Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.8. 2022
LESBÓK
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
BÍLSLYS Bandaríska leikkonan Anne Heche lést í gær af
sárum sínum á sjúkrahúsi í Los Angeles. Fyrr í gær höfðu
fjölskylda og ástvinir sent frá sér tilkynningu þar sem fram
kom að lífslíkur hennar væru litlar sem engar úr því sem
komið væri. Anne Heche lenti í bílslysi á dögunum en sjálf var
hún völd að slysinu þegar hún keyrði á hús í Los Angeles. Slas-
aðist hún alvarlega, fékk slæma höfuðáverka og var í
dauðadái. Hefði hún vaknað úr dáinu hefði verið útlit
fyrir alvarlegan heilaskaða.
Undirbúningur fyrir líffæragjöf var hafinn en
hún var skráður líffæragjafi. Heche var 53 ára
gömul og kom við sögu í mörgum þekktum kvik-
myndum eins og Donnie Brasco, Wag the Dog, Six
Days, Seven Nights og Superman.
Lést af slysförum
Anne Heche
er látin.
AFP/Lisa O’Connor
SÖNGVAKEPPNI Breskir fjölmiðlar eru
farnir að kasta fram nöfnum á borgum sem
gætu tekið að sér gestgjafahlutverkið í Euro-
vision söngvakeppninni næsta vor. Úkraína
sigraði í keppninni sem kunnugt er en gefur
frá sér gestgjafahlutverkið vegna innrásar
Rússa.
The Guardian nefnir til sögunnar sex enskar
borgir og eina skoska. Eru það Birmingham,
Leeds, Liverpool, Manchester, Newcastle og
Sheffield ásamt Glasgow. Á þeim bæjum er tal-
in vera áhugi fyrir því að fá keppnina til sín.
Aldarfjórðungur er liðinn síðan keppnin fór
síðast fram á Bretlandseyjum.
Verður Eurovision í Skotlandi?
Úkraínumenn í keppninni síðasta vor.
AFP/Marco Bertorello
Ozzy Osbourne tekur lagið Paranoid
á lokaathöfninni í Birmingham.
Steig á svið á
æskuslóðum
LEIKAR Skipuleggjendum Com-
monwealth-leikanna tókst að koma
mörgum mjög á óvart á lokaathöfn
leikanna í upphafi vikunnar. Leik-
arnir eru fjölgreina íþróttamót
þeirra þjóða sem tilheyra eða til-
heyrðu breska heimsveldinu.
Leikarnir voru haldnir í Birm-
ingham og á lokaathöfninni stigu
rokkararnir í Black Sabbath á svið.
„Myrkrahöfðinginn“, Ozzy Osbo-
urne, uppskar mikinn fögnuð 30
þúsund áhorfenda en lítið hefur
farið fyrir honum síðustu árin
vegna veikinda. Hafði hann raunar
ekki troðið upp í sjö ár en Osbourne
er 73 ára gamall. „Ég elska þig
Birmingham,“ kallaði söngvarinn
en þar sleit hann barnsskónum.
S
ú harmafregn barst frá Kali-
forníu í vikunni að Olivia New-
ton-John hefði andast, 73 ára
að aldri. Var hún ein þeirra sem tókst
að hasla sér völl á tveimur sviðum í
listsköpun en á áttunda áratugnum
var hún orðin vel þekkt, bæði sem
söng- og leikkona.
Krabbamein tók sig upp hjá New-
ton-John árið 2017 og dró hana til
dauða en hún lést á heimili sínu í
Santa Ynez Valley. Fyrst greindist
hún með brjóstakrabbamein árið
1992 og tók það sig einnig upp árið
2013. Hún glímdi því þrívegis við
veikindin á þrjátíu ára tímabili.
Margir gera tilkall til þess að eiga
eitthvað í Oliviu Newton-John. Hún
bjó í Bandaríkjunum en lengst af í
Ástralíu. Eflaust tengja flestir hana
við Ástralíu en þangað fluttu for-
eldrar hennar þegar hún var fimm
ára. Sjálf kallaði hún sig Ástrala.
Viktoríuríki í suðausturhluta Ástr-
alíu hefur boðist til að annast útför
Oliviu Newton-John og var það sam-
þykkt af ástvinum.
Ef til vill vita færri að hún kom í
heiminn í háskólabænum kunna,
Cambridge á Englandi. Fæddist hún
26. september árið 1948 en foreldrar
hennar hétu Brinley Newton-John
og Irene Helene. Olivia var Wales-
verji í föðurættina en af þýskum gyð-
ingaættum í móðurættina. Árið 1933
tók fjölskylda hennar í móðurætt þá
Ætlaði ekki
að leika
Sandy
Olivia Newton-John lét tilleiðast að vera með í
myndinni sem olli straumhvörfum á hennar ferli.
Kristján Jónsson kris@mbl.is
Margir hafa minnst Oliviu Newton-John á Hollywood Boulevard.
AFP/Robyn Beck
Margir úr tónlistar- og kvikmyndaiðnaðinum hafa vottað Oliviu
Newton-John virðingu sína í vikunni eða eftir að fregnin um
andlát hennar barst. John Travolta, sem lék með henni í
Grease, minnist hennar á hlýlegan hátt.
„Áhrifin sem þú hafðir voru ótrúleg. Ég elska
þig svo heitt. Við munum sjást aftur þótt síðar
verði og þá munum við öll sameinast á ný. Ég
var þinn frá því ég leit þig fyrst augum og
verð það ávallt. Þinn Danny, þinn John,“
skrifaði Travolta á samfélagsmiðla. Persón-
an sem hann túlkaði í Grease hét Danny
Zuko.
John Travolta er fæddur árið 1954 og
er því sex árum yngri. Hann var því
einungis 24 ára gamall þegar kvik-
myndin Grease kom út en hafði hins
vegar slegið í gegn þegar Saturday
Night Fever kom út árið áður.
„Þinn Danny, þinn John“
Olivia New-
ton-John and
John Travolta
árið 2018.