Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Qupperneq 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.8. 2022 GOLFVELLIR Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is VATNSVÉLAR, KRANAR OG BRUNNAR FYRIR FYRIRTÆKI OG STOFNANIR SVALAÐU ÞORSTANUM J Class Top Lítil og nett vatnsvél • Kalt vatn • Sódavatn • Vatn við stofuhita Hi class Top 30 Falleg hönnun • Kalt vatn • Sódavatn • Vatn við stofuhita Pro Stream krani • Hett vatn í t.d. te • Kalt vatn • Sódavatn Vatnsbrunnar Vandaðir stand- eða veggbrunnar fyrir mismunandi rými Nánari upplýsingar veitir sölufólk okkar í síma 580 3900 Í vikunni var birtur listi í breska tímaritinu Golf World yfir hundr- að áhugaverðustu vellina í Evr- ópu utan Bretlands. Tímaritið býr til annan lista sem er eingöngu með völlum á Bretlandseyjum en vagga golfsins er jú í Skotlandi. Þau tíðindi urðu að þessu sinni að hvorki fleiri né færri en fimm íslenskir vellir náðu inn á listann. Raunar eru þeir allir á meðal fimmtíu efstu. Á ensku var út- tektin kölluð Top 100 X Factor Cour- ses for Continental Europe. Segja má að þar sé verið að leita eftir völl- um sem er upplifun að heimsækja en ekki verið að horfa í hverjir séu bestu keppnisvellirnir eða þess háttar. Brautarholtsvöllur á Kjalarnesi er í fjórða sæti á listanum, sem er eig- inlega með nokkrum ólíkindum í ljósi þess mikla úrvals af völlum sem eru í boði. Er hann til að mynda ofar en Le Golf National í París þar sem keppt verður í golfi á næstu Ólympíu- leikum. Þar var keppt um Ryder- bikarinn árið 2018. Næst verður keppt um Ryder-bikarinn á Marco Simone-vellinum í Róm en sá völlur er fyrir neðan bæði Brautarholt og Vestmannaeyjavöll á listanum hjá Golf World. Vestmannaeyjavöllur er í áttunda sæti. Hvaleyrarvöllur í Hafnarfirði er í 35. sæti, Víkurvöllur í Mýrdal í 42. sæti og Sigló á Siglufirði er í 50. sæti. Hefur leikið um allan heim Ísland virðist vera komið á kortið fyr- ir alvöru sem áfangastaður fyrir kylf- inga. Tímaritið Golf World kemur nú út í netútgáfu í samstarfi við Today’s Golfer. Þegar Golf World hætti að gefa út á pappír árið 2014 voru 130 þúsund áskrifendur að tímaritinu. Golf World hefur einmitt verið þekktast fyrir Topp 100 listana sína yfir golfvelli um allan heim og borin hefur verið virðing fyrir vinnubrögð- unum. Ritstjóri verkefnisins, Chris Ber- tram, lék víða á Íslandi þegar hann dvaldi á landinu og gæti svo sem hafa komið oftar til landsins. „Ég hef leikið golf í 57 löndum og svo gott sem í öllum heimshornum. Frá Níkaragva til Noregs eða frá Óman til Nýja-Sjálands. Aldrei hef ég snúið heim jafn kátur, áhuga- samur og satt að segja undrandi vegna upplifunar minnar eins og eftir heimsóknina til Íslands,“ skrifar Bertram. Hann er augljóslega hrifinn af Brautarholti og segir að holurnar tólf séu fullkomin stærð fyrir landsvæðið. Honum dettur einungis Lofoten í Noregi í hug sem golfvöllurinn þar sem fegurðin er meiri í hans augum. Þegar hann minnist á Vest- mannaeyjar tekur Bertram fram að mörgum gæti fundist enn fallegra á Vestmannaeyjavelli og hann muni ekki rífast við fólk um það. Engin spurning sé að völlurinn sé í epísku landslagi og margar brautirnar séu yndislegar. Kylfingar sem ekki séu í aðstöðu til að dvelja margar nætur á Íslandi ættu að mati Bertrams að forgangs- raða heimsóknum á þann veg að þeir nái að spila Brautarholt, Vest- mannaeyjar og Keili. Bertram skoð- aði mjög marga velli á höfuðborg- arsvæðinu og býsna marga á landsbyggðinni. Formaður á sláttuvélinni „Það er gaman að sjá svona lítinn völl út á landi fá svona athygli. Sér- staklega níu holu völl hérna á Íslandi. Þetta kom mér mjög á óvart, enda er- um við og Sigló einu níu holu vellirnir á listanum að ég held. Það er nokkuð sérstakt þar sem fólk leitast gjarnan Völlurinn í Brautarholti er í 4. sæti listans. Ljósmynd/Edwin Roald Ísland er komið á kortið Einn af ritstjórum Golf World dregur hvergi af sér í lýsingum á upplifuninni af íslenskum golfvöllum. Kristján Jónsson kris@mbl.is Völlurinn í Eyjum er í 8. sæti listans. Ljósmynd/GSÍ

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.