Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Page 17
Trump og telur hann líklegast þá skipan vera sína
aumustu á ferlinum (en aðrir gætu sagt að þetta
væri gott á hann).)
En það er ekki endilega auðvelt eða hættulaust að
sitja á þessum heitu tölvugögnum mikið lengur. Það
fer að verða óverjandi. Látum vera eiturlyfjasukkið
og félagsskapinn og annað sem vart má nefna. En
þegar Hunter ræðir í mynd eða tölvupóstum við
braskfélaga sína um skiptingu gróðans, hvort sem
hann kemur frá Kína, Úkraínu eða annars staðar frá,
versnar málið. Upphæðirnar eru svimandi háar en
virðast grundvallast á því, hver er bróðir og hver er
faðir ættingjanna sem taka þátt í braskinu. Þar er
ekkert falið, svo heitið geti, hver skuli fá hvað í sinn
hlut. Og þegar gerð hefur verið grein fyrir því er
ítrekað að ekki megi gleyma því að „The Big man“
fær alltaf 10 prósentin í sinn hlut! Þetta lá allt fyrir
og var í höndum FBI mörgum mánuðum fyrir kosn-
ingarnar 2020.
En þá var gefin sú skýring að þetta, sem hugsan-
lega væri á diskunum sem alríkislögreglan hefði í
höndum, væri sennilega samsæriskenningar hamr-
aðar saman af Pútín, en ekki hverjum. Þá þegar
hafði FBI tölvur og diska með öllum staðreynd-
unum. En þar sem fyrir lá getgáta, sem ekki mátti
útiloka fremur en endranær, þá var verjandi að
geyma málið þar til síðar. Þetta sitja þeir uppi með
núna.
Og enn skal reynt
Og þegar þetta er skrifað hefur ekki verið dregið
upp úr pokanum hvað það var sem réttlætti innrás
inn á heimili fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, rót-
að í klæðaskáp frúar hans, og allt þetta í fyrsta sinn í
sögunni. Dómsmálaráðherrann er sagður hata
Trump fyrir að stjórna því að bíða skyldi með kynn-
ingu á tillögu Obama um að Merrick Garland yrði
samþykktur í þinginu sem dómari í Hæstarétti
Bandaríkjanna, þar til fyrir lægi hvernig þing yrði
skipað eftir kosningarnar í nóvember 2016. Biden
skipaði svo Garland sem dómsmálaráðherra þegar
hans tími kom. Það verður seint sögð vera velheppn-
uð embættisveiting. Það sem hefur sést til hans síð-
an hefur óneitanlega undirstrikað að sérlega vel fór
þegar hann missti af hæstaréttarstrætó.
Þegar foreldrar mættu á foreldrafundi í bandarísk-
um skólum og andmæltu því að prédikað yrði yfir
smábörnum þeirra um tískubundin undur, svo sem
eins og það, að þau yrðu að hugsa í tæka tíð um
hvort þau vildu frekar vera eitt kyn en annað, á með-
an eitthvað væri hægt að gera í slíku, í stað hefð-
bundinnar kennslu um lestur, reikning og skrift, var
gripið inn í. Dómsmálaráðherrann sagði forstjóra
FBI í kjölfarið að óhjákvæmilegt væri að skilgreina
slík foreldrafélög sem „hryðjuverkasamtök“.
Nú þegar bent er á, vegna nýjustu uppákomu, inn-
rásar inn á heimili fyrrverandi forseta, að yfir 32
milljón skjöl varðandi Obama séu geymd í vöru-
húsum á hans vegum og verði þar uns bókasafn for-
setans verður tilbúið eftir allmörg ár, er því svarað
til að forsetinn sá hafi verið búinn að úrskurða að öll
þau skjöl skyldu ekki lengur teljast ríkisleyndarmál
og gert það í samræmi við allar reglugerðir sem
gilda um þau mál!
Ef það er rétt, þá hefur Obama ekki gert neitt ann-
að á meðan.
