Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.8. 2022 S tundum eru sum tiltækin sem skyndi- lega verða frétt handan við mörk sem við náum í. Fyrir örfáum dögum var sérstök sómakona, Guðrún Valdimarsdóttir, kvödd eftir langa og hlýlega viðveru hér. Þá birtist frétt um að brjóstmynd af bróður hennar, löngu látnum, prýðilegu sómaskáldi, var felld af lágum stalli af ástæðulausu. Hún var ekki fyrir neinum, og skyggði ekki á nokkurn mann eða hlut, nema síður sé. Það getur enginn hafa átt neitt þvíumlíkt óuppgert við Þorstein Valdimarsson og varla vitað hver hann var. Fyrir áratugum hét frægur erkiklerkur háum verðlaunum ef skáldverkamanni, sem hafði móðgað hann og söfnuð hans, yrði komið fyrir. Vill ekki sá sem skyndilega réð ekki við sig þarna í skógar- þykkninu vera svo notalegur á ný, að koma bústunni af skáldinu á sinn stað og þá skulum við hin skjóta saman í að koma henni á stallinn og gleyma þessu galgopans glappaskoti. Pelosí sprengir Kínverja Veröldin er flókin og fátt sem sýnist. Og er sama hvert horft er. Kínverjar eru rasandi reiðir yfir því að leiðtogi fulltrúadeildar í Bandaríkjunum, Nancy Pelosi, skyldi leggja upp í ferð um Asíu og drepa tá niður í Taívan í meintu heimildarleysi. Bandarískir stjórnmálamenn hafa lengi fundið vel til sín, sem ekki er að undra þegar stórveldi á borð við þeirra á í hlut. Lengi vel eina stórveldið, en efasemdir hafa vaknað. Og þegar ferð frú Pelosi er útskýrð fyrir útlendingum sem aldrei hafa heyrt hennar getið er því haldið á lofti að leiðtogi meiri- hlutans í fulltrúadeild þingsins sé embættislega hinn þriðji í bandarískri goggunarröð. Og þótt bandarískir þingmenn séu ekki neinir þungavigtar- menn í utanríkismálum og sinni aðallega karpi sem snertir héruðin þeirra er goggunarröðin ein sú stærsta í heimi. Forsetinn er þar fremstur, þótt hann kalli sjálfan sig iðulega varaforsetann af gömlum vana, þá hefur Kamala Harris bréf upp á það að hún sé varaforsetinn og taki við keflinu. Kafni Harris óvænt úr flissi eða af öðrum alvarlegri ástæðum, þvert á okkar vonir og væntingar, þá væri komið að Pelosi. Og þá gætu repúblikanar hætt að hlakka til þess þegar Biden væri kominn á níræðisaldur, því að Pelosi, þriðja í goggunarröð- inni, hefur löngu gengið frá því. Hún varð 82 ára í nýliðnum mars. Biden fól varaforsetaefni sínu for- ystu í nokkrum málaflokkum, en þó ekki endilega til þess að setja þau mál á oddinn, eins og stundum hefur tíðkast þar vestra. Stýrir því en hefur aldrei séð það Þannig var Kamölu Harris falin pólitísk yfirstjórn á uppnáminu á suðurlandamærum Bandaríkjanna, en ekki er ofmælt að „stjórn Bidens“ og Harris (sú myndi flissa núna) hefur stefnt landamærunum endi- löngum í fullkomið óefni vegna stjórnleysis í stóru og smáu. En Kamala Harris hefur ekki enn gefið sér tíma til að kíkja við á landamærunum þar sem þúsundir ólöglegra manna fara yfir á hverjum einasta degi og stappa nú nærri tveimur milljónum síðan núverandi forseti og varaforseti, yfirstjórnandi málaflokksins, settust í stólana. Ríkisútvarpið (RÚV) tilkynnti raunar í fréttum fyrir svo sem ári, og hefur ekki enn leiðrétt, að Harris hefði loks látið undan