Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Page 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Page 12
VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.8. 2022 Erfitt getur verið að sleppa takinu af því sem byggt hefur verið upp og var vel gert. Átökin snérust að mestu um hugmyndir og völd, svo sem hvernig samtökunum er stjórnað. Þegar umræðan er farin að snúast um persónur, en ekki hlutverk SÁÁ, þá erum við farin af leið. SÁÁ á ekki að snúast um persónur.“ Á Önnu má þó auðveldlega heyra að hún er sátt við andrúmsloftið innan SÁÁ um þessar mundir og hún er bjartsýn á framhaldið. „Innan SÁÁ er afskaplega gott andrúmsloft. Hér er fólk að vinna sína vinnu í ró og næði og við erum að hjálpa fólki. Á sama tíma erum við að skoða hvort við getum gert betur eða gert hlutina á einhvern annan hátt. Markmiðið er að veita sem flestum aðstoð sem á þurfa að halda. Þá þurfum við að þora og geta skoðað okkur sjálf. Erum við á réttri leið eða þurfum við að laga eitthvað? Alkóhólistinn á auðvelt með að benda á aðra en þegar á reynir þarf hann sjálf- ur að takast á við vandann. Það verður enginn edrú fyrir hann,“ segir Anna og leggur áherslu á að fólk í forystu SÁÁ megi ekki vera við- kvæmt fyrir uppbyggilegri gagnrýni. „Það má alveg gagnrýna okkur. Við þurfum að hlusta á slíkar raddir og vera tilbúin til að leita ráða hjá öðrum. Það er hluti af bata að geta fengið visku annarra að láni.“ Byggjum á góðum grunni Að mati Önnu Hildar stendur SÁÁ nú á tíma- mótum og það eigi við um fleiri sem sinni ýmiss konar þjónustu. „Það eru ákveðin tímamót í allri þjónustu. Við, sem vinnum við að aðstoða fólk, þurfum að vinna meira saman. Að við, félagsþjónustan og Landspítalinn séum ekki hvert í sínu horni, án þess að tala saman. Við þurfum að vinna að meiri samþættingu. Í mínum huga verður þessi málaflokkur alltaf þyngri og þyngri en peningarnir vaxa ekki á trjánum. Við þurfum því að velta fyrir okkur hvernig hægt sé að veita þjónustuna á hagkvæmari hátt. Auðvitað myndi maður vilja fá meira fjármagn en stað- an er ekki sú og maður áttar sig á því,“ segir Anna. Hún vill koma því skýrt á framfæri að um leið og hún hugsi til framtíðar, þá ber hún mikla virðingu fyrir sögu SÁÁ og því starfi sem þar hefur verið unnið í áratugi. „Við stöndum á tímamótum. Samtökin hafa vaxið og dafnað í fjörutíu og fimm ár. Hér hef- ur verið unnið frumkvöðlastarf og þvílík helj- armenni sem það voru sem komu samtökunum á þennan stað. Fyrir vikið er spennandi að vinna með það sem við höfum, því við byggjum á góðum grunni. Hér er mikil þekking til stað- ar og nú þurfum við að ákveða hvernig við vilj- um vinna. Það er svo mikið að gerast í sam- félaginu og breytingarnar eru svo hraðar. Erum við í takti við tímann?“ Í því felst að fulltrúar SÁÁ eru í viðræðum við heilbrigðisráðuneytið, ásamt því að vinna að stefnumótun innan samtakanna. „Við eigum í samtali við ríkið um það. Við heyrum greinilega á heilbrigðisyfirvöldum að þau vilja okkur vel og vilja að við séum til stað- ar. Innan samtakanna hófst greiningarvinna hér innanhúss fyrir aðalfundinn í sumar. Við höfðum einnig verið í umbótavinnu til að gera vinnuumhverfið betra, vegna þess að þetta er auðvitað álagsvinna. Þá vorum við í umbóta- vinnu frá botninum og erum nú í umbótavinnu frá toppnum, þar sem lykilstjórnendur og fólk úr stjórninni fundaði. Nú hefur framkvæmdahópum verið falið að vinna að ákveðnum verkefnum,“ segir Anna Hildur. Ekki er tímabært að greina frekar frá fyrir- ætlunum SÁÁ að hennar sögn en stefnt er að því að gera það á afmæli SÁÁ í október. Þá verður einnig málþing, þar sem fleiri munu koma að borðinu til að ræða meðferðarmálin. Málaflokkurinn verður æ þyngri Síðustu tvö árin hafa litast mjög af heimsfar- aldrinum og þeim áhrifum sem hann hafði á samskipti fólks. Fyrirtæki, stofnanir og fé- lagasamtök fóru ekki varhluta af því. Hvaða áhrif hafði heimsfaraldurinn á starfsemina? „Hann