Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.8. 2022
GOLFVELLIR
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
VATNSVÉLAR, KRANAR OG BRUNNAR FYRIR FYRIRTÆKI OG STOFNANIR
SVALAÐU ÞORSTANUM
J Class Top
Lítil og nett vatnsvél
• Kalt vatn
• Sódavatn
• Vatn við stofuhita
Hi class Top 30
Falleg hönnun
• Kalt vatn
• Sódavatn
• Vatn við stofuhita
Pro Stream krani
• Hett vatn í t.d. te
• Kalt vatn
• Sódavatn
Vatnsbrunnar
Vandaðir stand-
eða veggbrunnar fyrir
mismunandi rými
Nánari upplýsingar veitir sölufólk okkar í síma 580 3900
Í
vikunni var birtur listi í breska
tímaritinu Golf World yfir hundr-
að áhugaverðustu vellina í Evr-
ópu utan Bretlands. Tímaritið býr til
annan lista sem er eingöngu með
völlum á Bretlandseyjum en vagga
golfsins er jú í Skotlandi. Þau tíðindi
urðu að þessu sinni að hvorki fleiri né
færri en fimm íslenskir vellir náðu
inn á listann. Raunar eru þeir allir á
meðal fimmtíu efstu. Á ensku var út-
tektin kölluð Top 100 X Factor Cour-
ses for Continental Europe. Segja
má að þar sé verið að leita eftir völl-
um sem er upplifun að heimsækja en
ekki verið að horfa í hverjir séu bestu
keppnisvellirnir eða þess háttar.
Brautarholtsvöllur á Kjalarnesi er
í fjórða sæti á listanum, sem er eig-
inlega með nokkrum ólíkindum í ljósi
þess mikla úrvals af völlum sem eru í
boði. Er hann til að mynda ofar en Le
Golf National í París þar sem keppt
verður í golfi á næstu Ólympíu-
leikum. Þar var keppt um Ryder-
bikarinn árið 2018. Næst verður
keppt um Ryder-bikarinn á Marco
Simone-vellinum í Róm en sá völlur
er fyrir neðan bæði Brautarholt og
Vestmannaeyjavöll á listanum hjá
Golf World. Vestmannaeyjavöllur er
í áttunda sæti. Hvaleyrarvöllur í
Hafnarfirði er í 35. sæti, Víkurvöllur í
Mýrdal í 42. sæti og Sigló á Siglufirði
er í 50. sæti.
Hefur leikið um allan heim
Ísland virðist vera komið á kortið fyr-
ir alvöru sem áfangastaður fyrir kylf-
inga. Tímaritið Golf World kemur nú
út í netútgáfu í samstarfi við Today’s
Golfer. Þegar Golf World hætti að
gefa út á pappír árið 2014 voru 130
þúsund áskrifendur að tímaritinu.
Golf World hefur einmitt verið
þekktast fyrir Topp 100 listana sína
yfir golfvelli um allan heim og borin
hefur verið virðing fyrir vinnubrögð-
unum.
Ritstjóri verkefnisins, Chris Ber-
tram, lék víða á Íslandi þegar hann
dvaldi á landinu og gæti svo sem hafa
komið oftar til landsins.
„Ég hef leikið golf í 57 löndum og
svo gott sem í öllum heimshornum.
Frá Níkaragva til Noregs eða frá
Óman til Nýja-Sjálands. Aldrei hef
ég snúið heim jafn kátur, áhuga-
samur og satt að segja undrandi
vegna upplifunar minnar eins og eftir
heimsóknina til Íslands,“ skrifar
Bertram.
Hann er augljóslega hrifinn af
Brautarholti og segir að holurnar tólf
séu fullkomin stærð fyrir landsvæðið.
Honum dettur einungis Lofoten í
Noregi í hug sem golfvöllurinn þar
sem fegurðin er meiri í hans augum.
Þegar hann minnist á Vest-
mannaeyjar tekur Bertram fram að
mörgum gæti fundist enn fallegra á
Vestmannaeyjavelli og hann muni
ekki rífast við fólk um það. Engin
spurning sé að völlurinn sé í epísku
landslagi og margar brautirnar séu
yndislegar.
Kylfingar sem ekki séu í aðstöðu til
að dvelja margar nætur á Íslandi
ættu að mati Bertrams að forgangs-
raða heimsóknum á þann veg að þeir
nái að spila Brautarholt, Vest-
mannaeyjar og Keili. Bertram skoð-
aði mjög marga velli á höfuðborg-
arsvæðinu og býsna marga á
landsbyggðinni.
Formaður á sláttuvélinni
„Það er gaman að sjá svona lítinn völl
út á landi fá svona athygli. Sér-
staklega níu holu völl hérna á Íslandi.
Þetta kom mér mjög á óvart, enda er-
um við og Sigló einu níu holu vellirnir
á listanum að ég held. Það er nokkuð
sérstakt þar sem fólk leitast gjarnan
Völlurinn í
Brautarholti er
í 4. sæti listans.
Ljósmynd/Edwin Roald
Ísland er
komið á kortið
Einn af ritstjórum Golf World dregur
hvergi af sér í lýsingum á upplifuninni af
íslenskum golfvöllum.
Kristján Jónsson kris@mbl.is
Völlurinn í Eyjum
er í 8. sæti listans.
Ljósmynd/GSÍ