Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Page 6
VETTVANGUR
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.8. 2022
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI
Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn
og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda.
B
iden forseti BNA nefndi
hvorki auga fyrir auga né
tönn fyrir tönn en það var þó
inntakið í ávarpi hans frá Hvíta hús-
inu hinn fyrsta ágúst síðastliðinn þar
sem hann sagði: „Bandaríkin munu
tortíma hverjum þeim sem þjóð okk-
ar stafar ógn af. Og svo bætti hann
því við að vafalaust muni nýafstaðin
aftaka sefa sorg margra: „Ég ber þá
von í brjósti að þessi markvissa að-
gerð verði til þess að þau, sem
misstu feður og mæður, eiginmenn
og eiginkonur, syni og dætur, bræð-
ur og systur, vini og samstarfsmenn
þennan nístandi septemberdag,
komist nú nær því að öðlast hugarró.
Hinn sári septemberdagur var ell-
efti september árið 2001 þegar Tví-
buraturnarnir í New York voru jafn-
aðir við jörðu með þeim afleiðingum
að þrjú þúsund
manns létu lífið.
Og hin „markvissa
aðgerð“ sem for-
seti Bandaríkj-
anna gladdist nú
yfir var aftaka
æðsta foringja Al
Queda, Aymans
al-Zawahiri, sem
forsetinn sagði að
hefði ásamt Osama bin Laden skipu-
lagt þetta hryðjuverk og fleiri slík.
Fyrir ellefu árum hafi „réttlætið
náð“ til Osamas og nú hefði réttlæti
bandarísku leyniþjónustunnar náð
til þessa manns einnig. Fram kom í
fréttum að það hefði gerst með
hárnákvæmri drónaárás með skurð-
arhnífum sem skorið hefði manninn í
sneiðar. Hann væri nú endanlega úr
sögunni, sagði Joe Biden Banda-
ríkjaforseti og að þar með væri rétt-
lætinu fullnægt.
Sitthvað fleira sagði hann í ávarpi
sínu, svo sem að nú þyrfti ekki leng-
ur „þúsundir hermannaklossa“ á af-
ganskri grund. Bandarískur her
hefði verið kallaður heim frá Afgan-
istan enda Bandaríkjunum ekki ógn-
að lengur úr þeirri átt. Með öðrum
orðum, refsivöndurinn hefði haft sitt
að segja, auga fyrir auga, tönn fyrir
tönn.
En hverjar skyldu vera afleið-
ingar þessarar aðferðafræði í
mannslífum og dollurum talið?
Brownháskólinn í Bandaríkjunum
hefur unnið ítarlegar skýrslur um
„the cost of the post 9/11 wars“ þar
sem afleiðingar stríðsreksturs
Bandaríkjanna gegn „ógn við banda-
ríska hagsmuni“ frá þessum tíma
eru tíundaðar. Mannslífin eru að
mati rannsakenda rúmlega 900 þús-
und og er þá ekki talið allt það fólk
sem dáið hefur af afleiddum orsök-
um beinna stríðsátaka; 37 milljónir
hraktar á flótta og kostnaðurinn í
óskiljanlegum upphæðum, átta þús-
und milljarðar dollara.
Hagsmunir auðvaldsheimsins
kunna að hafa verið tryggðir með
þessari aðferð. En skyldi heimurinn
og við öll sem hann byggjum vera
öruggari fyrir vikið?
Ekki hefði Jesús Kristur talið svo
vera. „Rísið ekki gegn þeim, sem
gerir yður mein. Nei, slái einhver
þig á hægri kinn, þá bjóð honum
einnig hina.“ Þessi orð úr Mattheus-
arguðspjalli hafa löngum orðið
mönnum umhugsunarefni. Sjálfur
hef ég átt erfitt með að kyngja þeim
enda heitfengari en svo og auk þess
ekki mikið fyrir það gefinn að bjóða
hinn vangann. Í mér, sem sennilega
okkur öllum, hefur þó blundað sá
skilningur að hefnigirni sé aldrei til
góðs. Eflaust er þetta hluti af upp-
eldi okkar og hver veit nema þessi
boðskapur úr guðspjallinu og þær
grundvallarspurningar sem hann
vekur hafi haft sín áhrif.
Kristnir menn tala annars vegar
um lögmálið og hins vegar fagnaðar-
erindið. Lög-
málið sé að
finna í gömlum
trúar- og siða-
boðskap en
fagnaðarerindið
í hinu Nýja
testamenti.
Lögmálið segir
eitthvað á þessa
leið: Við erum af
jörðinni komin og við verðum að
hlíta lögmálum hennar til að halda
reglu í samfélagi mannanna. Auga
fyrir auga og tönn fyrir tönn er rétt-
lætisyfirlýsing lögmálsins. Handhafi
valdsins hefur rétt fyrir sér. Valdið
hefur rétt fyrir sér. Hefndin er rétt-
læti og hefndin er réttlát.
En hvert er þá fagnaðarerindið?
Það segir að maðurinn þurfi ekki að
láta lögmálið kúga sig að eilífu, hann
geti hafið sig upp yfir hlutskipti sitt
og sigrast á kringumstæðum sínum,
náð valdi á sjálfum sér, á samfélag-
inu og á heiminum. Það gerist þegar
lögð er rækt við þá samkennd þar
sem hver og einn sér sig í öðrum:
„Það sem þér viljið að aðrir menn
gjöri yður skuluð þér og þeim
gjöra.“ Viðbragðið verður þá með
öðrum orðum ekki að beita vopni
sem tortímir og deyðir heldur verð-
ur það kærleikurinn og traust á hon-
um.
Kristnir menn segja að Jesús hafi
verið sendur á vettvang til að færa
okkur þessar fréttir. Þetta er boð-
skapur sem ekki er auðvelt að með-
taka.
Þó hef ég grun um að flestir muni
skilja, í það minnsta innst inni, hve
varasamt það er þegar hið gagn-
stæða er sagt; hve hættuleg réttlæt-
ing hefndarinnar gæti reynst okkur
mönnunum ef heimurinn allur gerði
hana að sinni: Auga fyrir auga, tönn
fyrir tönn.
Ef allur heim-
urinn heimtar
auga fyrir auga
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@ogmundur.is
’
Hagsmunir auð-
valdsheimsins kunna
að hafa verið tryggðir
með þessari aðferð. En
skyldi heimurinn og við
öll sem hann byggjum
vera öruggari fyrir vikið?
FINNA.is