hafði mjög mikil áhrif á okkur eins og alla aðra. Við þurftum að vera í takti við reglur og viðmið sem voru í gangi. Allir sem komu inn á Vog voru skimaðir fyrir veirunni. Fólk var meira í húsi og meðferðarheldnin var því meiri í faraldrinum heldur en áður. Einnig skiluðu fleiri sér í eftirmeðferðina á Vík. Eitt af því sem kom út úr kórónuveirunni var að fólk gat komið hingað í grunnmeðferð í Efstaleitið í stað þess að allir þyrftu að fara á Vog. Eins og allir, þurftum við að nota búnað til að halda fjarfundi en við eigum eftir að ná samningum við Sjúkratryggingar Íslands um það til fram- tíðar,“ segir hún. „Ég myndi því segja að við höfum lært eitt og annað á þessu. Faraldurinn hafði gífurleg áhrif á okkur en við erum að komast út úr því eins og allir aðrir. Nú eru hlutirnir að komast á sama snúning og var áður. Nú vilja allir gera svo mikið og þetta virkar á mann eins og ákveðin taugaveiklun hjá fólki. Okkur finnst við hafa misst af svo miklu síðustu tvö árin. Við þurfum að æfa okkur í því að vera betri hvert við annað. Við skulum ekki gleyma því. Við vorum svolítið góð hvert við annað í kórónu- veirunni. Við þurfum að halda því áfram en ekki vera svona grimm. Það er alla vega mín skoðun.“ Anna minntist á samningaviðræður við Sjúkratryggingar Íslands. Er hún ánægð með rekstrar- og starfsumhverfið eins og það er um þessar mundir? „Við erum í viðræðum við SÍ um einn heildar- samning um alla þjónustu í stað fjögurra samn- inga um þjónustuna. Síðast var samið fyrir nokkrum árum en þjónustan hjá okkur hefur breyst, vegna þess að neyslan hefur breyst. Til dæmis erum við með samning um að taka við ungmennum undir 18 ára aldri en neyslan hjá þeim hópi hefur sem betur fer minnkað mikið. Þau eiga heldur ekki heima inni á Vogi, þar sem um er að ræða barna- verndarmál. Samningur SÁÁ við SÍ þarf því að vera í takti við það sem er að gerast hverju sinni. Þessi málaflokkur verður æ þyngri og kostnaðarsamari. Við viljum að okkur sé treyst til að skipuleggja þjónustuna út frá þeim fjár- munum sem við höfum úr að spila. Við erum sér- fræðingarnir og viljum veita góða þjónustu. Ég er sátt við þá upphæð sem við höfum fengið en auðvitað væri alltaf hægt að nýta meira fjármagn til góðs. Það sem ég myndi helst vilja sjá, væri að fjármagnið sem við fáum frá Sjúkratrygg- ingasjóði myndi dekka reksturinn á Vogi, vegna þess að SÁÁ borgar 250 milljónir á ári með Vogi. Sjálfsaflafé okkar væri þá hægt að nota til að fjármagna aðra þjónustu eins og göngudeild- arúrræði. Það væri draumurinn,“ útskýrir Anna. Ofneyslu fylgja vandamál Miklar breytingar hafa orðið á framboði á áfengi á Íslandi og ekki síst á höfuðborg- arsvæðinu. Sérstaklega ef horft er allmörg ár aftur í tímann. Fjöldi veitingastaða er mun meiri. Stöðum með vínveitingaleyfi hefur fjölg- að mjög, hægt er að panta áfengi af netsíðum og verslunum Áfengis- og tókasverslunar rík- isins hefur fjölgað og opnunartíminn er rýmri en á árum áður. Anna segir að afleiðingar fylgi auknu aðgengi að áfengi og þá hljóti ríkið að styrkja löggæslu og heilbrigðisþjónustu. „Átta yfirvöld sig á því að hvað gerist með því að opna svona mikið fyrir áfengissölu? Með auknu aðgengi að áfengi, eykst neysla. Þegar neysla eykst þá eykst ofbeldi og félagslegum vandamálum fer fjölgandi. Hvernig ætla þá yf- irvöld að bregðast við því? Allt helst þetta í hendur. Ég skil sjónarmiðin um aukið frelsi. Fleiri fara hins vegar illa með áfengi en þeir sem fara vel með áfengi. Ég tel því að með auknu aðgengi þurfi ríkið að styrkja löggæslu, styrkja heilbrigðiskerfið og félagslega kerfið. Kostnaður fylgir áfengisneyslu. Þetta kostar vanlíðan hjá börnum sem fullorðnum. Maður opnar varla Moggann á mánudagsmorgni eða stillir á RÚV án þess að heyra að brjálað hafi verið að gera hjá löggunni um helgar. Gerist slíkt þar sem áfengisneysla er minni? Nei, þá er nefnilega rólegra.