Auði Ómarsdóttur, sem var einmitt á
sama tíma og ég í meistaranámi í myndlist í
Bergen, af treyjunni sem lið Liverpool klæddist
í úrslitaleik meistaradeildarinnar á móti AC
Milan 2005, með Norðmanninn Jon Arne Riise í
lykilhlutverki. Semsagt já, mjög innblásið.“
Af hverju heillar textíll þig í myndlist?
„Textíll er miðill með endalausa möguleika og
langa sögu sem bæði lykilþáttur í hversdagslífi
og andlegri iðkun, sem stöðutákn og gjaldmiðill,
en það er líka saga sem er mjög dularfull því
textílar eru efni sem tíminn fer alla jafna óblíð-
um höndum um. Það er eitthvað við að nota
þræði sem teikna upp sjálft efnið og móta form-
ið sem þeir eru hluti af sem ég hef ekki getað
slitið mig frá, og prjónið sér í lagi varð sú leið
sem ég leitaði í aftur og aftur til að skoða sam-
spil lita og flata. Síðustu misseri hef ég því sótt í
að segja og sýna það sem mér liggur á hjarta í
prjóni, bara eins og málari málar. Svo er ég auð-
vitað líka alltaf meðvituð um söguna og tenging-
arnar við störf kvenna inni á heimilum og tím-
ann sem er sjáanlega bundinn í hvern hlut,“
segir Sigrún sem sýnir verk sín á sýningunni
Eldskírn í Listasal Mosfellsbæjar.
Er textíll í myndlist með „comeback“?
„Já, það hefur hiklaust verið mikil gróska og
stemning fyrir textílmyndlist síðasta áratuginn
eða tvo. En svo það sé alveg skýrt verð ég mjög
glöð þegar ég sé kempurnar sem hafa staðið
vaktina miklu lengur en það fá athygli og um-
fjöllun, en ekki bara hressa krakka sem eru að
vinna með grípandi mótív – ekki svo að skilja að
mér finnist það ekki frábært líka!“
Er eitthvað við heimilislífið sem veitir þér
innblástur?
„Já, ég er allt of mikið að reyna að vinna
heima, oft með ömurlegum árangri og tilheyr-
andi óreiðu sem reynir á þolinmæði annarra
heimilismanna. Það eru kannski helst vinnu-
brögð barnanna við listsköpun sem veita mér
innblástur, það er til fyrirmyndar hvað ungu
mennirnir ganga hreint til verks og treysta því
fullkomlega að ferlið leiði þá áfram.“
Hvar er hjarta heimilisins?
„Sjálfsagt er það bara borðstofuborðið, þar
eyðum við löngum stundum við að þusa í börn-
unum um tilhlýðilega fæðuinntöku, teikna, leira,
baka og bulla. Dyrnar inn í stofu eru svo
kannski svona ósæð heimilisins, við komumst að
því þegar við fluttum inn að Ylfa vinkona okkar
og ein uppáhaldsleikkonan mín ólst upp í þess-
ari íbúð og mundi vel eftir munstruðu glerhurð-
unum. Það er gríðarlega óvænt að glerið skuli
enn vera heilt, synir okkar dýrka að hlaupa í
hringi kringum hornveggina á stofunni og við
vorum viss um að þeir myndu vera búnir að
smalla dyrnar á þessum tímapunkti. Svo eigum
við alveg fáránlega stórt rúm, það er mjög eft-
irsótt að leggja sig þar, og þar er líka vinsælt að
bulla og hnoðast.“
Hver ræður á heimilinu þegar kemur að því
að innrétta, velja inn hluti og mála?
„Það er bara þokkalegt samkomulag myndi
ég segja, ég fékk dálítið að ráða litunum þegar
við fluttum inn fyrir ári, það voru mjög hressi-
legar 300 ferðir í Sérefni sem lágu að baki þeirri
framkvæmd. Svo fékk Friðgeir að skrifa nöfnin
Bölvun og blessun
að vinna rétt hjá
Góða hirðinum
Stofudyrnar
setja fallegan
svip á heimilið.
Sigrún Hlín Sigurðardóttir býr í sjarmerandi íbúð í Laugarneshverfinu
með sambýlismanni sínum Friðgeiri Einarssyni og tveimur sonum.
Sigrún lýsir heimilisstílnum sem litríkum og óreiðukenndum.
Guðrún Selma Sigurjónsdóttir | gudrunselma@mbl.is
Sigrún Hlín
býr í fallegri
íbúð með fjöl-
skylu sinni.
Fyrir ofan
píanóið eru tvö
prentverk eftir
Sigrúnu Hlín.