Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Blaðsíða 4
FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.8. 2022 Kópavogur – Smiðjuvegur 76 Akureyri – Baldursnes 6a Selfoss – Austurvegur 69 414 1000 414 1050 414 1040 BAÐAÐU ÞIG Í GÆÐUNUM Þrátt fyrir leiðindaveður þyrptust foreldrar ungbarna á nýopnaðar gosstöðvar á Reykjanesskaga, enda einu hlýindin í landinu þar. Nokkuð var um minni- háttar slys, en brögð voru að því að fólk brygði frá merktum gönguleið- um. Eldgosið endurnýjaða hefur vakið stjórnvöld til umhugsunar um ör- yggi ýmissa innviða, svo sem þjóð- vega og flugvalla, ekki þá síst vara- flugvöll fyrir millilandaflug ef Keflavíkurflugvöllur skyldi lokast. Hvassahraun þykir ekki lengur til- valið, enda gefur seinni liður nafns- ins ákveðna vísbendingu um að horfa annað. Birt var hagfræðiskýrsla um stöður og horfur á vinnumarkaði, sem unnin var fyrir Þjóðhagsráð í júní, en þar kom fram að afar takmarkað svigrúm væri til kauphækkana. Mælti höfundurinn, Katrín Ólafs- dóttir doktor í vinnumarkaðs- hagfræði, með því að annarra leiða en launahækkana yrði leitað til að bæta stöðu fólks í kjarasamningum í haust. Því var fálega tekið af verkalýðsfor- ystunni, en Sólveig Anna Jóns- dóttir, hinn orðvari formaður Efl- ingar, hvatti Þjóðhagsráð til þess að „troða [skýrslum sínum] beint í tætarann“. Gerði hún einnig mikið úr drambi „meritókrasíu“ „efri millistéttarfólks“ í garð öreiga- stéttarinnar, sem eins og kunnugt er talar sín á milli vart um annað en „meritókrasíuna“ alla daga. Úrkoma á Íslandi fyrstu sjö mánuði ársins reyndist 55% umfram meðal- úrkomu, sem var nokkuð í samræmi við tilfinningu fölra eyjarskeggja. Ef áfram rignir af sama krafti út árið mun 101 árs gamalt úrkomumet falla. . . . Fjármálasérfræðingur segir ekki ólíklegt að fasteignaverð taki dýfu þegar vaxtastig hækkar og merki verða uppi um aukið framboð hús- næðis, hvenær sem það nú gerist. Ráðhústvíburarnir Einar og Dagur telja óráðlegt að afskrifa Reykjanes- skaga sem heppilegt flugvallarstæði í stað Reykjavíkurflugvallar hvað sem líður öllum eldsumbrotum þar næstu ár, áratugi eða aldir. Talsmenn ferðaþjónustunnar hafa hins vegar engar áhyggjur, öðru nær, og segja nýja gosið ekki geta annað en hjálpað til við endurreisn greinarinnar eftir að plágunni linnti. Af áhuga erlendra ferðamanna að dæma er það rétt metið, en enn er talsverð mannekla í ferðageiranum. Tíu handverksbrugghús hafa hlotið leyfi frá sýslumönnum sínum til þess að selja eigin afurðir á framleiðslu- stað, mánuði eftir að lög þar að lút- andi tóku gildi. Nýr sendiherra Bandaríkjanna á Ís- landi, Carrin F. Patman, hefur hlot- ið staðfestingu öldungadeildar Bandaríkjaþings til starfans. Líkt og fyrri sendiherra vann hún til emb- ættisins með fjársöfnun til kosninga- baráttu forsetans, en hins vegar gæti hún reynst ógalin. . . . Sumarið hélt áfram að bresta á, nú með gulri veðurviðvörun vegna rigningar. Hundruð ferðamanna heimsóttu gosstöðvarnar í Meradölum í svartaþoku og það þrátt fyrir að þær ættu að heita lokaðar. Björg- unarsveitir björguðu tíu ferðamönn- um sem villtust í myrkrinu. Ylvolg loforð um dagheimilisvist árs- gamalla barna snöggkólnuðu þegar innritunarferlið lét á sér standa og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hætti að láta ná í sig. Helgi Gríms- son sviðsstjóri hjá borginni hafði þær skýringar helstar að síðan í júní hefðu bæði kórónuveiran og Úkra- ínustríðið komið Reykjavíkurborg í opna skjöldu. Alþýðusamband Íslands (ASÍ) kynnti fjölda nýrra hugmynda um skattheimtu í aðdraganda þings þess, sem fram fer í október. Hins vegar bólar ekkert á kröfugerð þess fyrir kjarasamninga, sem einmitt taka að losna í hrönnum um svipað leyti. Áfram fækkar heldur í þjóðkirkj- unni, en í henni eru nú 228.205 sálir. Næstflestir eru í katólska söfn- uðinum eða 14.710. Hlutfallslega fjölgaði mest í söfnuði múslima, en einnig geta bókstafstrúaðir trúleys- ingjar í Siðmennt verið sáttir við boðun safnaðar síns. . . . Söluferlið á Mílu, sem Síminn vill selja franska fjárfestingafélaginu Ardian, er komið í pattstöðu vegna einstrengingslegrar afstöðu Sam- keppniseftirlitsins. Þar ræðir um stærstu erlendu fjárfestingu hér á landi um langa hríð og mikið í húfi. Ástandið í Garðabæ er nánast eins og í myndinni Birds eftir Alfred Hitchcock, þar sem mávar halda vöku fyrir fólki með gargi og ráðast að sögn að fólki. Almar Guð- mundsson bæjarstjóri hyggst skera upp herör gegn þeim, þó að- eins utan friðlanda í bæjarlandinu. Þrátt fyrir að fjöldi íslenskra lækna sé mikill, þá eru færri að störfum en þyrfti, álagið mikið og þjónustan minni en rétt væri. Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) hafa samið við eitt sætsta olíufyrir- tæki Indlands um að bora eftir jarðvarma í Himalajafjöllum í Kasmír. Vonast þær til þess að því fylgi fleiri verkefni á Indlandi. Leitað var að sjósundsmanni út af Akranesi, en hann fannst síðar lát- inn. Eiríkur Guðmundsson útvarps- maður lést, aðeins 52 ára að aldri. . . . Drífa Snædal forseti ASÍ tilkynnti fyrirvaralaust afsögn sína og kvaðst ekki geta setið undir eilífum árásum samherja sinna og vísaði þar sérstaklega til Ragnars Þórs Ingólfssonar formanns VR og Sól- veigar Önnu Jónsdóttur formanns Eflingar, sem fögnuðu afsögninni og sendu henni tóninn. Afsögnin kom flatt upp á marga enda stutt í kjarasamninga. And- stæðingar Drífu telja sig vera rót- tækari, sem tæplega á að koma á óvart þegar yfirlýstur stalínisti eins og Sólveig Anna á í hlut. Þau eru jafnframt óbilgjarnari eins og sést á því að farið er að hóta verkföllum þótt ekki sé farið að semja og raun- ar ekki komin fram kröfugerð. Hins vegar var því fagnað á vinnu- markaði að nú er minnsta atvinnu- leysi hér á landi í 40 mánuði, en það var aðeins 3,2% á landsvísu í liðnum mánuði. Undirbúningur skólagöngu barna á flótta er hafinn, en Óttar Proppé fv. ráðherra leiðir þá vinnu af hálfu rík- isins. Flóttabörn á grunnskólaaldri eru um 300 talsins, en um 130 á framhaldsskólaaldri. Upplausn ríkir á Seltjarnarnesi, þar sem 6,1 milljónar króna bjórkælir í Vínbúðinni á Eiðistorgi, sem settur var upp fyrir ári, hefur enn ekki ver- ið settur í samband og bjórinn því volgur. Nágrannar kvörtuðu á sínum tíma undan hávaða frá kælinum, en svo kom í ljós að ríkið hafði ekki leyfi fyrir honum. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri kom því loks í verk að endurnefna reit við Garðastræti Kænugarð, sem Eyþór Arnalds lagði til í borgar- stjórn í byrjun mars, en var sam- þykkt í lok apríl eftir frestun meiri- hlutans. Dagur boðaði ljósmyndara á staðinn en bauð Eyþóri ekki. . . . Fjöldi foreldra mótmælti við Ráð- húsið vegna vanefnda á loforðum Dags B. Eggertssonar borgarstjóra og meirihluta hans um leikskólavist allra ársgamalla barna. Dæmi eru um að foreldrar taki sér launalaust leyfi af þeim sökum. Árelía Eydís Guðmundsdóttir, nýr borgarfulltrúi Framsóknarflokksins og nýbakaður formaður skóla- og frí- stundasviðs Reykjavíkurborgar, mótmælti sjálfri sér og meirihlut- anum af miklum krafti í fjölmiðlum. Sagði hún „ástandið á leikskólakerf- inu […] óásættanlegt“ og fagnaði því að foreldrar úthúðuðu sér og meiri- hlutanum. Starfsmenn í hvalstöðinni í Hval- firði tóku dróna svissnesks ríkisfjöl- miðils traustataki, en hann var not- aður til myndatöku úr lofti yfir stöðinni, en mun nær henni og lægra en lög kveða á um. Þeir vildu ekki láta hann af hendi nema lögregla rannsaki málið til hlítar. Samherjafjórmenningarnir, fjórir starfsmenn þriggja fjölmiðla, voru kallaðir til skýrslutöku hjá lögreglu á Akureyri á ný. Þeir hafa stöðu grun- aðs manns vegna stuldar á síma og dreifingar á stafrænum gögnum um ströng einkamál, sem á honum voru. Fram þjáðir forsetar ASÍ Þrátt fyrir lokanir og misjöfn veður vantaði ekki ferðalangana við eldgosið í Meradölum, unga sem aldna, innlenda sem erlenda. Það var enda eini staðurinn á Íslandi þar sem hnattrænnar hlýnunar gætti þessa vikuna. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon 7.8.-12.8. Andrés Magnússon andres@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.