þrýstingi og farið í rannsóknarleiðangur að landamærunum. Á daginn kom að Harris hafði reyndar heimsótt Gvate- mala, sem er í órafjarlægð frá bandarísku landa- mærunum, þótt bæði henni og „RÚV“ væri ókunnugt um það. Þegar tilkynnt var fyrir nokkrum mánuðum að Harris væri á leið til Evrópu spurði Lester Holt, þekktur fréttamaður á NBC-fréttastöðinni, en sú er raunar mjög trúr fylgifiskur demókrata, og ein af fréttastöðvakórnum sem fara eins og dúkkur með aðsend svör, öll eins, þegar flokkurinn þeirra lendir í vandræðum. Er næstum því óþægilegt að fylgjast með því. En vegna Evrópufréttarinnar spurði Holt Harris varaforseta hvers vegna hún hefði aldrei sótt suður- landamærin heim, þau væru jú sérstakt verkefni hennar, svaraði hún: „Ég hef heimsótt þau.“ Holt: „Nei, þú hefur ekki heimsótt þau.“ Harris: „Ég hef víst heimsótt þau.“ Holt: „Nei, þú hefur ekki heimsótt þau.“ Harris: „Ég hef ekki heldur heimsótt Evrópu!“ Aldur er eitt, heilsutap annað Sjálfsagt eru mörg undarleg fréttaviðtöl við stjórn- málamenn til. En þetta var með þeim skrítnari. Ekki síst þegar hugsað er til þess að Harris á að vera viðbúin því að taka við af forseta Bandaríkjanna, sem ekki er lengur deilt um að er sjálfur fjarri því að vera algjörlega með á nótunum. Þar er ekki við manninn að sakast. Aldurinn segir til sín, er stundum sagt, en það er allur gangur á því hvernig slíkt þróast. Kiss- inger er enn sá sem mest vit virðist vera í þegar rætt er um utanríkismál vestra. Hann er 99 ára. Konan, sem er númer þrjú í goggunarröðinni í átt til forsetaskrifstofunnar, Nancy Pelosi, er tæpum þremur árum eldri en Joe Biden, fædd í mars 1940. Hún er harðsnúinn stjórnmálamaður. En það eru ekki pólitískir snúningar hennar sem vekja sífellt meiri athygli síðustu árin, heldur hitt að hún og mað- ur hennar, Paul Pelosi, hafa, samfara pólitíska brall- inu, stundað umfangsmikið hlutafjárbrask, og komið hefur á daginn að þau hjón hafa nýtt sér rækilega að vita á undan öðrum hvers er að vænta um banda- ríska lagasetningu. Og önnur eins uppgrip eru sjald- séð. Svo er komið að þau hjón hafa aurað saman í 300 milljónir dollara sem svara til um 40 milljarða ís- lenskra króna! Nancy tók Paul yngri (hann er liðlega 50 ára) með sér í reisuna til Asíu, en Paul er í per- sónulegum viðskiptum við flest ef ekki öll þau lönd sem þingforsetinn ákvað að sækja heim. Látum heita kartöflu vera, en varla allan pokann Því er hætt við að Hunter Biden, sem kallar ekki allt ömmu sína, og síst þær fraukur sem hann hefur sést með á myndunum undanfarið, sé farinn að finna fyrir öfund. Forstjóri FBI hefur í fórum sínum ófagurt efni og hefur reyndar dregið í tvö ár að gera nokkuð með það. (Var reyndar skipaður í starfið af Donald Það hitnar á ný í kolunum, enda kynt undir ’ Fortíð bankar nú upp á með óþægilegum hætti. Metsöluhafi bóka, Salman Rush- die, gengur upp á svið og launmorðingi með hníf nær að leggja til hans. Þegar þetta er skrifað er ekki ljóst hvernig fer. Höfundurinn hafði á sínum tíma talað óvar- lega í heimi þar sem kimar eru til staðar sem líða ekki slíkt. Reykjavíkurbréf12.08.22

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.