Ótvíræður réttur forsetans eins
Réttur forsetans til að afnema leynd yfir skjölum er
ótvíræður. Reglusetningar búrókrata um slík efni
breyta engu um þann veruleika, enda er grunnheim-
ildin beint frá stjórnarskránni komin.
Í þessu sambandi er einnig minnt á að frú Hillary
var með 33.000 leyndarskjöl í skúrnum við heimili
sitt. Hún endaði með því að láta leysa þau skjöl upp í
sýru og brjóta í spað tugi síma sem hún var einnig
með í fórum sínum. Comey, forstjóri FBI, sem var
vel tveggja metra maður og gnæfði yfir allt og alla,
sagði að það væri sitt álit að enginn saksóknari
myndi stefna Hillary vegna þess máls og því hefði
hann lokið því. En vandinn var sá, að Comey hafði
ekki neina valdheimild til að taka slíka ákvörðun,
Hún lá hjá dómsmálaráðherra Bandaríkjanna. Og
það sem verra var, Hillary gat ekki fellt burtu leynd
af skjölum sem hún hafði stolist til að taka með sér
heim úr ráðuneytinu. Eini stjórnnálamaðurinn sem
hefur slíkt vald er forseti Bandaríkjanna. Taki for-
setinn slík skjöl með sér þegar hann fer hefur hann
afnumið þá leynd sem yfir skjölunum var, ef það var
svo.
Venjan í Bandaríkjunum er sú að allt sem sent er
og mótekið af forsetanum er þegar af þeirri ástæðu
merkt sem „trúnaðarmál“. En vissulega eru þaðan af
þýðingarmeiri skjöl merkt sem trúnaðarmál með
stígandi ítrekunum, þar sem hert er á. Séu slík gögn
í fórum fyrrverandi forseta og hafi einhver af því
áhyggjur er sjálfsagt að óska eftir því að þeim verði
komið í skjalavörslu ríkisins. Trump hafði í hópi
vitna sagt við eftirlitsmenn að væri eitthvað í sínum
fórum, sem þeir teldu að ættu ekki að vera þar, þá
skyldu þeir bara nefna það og það yrði þá afhent
þegar í stað. Það þarf að hafa eðlilegan fyrirvara á að
sú fullyrðing sé örugglega rétt. En hafi engin beiðni
borist um slíkt, þá er augljóst að FBI hefur rétt einu
sinni látið undan andúð sinni á forsetanum fyrrver-
andi og ekki heldur staðist þá freistingu að fara í
veiðitúr á heimili hans og vonað það besta! Það fær á
hinn bóginn ekki staðist lagabókstafinn. Það gæti
verið vandinn.
Ónotaleg frétt
Fortíð bankar nú upp á með óþægilegum hætti. Met-
söluhafi bóka, Salman Rushdie, gengur upp á svið og
launmorðingi með hníf nær að leggja til hans. Þegar
þetta er skrifað er ekki ljóst hvernig fer.
Höfundurinn hafði á sínum tíma talað óvarlega í
heimi þar sem kimar eru til staðar sem líða ekki
slíkt. Danskir teiknarar og franskir áttu eftir að
finna fyrir því. Það voru einkum tvær bækur og þó
kannski aðallega ein, Söngvar Satans, sem kölluðu á
hörð viðbrögð. Khomeini erkiklerkur í Íran brást við
og sagði að höfundurinn væri hér eftir réttdræpur.
Hann lagði fé til höfuðs honum, sem fyrir vikið þurfti
að vera í felum árum saman. Síðar skildu menn það
svo, að Khomeini erkiklerkur hefði dregið dauða-
dóminn til baka.
Þeir sem best þekkja til segja margir að bókin sem
gerði höfundinn heimsfrægan hafi ekki verið mjög
aðgengileg lesendum. En Khomeini tryggði henni
prentun í miklu upplagi.
En frægðin og upplagið mikla reyndust dýrkeypt,
hvernig sem þessi allra síðasti kafli þessarar sögu
endar.
Morgunblaðið/Eggert
14.8. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17