Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Side 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Side 6
VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.8. 2022 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda. B iden forseti BNA nefndi hvorki auga fyrir auga né tönn fyrir tönn en það var þó inntakið í ávarpi hans frá Hvíta hús- inu hinn fyrsta ágúst síðastliðinn þar sem hann sagði: „Bandaríkin munu tortíma hverjum þeim sem þjóð okk- ar stafar ógn af. Og svo bætti hann því við að vafalaust muni nýafstaðin aftaka sefa sorg margra: „Ég ber þá von í brjósti að þessi markvissa að- gerð verði til þess að þau, sem misstu feður og mæður, eiginmenn og eiginkonur, syni og dætur, bræð- ur og systur, vini og samstarfsmenn þennan nístandi septemberdag, komist nú nær því að öðlast hugarró. Hinn sári septemberdagur var ell- efti september árið 2001 þegar Tví- buraturnarnir í New York voru jafn- aðir við jörðu með þeim afleiðingum að þrjú þúsund manns létu lífið. Og hin „markvissa aðgerð“ sem for- seti Bandaríkj- anna gladdist nú yfir var aftaka æðsta foringja Al Queda, Aymans al-Zawahiri, sem forsetinn sagði að hefði ásamt Osama bin Laden skipu- lagt þetta hryðjuverk og fleiri slík. Fyrir ellefu árum hafi „réttlætið náð“ til Osamas og nú hefði réttlæti bandarísku leyniþjónustunnar náð til þessa manns einnig. Fram kom í fréttum að það hefði gerst með hárnákvæmri drónaárás með skurð- arhnífum sem skorið hefði manninn í sneiðar. Hann væri nú endanlega úr sögunni, sagði Joe Biden Banda- ríkjaforseti og að þar með væri rétt- lætinu fullnægt. Sitthvað fleira sagði hann í ávarpi sínu, svo sem að nú þyrfti ekki leng- ur „þúsundir hermannaklossa“ á af- ganskri grund. Bandarískur her hefði verið kallaður heim frá Afgan- istan enda Bandaríkjunum ekki ógn- að lengur úr þeirri átt. Með öðrum orðum, refsivöndurinn hefði haft sitt að segja, auga fyrir auga, tönn fyrir tönn. En hverjar skyldu vera afleið- ingar þessarar aðferðafræði í mannslífum og dollurum talið? Brownháskólinn í Bandaríkjunum hefur unnið ítarlegar skýrslur um „the cost of the post 9/11 wars“ þar sem afleiðingar stríðsreksturs Bandaríkjanna gegn „ógn við banda- ríska hagsmuni“ frá þessum tíma eru tíundaðar. Mannslífin eru að mati rannsakenda rúmlega 900 þús- und og er þá ekki talið allt það fólk sem dáið hefur af afleiddum orsök- um beinna stríðsátaka; 37 milljónir hraktar á flótta og kostnaðurinn í óskiljanlegum upphæðum, átta þús- und milljarðar dollara. Hagsmunir auðvaldsheimsins kunna að hafa verið tryggðir með þessari aðferð. En skyldi heimurinn og við öll sem hann byggjum vera öruggari fyrir vikið? Ekki hefði Jesús Kristur talið svo vera. „Rísið ekki gegn þeim, sem gerir yður mein. Nei, slái einhver þig á hægri kinn, þá bjóð honum einnig hina.“ Þessi orð úr Mattheus- arguðspjalli hafa löngum orðið mönnum umhugsunarefni. Sjálfur hef ég átt erfitt með að kyngja þeim enda heitfengari en svo og auk þess ekki mikið fyrir það gefinn að bjóða hinn vangann. Í mér, sem sennilega okkur öllum, hefur þó blundað sá skilningur að hefnigirni sé aldrei til góðs. Eflaust er þetta hluti af upp- eldi okkar og hver veit nema þessi boðskapur úr guðspjallinu og þær grundvallarspurningar sem hann vekur hafi haft sín áhrif. Kristnir menn tala annars vegar um lögmálið og hins vegar fagnaðar- erindið. Lög- málið sé að finna í gömlum trúar- og siða- boðskap en fagnaðarerindið í hinu Nýja testamenti. Lögmálið segir eitthvað á þessa leið: Við erum af jörðinni komin og við verðum að hlíta lögmálum hennar til að halda reglu í samfélagi mannanna. Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn er rétt- lætisyfirlýsing lögmálsins. Handhafi valdsins hefur rétt fyrir sér. Valdið hefur rétt fyrir sér. Hefndin er rétt- læti og hefndin er réttlát. En hvert er þá fagnaðarerindið? Það segir að maðurinn þurfi ekki að láta lögmálið kúga sig að eilífu, hann geti hafið sig upp yfir hlutskipti sitt og sigrast á kringumstæðum sínum, náð valdi á sjálfum sér, á samfélag- inu og á heiminum. Það gerist þegar lögð er rækt við þá samkennd þar sem hver og einn sér sig í öðrum: „Það sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður skuluð þér og þeim gjöra.“ Viðbragðið verður þá með öðrum orðum ekki að beita vopni sem tortímir og deyðir heldur verð- ur það kærleikurinn og traust á hon- um. Kristnir menn segja að Jesús hafi verið sendur á vettvang til að færa okkur þessar fréttir. Þetta er boð- skapur sem ekki er auðvelt að með- taka. Þó hef ég grun um að flestir muni skilja, í það minnsta innst inni, hve varasamt það er þegar hið gagn- stæða er sagt; hve hættuleg réttlæt- ing hefndarinnar gæti reynst okkur mönnunum ef heimurinn allur gerði hana að sinni: Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn. Ef allur heim- urinn heimtar auga fyrir auga Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is ’ Hagsmunir auð- valdsheimsins kunna að hafa verið tryggðir með þessari aðferð. En skyldi heimurinn og við öll sem hann byggjum vera öruggari fyrir vikið? FINNA.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.