Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Síða 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Síða 17
Trump og telur hann líklegast þá skipan vera sína aumustu á ferlinum (en aðrir gætu sagt að þetta væri gott á hann).) En það er ekki endilega auðvelt eða hættulaust að sitja á þessum heitu tölvugögnum mikið lengur. Það fer að verða óverjandi. Látum vera eiturlyfjasukkið og félagsskapinn og annað sem vart má nefna. En þegar Hunter ræðir í mynd eða tölvupóstum við braskfélaga sína um skiptingu gróðans, hvort sem hann kemur frá Kína, Úkraínu eða annars staðar frá, versnar málið. Upphæðirnar eru svimandi háar en virðast grundvallast á því, hver er bróðir og hver er faðir ættingjanna sem taka þátt í braskinu. Þar er ekkert falið, svo heitið geti, hver skuli fá hvað í sinn hlut. Og þegar gerð hefur verið grein fyrir því er ítrekað að ekki megi gleyma því að „The Big man“ fær alltaf 10 prósentin í sinn hlut! Þetta lá allt fyrir og var í höndum FBI mörgum mánuðum fyrir kosn- ingarnar 2020. En þá var gefin sú skýring að þetta, sem hugsan- lega væri á diskunum sem alríkislögreglan hefði í höndum, væri sennilega samsæriskenningar hamr- aðar saman af Pútín, en ekki hverjum. Þá þegar hafði FBI tölvur og diska með öllum staðreynd- unum. En þar sem fyrir lá getgáta, sem ekki mátti útiloka fremur en endranær, þá var verjandi að geyma málið þar til síðar. Þetta sitja þeir uppi með núna. Og enn skal reynt Og þegar þetta er skrifað hefur ekki verið dregið upp úr pokanum hvað það var sem réttlætti innrás inn á heimili fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, rót- að í klæðaskáp frúar hans, og allt þetta í fyrsta sinn í sögunni. Dómsmálaráðherrann er sagður hata Trump fyrir að stjórna því að bíða skyldi með kynn- ingu á tillögu Obama um að Merrick Garland yrði samþykktur í þinginu sem dómari í Hæstarétti Bandaríkjanna, þar til fyrir lægi hvernig þing yrði skipað eftir kosningarnar í nóvember 2016. Biden skipaði svo Garland sem dómsmálaráðherra þegar hans tími kom. Það verður seint sögð vera velheppn- uð embættisveiting. Það sem hefur sést til hans síð- an hefur óneitanlega undirstrikað að sérlega vel fór þegar hann missti af hæstaréttarstrætó. Þegar foreldrar mættu á foreldrafundi í bandarísk- um skólum og andmæltu því að prédikað yrði yfir smábörnum þeirra um tískubundin undur, svo sem eins og það, að þau yrðu að hugsa í tæka tíð um hvort þau vildu frekar vera eitt kyn en annað, á með- an eitthvað væri hægt að gera í slíku, í stað hefð- bundinnar kennslu um lestur, reikning og skrift, var gripið inn í. Dómsmálaráðherrann sagði forstjóra FBI í kjölfarið að óhjákvæmilegt væri að skilgreina slík foreldrafélög sem „hryðjuverkasamtök“. Nú þegar bent er á, vegna nýjustu uppákomu, inn- rásar inn á heimili fyrrverandi forseta, að yfir 32 milljón skjöl varðandi Obama séu geymd í vöru- húsum á hans vegum og verði þar uns bókasafn for- setans verður tilbúið eftir allmörg ár, er því svarað til að forsetinn sá hafi verið búinn að úrskurða að öll þau skjöl skyldu ekki lengur teljast ríkisleyndarmál og gert það í samræmi við allar reglugerðir sem gilda um þau mál! Ef það er rétt, þá hefur Obama ekki gert neitt ann- að á meðan. Ótvíræður réttur forsetans eins Réttur forsetans til að afnema leynd yfir skjölum er ótvíræður. Reglusetningar búrókrata um slík efni breyta engu um þann veruleika, enda er grunnheim- ildin beint frá stjórnarskránni komin. Í þessu sambandi er einnig minnt á að frú Hillary var með 33.000 leyndarskjöl í skúrnum við heimili sitt. Hún endaði með því að láta leysa þau skjöl upp í sýru og brjóta í spað tugi síma sem hún var einnig með í fórum sínum. Comey, forstjóri FBI, sem var vel tveggja metra maður og gnæfði yfir allt og alla, sagði að það væri sitt álit að enginn saksóknari myndi stefna Hillary vegna þess máls og því hefði hann lokið því. En vandinn var sá, að Comey hafði ekki neina valdheimild til að taka slíka ákvörðun, Hún lá hjá dómsmálaráðherra Bandaríkjanna. Og það sem verra var, Hillary gat ekki fellt burtu leynd af skjölum sem hún hafði stolist til að taka með sér heim úr ráðuneytinu. Eini stjórnnálamaðurinn sem hefur slíkt vald er forseti Bandaríkjanna. Taki for- setinn slík skjöl með sér þegar hann fer hefur hann afnumið þá leynd sem yfir skjölunum var, ef það var svo. Venjan í Bandaríkjunum er sú að allt sem sent er og mótekið af forsetanum er þegar af þeirri ástæðu merkt sem „trúnaðarmál“. En vissulega eru þaðan af þýðingarmeiri skjöl merkt sem trúnaðarmál með stígandi ítrekunum, þar sem hert er á. Séu slík gögn í fórum fyrrverandi forseta og hafi einhver af því áhyggjur er sjálfsagt að óska eftir því að þeim verði komið í skjalavörslu ríkisins. Trump hafði í hópi vitna sagt við eftirlitsmenn að væri eitthvað í sínum fórum, sem þeir teldu að ættu ekki að vera þar, þá skyldu þeir bara nefna það og það yrði þá afhent þegar í stað. Það þarf að hafa eðlilegan fyrirvara á að sú fullyrðing sé örugglega rétt. En hafi engin beiðni borist um slíkt, þá er augljóst að FBI hefur rétt einu sinni látið undan andúð sinni á forsetanum fyrrver- andi og ekki heldur staðist þá freistingu að fara í veiðitúr á heimili hans og vonað það besta! Það fær á hinn bóginn ekki staðist lagabókstafinn. Það gæti verið vandinn. Ónotaleg frétt Fortíð bankar nú upp á með óþægilegum hætti. Met- söluhafi bóka, Salman Rushdie, gengur upp á svið og launmorðingi með hníf nær að leggja til hans. Þegar þetta er skrifað er ekki ljóst hvernig fer. Höfundurinn hafði á sínum tíma talað óvarlega í heimi þar sem kimar eru til staðar sem líða ekki slíkt. Danskir teiknarar og franskir áttu eftir að finna fyrir því. Það voru einkum tvær bækur og þó kannski aðallega ein, Söngvar Satans, sem kölluðu á hörð viðbrögð. Khomeini erkiklerkur í Íran brást við og sagði að höfundurinn væri hér eftir réttdræpur. Hann lagði fé til höfuðs honum, sem fyrir vikið þurfti að vera í felum árum saman. Síðar skildu menn það svo, að Khomeini erkiklerkur hefði dregið dauða- dóminn til baka. Þeir sem best þekkja til segja margir að bókin sem gerði höfundinn heimsfrægan hafi ekki verið mjög aðgengileg lesendum. En Khomeini tryggði henni prentun í miklu upplagi. En frægðin og upplagið mikla reyndust dýrkeypt, hvernig sem þessi allra síðasti kafli þessarar sögu endar. Morgunblaðið/Eggert 14.8. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.