Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.8. 2022
GOLFVELLIR
Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
SKÚTAN
Veitingar af öllum stærðum,
hvort sem er í sal eða
heimahúsi
Nánar á veislulist.is
Erfidrykkja
eftir því að spila átján holu velli,“ seg-
ir Þorgeir Guðnason, formaður Golf-
klúbbsins í Vík, og þar er fólk skilj-
anlega stolt. „Við í vallarnefndinni
erum mjög stolt af því að sjá litla völl-
inn okkar á svona lista og sama má
segja um fólkið sem býr í Vík.“
Þorgeir er einn þeirra sem á heið-
urinn að því að gestir fara ánægðir
frá vellinum í Vík, því hann hefur
slegið völlinn síðustu árin. Meðlimir í
klúbbnum eru í kringum þrjátíu og
því ljóst að ekki er hægt að vera með
marga starfsmenn á launum við um-
hirðu eða annað sem þarf að gera.
„Þótt klúbburinn sé ekki fjölmennur
þá erum við með marga sjálfboðaliða
sem hjálpa okkur. Ég hef sjálfur
slegið völlinn ásamt tveimur öðrum í
nokkur ár til að halda honum við.
Tækjabúnaðurinn er góður því við
keyptum sláttuvél í fyrra og árið áður
keyptum við aðra sláttuvél til að slá
flatirnar.“
Þorgeir segir íslenska kylfinga
ekki hafa verið duglega að heim-
sækja völlinn í Vík í Mýrdal í sumar
en segir að þar gæti veðurfarið hafa
spilað inn í. „Það er mjög flott fyrir
völl úti á landi að fá auglýsingu hér
og þar. Ég tala nú ekki um á svona
lista sem margir verða varir við. Von-
andi kveikir þetta í Íslendingum að
koma og spila völlinn. Í sumar hefur
verið frekar lítil nýting á vellinum og
því eru margir rástímar lausir.“ Þótt
völlurinn í Vík hafi ekki fengið mikla
auglýsingu fyrr en nú segist Þorgeir
hafa séð mjög marga frá Bandaríkj-
unum á vellinum.
Tækifærin virðast blasa við
Sunnudagsblaðið hafði einnig sam-
band við Edwin Roald Rögnvaldsson
sem hannaði tvo af völlunum fimm.
Annars vegar Brautarholtið og hins
vegar völlinn á Siglufirði en vellirnir
eru þeir nýjustu í golfvallaflórunni
hérlendis. Edwin leggur áherslu á að
golfvellir á Íslandi geti nýst vel í
ferðaþjónustunni og listinn sé vís-
bending um það.
„Auðvitað er þetta mikil við-
urkenning. Ef til vill er þetta áminn-
ing um að Ísland standi betur að vígi
en við höldum í þessum efnum. Við
okkur virðast blasa tækifæri til að
skapa landi og þjóð mikil verðmæti
með golftengdri ferðaþjónustu,“ seg-
ir Edwin og bendir á rannsóknir máli
sínu til stuðnings.
„Í rannsóknum sem gerðar voru í
Skotlandi og Írlandi kemur fram að
kylfingar á faraldsfæti verji tvöfalt
til þrefalt meira fé á áfangastað en
hinn dæmigerði ferðamaður. Golf
getur því verið frábært verkfæri til
að ná athygli vel borgandi ferða-
manna sem gera auðvitað margt
annað á ferð sinni um landið. Gæti
það orðið liður í sókn okkar eftir
gæðum umfram magn í ferðaþjón-
ustu. Hverjum gesti fylgir ákveðinn
kostnaður í ferðaþjónustu almennt.
Ef við viljum reyna að ná meira út úr
hverjum og einum þá getur golfið
verið hluti af því ásamt öðru.“
Fyrir neðan íslensku vellina á list-
anum eru margir vellir þar sem mik-
ill fjöldi starfsmanna starfar við vell-
ina, þar sem tækjakostur er mjög
öflugur og ársgjaldið hátt. Miðað við
úkomu íslensku vallanna hjá Golf
World segir Edwin að svo virðist
sem golfklúbbarnir á Íslandi þurfi
ekki að gera jafn mikið og margir
halda til að erlendir gestir séu
ánægðir.
