Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Qupperneq 4
FRÉTTIR VIKUNNAR
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.8. 2022
Kópavogur – Smiðjuvegur 76
Akureyri – Baldursnes 6a
Selfoss – Austurvegur 69
414 1000
414 1050
414 1040
BAÐAÐU ÞIG
Í GÆÐUNUM
Þrátt fyrir leiðindaveður
þyrptust foreldrar ungbarna
á nýopnaðar gosstöðvar á
Reykjanesskaga, enda einu hlýindin
í landinu þar. Nokkuð var um minni-
háttar slys, en brögð voru að því að
fólk brygði frá merktum gönguleið-
um.
Eldgosið endurnýjaða hefur vakið
stjórnvöld til umhugsunar um ör-
yggi ýmissa innviða, svo sem þjóð-
vega og flugvalla, ekki þá síst vara-
flugvöll fyrir millilandaflug ef
Keflavíkurflugvöllur skyldi lokast.
Hvassahraun þykir ekki lengur til-
valið, enda gefur seinni liður nafns-
ins ákveðna vísbendingu um að
horfa annað.
Birt var hagfræðiskýrsla um stöður
og horfur á vinnumarkaði, sem
unnin var fyrir Þjóðhagsráð í júní,
en þar kom fram að afar takmarkað
svigrúm væri til kauphækkana.
Mælti höfundurinn, Katrín Ólafs-
dóttir doktor í vinnumarkaðs-
hagfræði, með því að annarra leiða
en launahækkana yrði leitað til að
bæta stöðu fólks í kjarasamningum í
haust.
Því var fálega tekið af verkalýðsfor-
ystunni, en Sólveig Anna Jóns-
dóttir, hinn orðvari formaður Efl-
ingar, hvatti Þjóðhagsráð til þess
að „troða [skýrslum sínum] beint í
tætarann“. Gerði hún einnig mikið
úr drambi „meritókrasíu“ „efri
millistéttarfólks“ í garð öreiga-
stéttarinnar, sem eins og kunnugt
er talar sín á milli vart um annað en
„meritókrasíuna“ alla daga.
Úrkoma á Íslandi fyrstu sjö mánuði
ársins reyndist 55% umfram meðal-
úrkomu, sem var nokkuð í samræmi
við tilfinningu fölra eyjarskeggja. Ef
áfram rignir af sama krafti út árið
mun 101 árs gamalt úrkomumet
falla.
. . .
Fjármálasérfræðingur segir ekki
ólíklegt að fasteignaverð taki dýfu
þegar vaxtastig hækkar og merki
verða uppi um aukið framboð hús-
næðis, hvenær sem það nú gerist.
Ráðhústvíburarnir Einar og Dagur
telja óráðlegt að afskrifa Reykjanes-
skaga sem heppilegt flugvallarstæði
í stað Reykjavíkurflugvallar hvað
sem líður öllum eldsumbrotum þar
næstu ár, áratugi eða aldir.
Talsmenn ferðaþjónustunnar hafa
hins vegar engar áhyggjur, öðru
nær, og segja nýja gosið ekki geta
annað en hjálpað til við endurreisn
greinarinnar eftir að plágunni linnti.
Af áhuga erlendra ferðamanna að
dæma er það rétt metið, en enn er
talsverð mannekla í ferðageiranum.
Tíu handverksbrugghús hafa hlotið
leyfi frá sýslumönnum sínum til þess
að selja eigin afurðir á framleiðslu-
stað, mánuði eftir að lög þar að lút-
andi tóku gildi.
Nýr sendiherra Bandaríkjanna á Ís-
landi, Carrin F. Patman, hefur hlot-
ið staðfestingu öldungadeildar
Bandaríkjaþings til starfans. Líkt og
fyrri sendiherra vann hún til emb-
ættisins með fjársöfnun til kosninga-
baráttu forsetans, en hins vegar
gæti hún reynst ógalin.
. . .
Sumarið hélt áfram að bresta á, nú
með gulri veðurviðvörun vegna
rigningar.
Hundruð ferðamanna heimsóttu
gosstöðvarnar í Meradölum í
svartaþoku og það þrátt fyrir að
þær ættu að heita lokaðar. Björg-
unarsveitir björguðu tíu ferðamönn-
um sem villtust í myrkrinu.
Ylvolg loforð um dagheimilisvist árs-
gamalla barna snöggkólnuðu þegar
innritunarferlið lét á sér standa og
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
hætti að láta ná í sig. Helgi Gríms-
son sviðsstjóri hjá borginni hafði
þær skýringar helstar að síðan í júní
hefðu bæði kórónuveiran og Úkra-
ínustríðið komið Reykjavíkurborg í
opna skjöldu.
Alþýðusamband Íslands (ASÍ)
kynnti fjölda nýrra hugmynda um
skattheimtu í aðdraganda þings
þess, sem fram fer í október. Hins
vegar bólar ekkert á kröfugerð þess
fyrir kjarasamninga, sem einmitt
taka að losna í hrönnum um svipað
leyti.
Áfram fækkar heldur í þjóðkirkj-
unni, en í henni eru nú 228.205 sálir.
Næstflestir eru í katólska söfn-
uðinum eða 14.710. Hlutfallslega
fjölgaði mest í söfnuði múslima, en
einnig geta bókstafstrúaðir trúleys-
ingjar í Siðmennt verið sáttir við
boðun safnaðar síns.
