Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.8. 2022 GOLFVELLIR Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is SKÚTAN Veitingar af öllum stærðum, hvort sem er í sal eða heimahúsi Nánar á veislulist.is Erfidrykkja eftir því að spila átján holu velli,“ seg- ir Þorgeir Guðnason, formaður Golf- klúbbsins í Vík, og þar er fólk skilj- anlega stolt. „Við í vallarnefndinni erum mjög stolt af því að sjá litla völl- inn okkar á svona lista og sama má segja um fólkið sem býr í Vík.“ Þorgeir er einn þeirra sem á heið- urinn að því að gestir fara ánægðir frá vellinum í Vík, því hann hefur slegið völlinn síðustu árin. Meðlimir í klúbbnum eru í kringum þrjátíu og því ljóst að ekki er hægt að vera með marga starfsmenn á launum við um- hirðu eða annað sem þarf að gera. „Þótt klúbburinn sé ekki fjölmennur þá erum við með marga sjálfboðaliða sem hjálpa okkur. Ég hef sjálfur slegið völlinn ásamt tveimur öðrum í nokkur ár til að halda honum við. Tækjabúnaðurinn er góður því við keyptum sláttuvél í fyrra og árið áður keyptum við aðra sláttuvél til að slá flatirnar.“ Þorgeir segir íslenska kylfinga ekki hafa verið duglega að heim- sækja völlinn í Vík í Mýrdal í sumar en segir að þar gæti veðurfarið hafa spilað inn í. „Það er mjög flott fyrir völl úti á landi að fá auglýsingu hér og þar. Ég tala nú ekki um á svona lista sem margir verða varir við. Von- andi kveikir þetta í Íslendingum að koma og spila völlinn. Í sumar hefur verið frekar lítil nýting á vellinum og því eru margir rástímar lausir.“ Þótt völlurinn í Vík hafi ekki fengið mikla auglýsingu fyrr en nú segist Þorgeir hafa séð mjög marga frá Bandaríkj- unum á vellinum. Tækifærin virðast blasa við Sunnudagsblaðið hafði einnig sam- band við Edwin Roald Rögnvaldsson sem hannaði tvo af völlunum fimm. Annars vegar Brautarholtið og hins vegar völlinn á Siglufirði en vellirnir eru þeir nýjustu í golfvallaflórunni hérlendis. Edwin leggur áherslu á að golfvellir á Íslandi geti nýst vel í ferðaþjónustunni og listinn sé vís- bending um það. „Auðvitað er þetta mikil við- urkenning. Ef til vill er þetta áminn- ing um að Ísland standi betur að vígi en við höldum í þessum efnum. Við okkur virðast blasa tækifæri til að skapa landi og þjóð mikil verðmæti með golftengdri ferðaþjónustu,“ seg- ir Edwin og bendir á rannsóknir máli sínu til stuðnings. „Í rannsóknum sem gerðar voru í Skotlandi og Írlandi kemur fram að kylfingar á faraldsfæti verji tvöfalt til þrefalt meira fé á áfangastað en hinn dæmigerði ferðamaður. Golf getur því verið frábært verkfæri til að ná athygli vel borgandi ferða- manna sem gera auðvitað margt annað á ferð sinni um landið. Gæti það orðið liður í sókn okkar eftir gæðum umfram magn í ferðaþjón- ustu. Hverjum gesti fylgir ákveðinn kostnaður í ferðaþjónustu almennt. Ef við viljum reyna að ná meira út úr hverjum og einum þá getur golfið verið hluti af því ásamt öðru.“ Fyrir neðan íslensku vellina á list- anum eru margir vellir þar sem mik- ill fjöldi starfsmanna starfar við vell- ina, þar sem tækjakostur er mjög öflugur og ársgjaldið hátt. Miðað við úkomu íslensku vallanna hjá Golf World segir Edwin að svo virðist sem golfklúbbarnir á Íslandi þurfi ekki að gera jafn mikið og margir halda til að erlendir gestir séu ánægðir. „Þegar við rýnum í þessa nið- urstöðu þá sjáum við að við þurfum ef til vill ekki að gera jafn mikið og við héldum til að sjá árangur. Þetta snýst ekki um að útbúa gosbrunna og malbika stíga fyrir golfbíla heldur að vinna með sérstöðu okkar, ís- lenskt landslag og kvöldbirtuna. Varan er til staðar og að mörgu leyti tilbúin. Þá er þetta spurning um um- búðirnar. Leiðin er að vinna með sér- stöðu Íslands frekar en að elta það sem við sjáum í sjónvarpinu á golf- völlum erlendis. Samkvæmt þessu er völlurinn í Vík í Mýrdal frábært dæmi um aðdráttarafl sem við heimamenn höfum kannski ekki gef- ið sérstakan gaum en vekur hrifn- ingu hjá þeim sem ekki eru vanir þessu stórbrotna landslagi.“ Fleiri vekja athygli en áður Listinn, sem Golf World tók saman, er vísbending um að vellir þurfi ekki að vera átján holur til að vekja hrifn- ingu þótt átján holu vellir séu notaðir í keppnum atvinnumanna. „Fyrir mig sem hönnuð er mjög skemmtilegt að sjá Brautarholt og Siglufjörð á listanum. Brautarholt hefur áður komið við sögu í úttektum tímarita og er orðinn sá íslenski golf- völlur sem flestir ferðamenn heim- sækja í dag. Er það áhugavert fyrir margra hluta sakir en ekki síst með tilliti til þess að hann er með tólf hol- ur en ekki átján. Mjög ánægjulegt er að sjá völlinn í Siglufirði koma þarna inn, því hann var áður að hluta til gömul malarnáma sem skemmt hafði lífríki í tveimur ám sem þarna mæt- ast. Með golfvallarfrumkvæðinu tókst að hanna völlinn þannig að gerð hans hafði í för með sér end- urheimt á því lífríki. Ekki er verra ef við höfum einnig búið til aðdráttarafl fyrir sveitarfélagið og slegið þannig tvær flugur í einu höggi ef ekki fleiri. Völlurinn í Vestmannaeyjum er auð- vitað þarna og hann gæti nú hæglega orðið einn besti golfvöllur í heimi,“ segir hann enn fremur. Edwin hefur starfað sem golf- vallahönnuður í röska tvo áratugi. Erlend tímarit taka af og til saman lista yfir áhugaverða velli. Eru for- dæmi fyrir því að Ísland hafi fengið jafn góða útkomu og í þessu tilfelli? „Hér eru klárlega fleiri íslenskir vellir en maður á að venjast. Á þess- um lista er ekki verið að setja fram þá velli sem álitsgjafar tímaritsins telja þá bestu í Evrópu en segja má að þetta séu að þeirra mati áhuga- verðustu vellirnir eða þeir sem kalla fram jákvæðust hughrif. Þegar allt kemur til alls er það hinn eini sanni tilgangur með golfvelli. Besti völl- urinn er sá sem vekur mesta hrifn- ingu hjá sem flestum en þetta er erf- itt að mæla,“ bendir Edwin á. Völlurinn í Vík er í 42. sæti listans. Ljósmynd/Edwin Roald Hvaleyrarvöllur er í 35. sæti listans. Ljósmynd/Edwin Roald Völlurinn á Siglufirði er í 50. sæti listans. Ljósmynd/Edwin Roald ’ Þetta snýst ekki um að útbúa gosbrunna og malbika stíga fyrir golf- bíla heldur að vinna með sérstöðu okkar. Íslenskt landslag og kvöldbirtuna.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.