“ Spurð um aðkomu ríkisins að áfengissölunni segist Anna Hildur vera nokkuð sátt við fyr- irkomulagið eins og það er. „ÁTVR er með rosalega marga útsölustaði og aðgengi að áfengi er auðvelt á Íslandi. Ríkið er opið til átta sums staðar og barirnir eru jú opnir eftir að ríkið lokar. Að drekka einn heima hjá sér er ekki sérlega hollt og gott. Ég er þá hlynntari því að fólk fari út, borði góðan mat og geri sér glaðan dag. Neysla áfengis í hófi getur verið skemmtileg fyrir fólk en það eru svo margir í of- neyslu og ofneysla áfengis er því vandamál. Áfengisverslanirnar eru opnar sex daga vik- unnar og má ekki einn dagur, sunnudagurinn, bara vera heilagur? Mér finnst það bara nota- legt. Ég er mjög hrifin af mörgu á Spáni. Þeg- ar ég bjó þar, þá voru allar búðir lokaðar á sunnudögum og það var þægilegt. Þá var það bara frídagur frá öllu. Við erum orðin svo mik- ið neyslusamfélag að það þarf allt að vera hægt um leið. Við lifum svo hratt og þurfum að geta gert allt strax.“ Finnur fyrir velvilja hjá almenningi Anna Hildur leggur áherslu á mikilvægi SÁÁ fyrir landsmenn. Hún segir fróðlegt að hlýða á lýsingar af því hvernig hér hafi verið um að lit- ast fyrir fólk með fíknivanda, áður en samtökin voru stofnuð. SÁÁ hafi reynst íslensku þjóð- inni vel og mikilvægi samtakanna sé síst minna nú en áður. „Þessi samtök eru mikilvæg fyrir okkur Ís- lendinga en yngri kynslóðir þekkja ekki endi- lega hvernig ástandið var áður en þau voru stofnuð. Með tilkomu SÁÁ hafa hlutirnir breyst gífurlega, enda eru samtökin leiðandi í þessum málum á Íslandi. Við getum til dæmis verið sneggri að bregðast við þegar breytingar verða á neyslu, heldur en til dæmis Landspít- alinn, þar sem hlutirnir eru þyngri í vöfum. Eftirspurnin eftir meðferð er til staðar og bið- tíminn hjá okkur er um það bil fimmtíu dagar. En hann er styttri fyrir ungmenni og við vissar félagslegar kringumstæður.“ SÁÁ reiðir sig á stuðning almennings að hluta til og mikilvægt sé fyrir þjóðina að vita fyrir hvað þau standa þegar þau safna fé að sögn Önnu. „Fólk heldur vonandi áfram að treysta okkur fyrir þessu verkefni, enda erum við að vinna með líðan og framtíð fólks. Við viljum hjálpa fólki að hætta í neyslu og aðstoða aðstandendur. Þá skiptir máli að gera vel og þar af leiðandi er afar mikilvægt fyrir okkur að njóta trausts hjá almenningi,“ segir Anna og spurð um hvort hún finni fyrir velvilja hjá al- menningi, segir hún svo vera. „Já. Sjálf tek ég alltaf þátt í að selja álfinn fyrir norðan. Þá finnur maður fyrir stuðningi og margir kaupa alltaf álfinn þegar hann er í sölu. Enda má segja að flestir ef ekki allir Ís- lendingar þekki einhvern sem hefur þurft á einhverju að halda frá okkur. Fíkn spyr ekki um stétt eða stöðu eins og þekkt er. Maður veit aldrei hver þarf á aðstoð að halda og því skiptir máli að hún sé í boði og sé aðgengileg,“ segir Anna Hildur Guðmundsdóttir. ’ Það má alveg gagnrýna okkur. Við þurfum að hlusta á slíkar raddir og vera tilbúin til að leita ráða hjá öðr- um. Það er hluti af bata að geta fengið visku annarra að láni. Anna Hildur í höf- uðstöðvum SÁÁ í Reykjavík. Morgunblaðið/Eggert Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann voru stofnuð 7. október árið 1977 og eiga því 45 ára afmæli í haust. „Þá ætlum við að halda afmæl- ishátíð í Háskólabíói eins og var alltaf gert hérna áður fyrr. Við ætl- um að endurtaka leikinn og fylla Háskólabíó. Til stendur að heiðra gott fólk og vera með veglega skemmtidagskrá. Vonandi verður það góður dagur og í framhaldinu getum við stefnt að því að halda upp á fimmtugsafmælið á veglegan hátt. Um þessar mundir erum við einmitt að velta fyrir okkur hvern- ig við viljum sjá starf SÁÁ þegar samtökin verða fimmtíu ára. Það eru tímamót og sjálf er ég nýlega orðin fimmtug,“ segir formaðurinn Anna Hildur Guðmundsdóttir. Eins og fram kemur í viðtalinu, þá verður einnig haldið málþing í tengslum við afmæli SÁÁ í októ- ber. Hátíð í haust

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.