„Þegar við rýnum í þessa nið-
urstöðu þá sjáum við að við þurfum
ef til vill ekki að gera jafn mikið og
við héldum til að sjá árangur. Þetta
snýst ekki um að útbúa gosbrunna
og malbika stíga fyrir golfbíla heldur
að vinna með sérstöðu okkar, ís-
lenskt landslag og kvöldbirtuna.
Varan er til staðar og að mörgu leyti
tilbúin. Þá er þetta spurning um um-
búðirnar. Leiðin er að vinna með sér-
stöðu Íslands frekar en að elta það
sem við sjáum í sjónvarpinu á golf-
völlum erlendis. Samkvæmt þessu er
völlurinn í Vík í Mýrdal frábært
dæmi um aðdráttarafl sem við
heimamenn höfum kannski ekki gef-
ið sérstakan gaum en vekur hrifn-
ingu hjá þeim sem ekki eru vanir
þessu stórbrotna landslagi.“
Fleiri vekja athygli en áður
Listinn, sem Golf World tók saman,
er vísbending um að vellir þurfi ekki
að vera átján holur til að vekja hrifn-
ingu þótt átján holu vellir séu notaðir
í keppnum atvinnumanna.
„Fyrir mig sem hönnuð er mjög
skemmtilegt að sjá Brautarholt og
Siglufjörð á listanum. Brautarholt
hefur áður komið við sögu í úttektum
tímarita og er orðinn sá íslenski golf-
völlur sem flestir ferðamenn heim-
sækja í dag. Er það áhugavert fyrir
margra hluta sakir en ekki síst með
tilliti til þess að hann er með tólf hol-
ur en ekki átján. Mjög ánægjulegt er
að sjá völlinn í Siglufirði koma þarna
inn, því hann var áður að hluta til
gömul malarnáma sem skemmt hafði
lífríki í tveimur ám sem þarna mæt-
ast. Með golfvallarfrumkvæðinu
tókst að hanna völlinn þannig að
gerð hans hafði í för með sér end-
urheimt á því lífríki. Ekki er verra ef
við höfum einnig búið til aðdráttarafl
fyrir sveitarfélagið og slegið þannig
tvær flugur í einu höggi ef ekki fleiri.
Völlurinn í Vestmannaeyjum er auð-
vitað þarna og hann gæti nú hæglega
orðið einn besti golfvöllur í heimi,“
segir hann enn fremur.
Edwin hefur starfað sem golf-
vallahönnuður í röska tvo áratugi.
Erlend tímarit taka af og til saman
lista yfir áhugaverða velli. Eru for-
dæmi fyrir því að Ísland hafi fengið
jafn góða útkomu og í þessu tilfelli?
„Hér eru klárlega fleiri íslenskir
vellir en maður á að venjast. Á þess-
um lista er ekki verið að setja fram
þá velli sem álitsgjafar tímaritsins
telja þá bestu í Evrópu en segja má
að þetta séu að þeirra mati áhuga-
verðustu vellirnir eða þeir sem kalla
fram jákvæðust hughrif. Þegar allt
kemur til alls er það hinn eini sanni
tilgangur með golfvelli. Besti völl-
urinn er sá sem vekur mesta hrifn-
ingu hjá sem flestum en þetta er erf-
itt að mæla,“ bendir Edwin á.
Völlurinn í Vík er
í 42. sæti listans.
Ljósmynd/Edwin Roald
Hvaleyrarvöllur er
í 35. sæti listans.
Ljósmynd/Edwin Roald
Völlurinn á Siglufirði
er í 50. sæti listans.
Ljósmynd/Edwin Roald
’
Þetta snýst ekki um að
útbúa gosbrunna og
malbika stíga fyrir golf-
bíla heldur að vinna með
sérstöðu okkar. Íslenskt
landslag og kvöldbirtuna.