. . .
Söluferlið á Mílu, sem Síminn vill
selja franska fjárfestingafélaginu
Ardian, er komið í pattstöðu vegna
einstrengingslegrar afstöðu Sam-
keppniseftirlitsins. Þar ræðir um
stærstu erlendu fjárfestingu hér á
landi um langa hríð og mikið í húfi.
Ástandið í Garðabæ er nánast eins
og í myndinni Birds eftir Alfred
Hitchcock, þar sem mávar halda
vöku fyrir fólki með gargi og ráðast
að sögn að fólki. Almar Guð-
mundsson bæjarstjóri hyggst
skera upp herör gegn þeim, þó að-
eins utan friðlanda í bæjarlandinu.
Þrátt fyrir að fjöldi íslenskra lækna
sé mikill, þá eru færri að störfum en
þyrfti, álagið mikið og þjónustan
minni en rétt væri.
Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR)
hafa samið við eitt sætsta olíufyrir-
tæki Indlands um að bora eftir
jarðvarma í Himalajafjöllum í
Kasmír. Vonast þær til þess að því
fylgi fleiri verkefni á Indlandi.
Leitað var að sjósundsmanni út af
Akranesi, en hann fannst síðar lát-
inn.
Eiríkur Guðmundsson útvarps-
maður lést, aðeins 52 ára að aldri.
. . .
Drífa Snædal forseti ASÍ tilkynnti
fyrirvaralaust afsögn sína og
kvaðst ekki geta setið undir eilífum
árásum samherja sinna og vísaði
þar sérstaklega til Ragnars Þórs
Ingólfssonar formanns VR og Sól-
veigar Önnu Jónsdóttur formanns
Eflingar, sem fögnuðu afsögninni
og sendu henni tóninn.
Afsögnin kom flatt upp á marga
enda stutt í kjarasamninga. And-
stæðingar Drífu telja sig vera rót-
tækari, sem tæplega á að koma á
óvart þegar yfirlýstur stalínisti eins
og Sólveig Anna á í hlut. Þau eru
jafnframt óbilgjarnari eins og sést á
því að farið er að hóta verkföllum
þótt ekki sé farið að semja og raun-
ar ekki komin fram kröfugerð.
Hins vegar var því fagnað á vinnu-
markaði að nú er minnsta atvinnu-
leysi hér á landi í 40 mánuði, en það
var aðeins 3,2% á landsvísu í liðnum
mánuði.
Undirbúningur skólagöngu barna á
flótta er hafinn, en Óttar Proppé fv.
ráðherra leiðir þá vinnu af hálfu rík-
isins. Flóttabörn á grunnskólaaldri
eru um 300 talsins, en um 130 á
framhaldsskólaaldri.
Upplausn ríkir á Seltjarnarnesi, þar
sem 6,1 milljónar króna bjórkælir í
Vínbúðinni á Eiðistorgi, sem settur
var upp fyrir ári, hefur enn ekki ver-
ið settur í samband og bjórinn því
volgur. Nágrannar kvörtuðu á sínum
tíma undan hávaða frá kælinum, en
svo kom í ljós að ríkið hafði ekki leyfi
fyrir honum.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
kom því loks í verk að endurnefna
reit við Garðastræti Kænugarð, sem
Eyþór Arnalds lagði til í borgar-
stjórn í byrjun mars, en var sam-
þykkt í lok apríl eftir frestun meiri-
hlutans. Dagur boðaði ljósmyndara á
staðinn en bauð Eyþóri ekki.
. . .
Fjöldi foreldra mótmælti við Ráð-
húsið vegna vanefnda á loforðum
Dags B. Eggertssonar borgarstjóra
og meirihluta hans um leikskólavist
allra ársgamalla barna. Dæmi eru
um að foreldrar taki sér launalaust
leyfi af þeim sökum.
Árelía Eydís Guðmundsdóttir, nýr
borgarfulltrúi Framsóknarflokksins
og nýbakaður formaður skóla- og frí-
stundasviðs Reykjavíkurborgar,
mótmælti sjálfri sér og meirihlut-
anum af miklum krafti í fjölmiðlum.
Sagði hún „ástandið á leikskólakerf-
inu […] óásættanlegt“ og fagnaði því
að foreldrar úthúðuðu sér og meiri-
hlutanum.
Starfsmenn í hvalstöðinni í Hval-
firði tóku dróna svissnesks ríkisfjöl-
miðils traustataki, en hann var not-
aður til myndatöku úr lofti yfir
stöðinni, en mun nær henni og lægra
en lög kveða á um. Þeir vildu ekki
láta hann af hendi nema lögregla
rannsaki málið til hlítar.
Samherjafjórmenningarnir, fjórir
starfsmenn þriggja fjölmiðla, voru
kallaðir til skýrslutöku hjá lögreglu á
Akureyri á ný. Þeir hafa stöðu grun-
aðs manns vegna stuldar á síma og
dreifingar á stafrænum gögnum um
ströng einkamál, sem á honum voru.
Fram þjáðir
forsetar ASÍ
Þrátt fyrir lokanir og misjöfn veður vantaði ekki ferðalangana við eldgosið í Meradölum, unga sem aldna, innlenda sem
erlenda. Það var enda eini staðurinn á Íslandi þar sem hnattrænnar hlýnunar gætti þessa vikuna.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
7.8.-12.8.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is