Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Síða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.8. 2022 LESBÓK Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt BÍLSLYS Bandaríska leikkonan Anne Heche lést í gær af sárum sínum á sjúkrahúsi í Los Angeles. Fyrr í gær höfðu fjölskylda og ástvinir sent frá sér tilkynningu þar sem fram kom að lífslíkur hennar væru litlar sem engar úr því sem komið væri. Anne Heche lenti í bílslysi á dögunum en sjálf var hún völd að slysinu þegar hún keyrði á hús í Los Angeles. Slas- aðist hún alvarlega, fékk slæma höfuðáverka og var í dauðadái. Hefði hún vaknað úr dáinu hefði verið útlit fyrir alvarlegan heilaskaða. Undirbúningur fyrir líffæragjöf var hafinn en hún var skráður líffæragjafi. Heche var 53 ára gömul og kom við sögu í mörgum þekktum kvik- myndum eins og Donnie Brasco, Wag the Dog, Six Days, Seven Nights og Superman. Lést af slysförum Anne Heche er látin. AFP/Lisa O’Connor SÖNGVAKEPPNI Breskir fjölmiðlar eru farnir að kasta fram nöfnum á borgum sem gætu tekið að sér gestgjafahlutverkið í Euro- vision söngvakeppninni næsta vor. Úkraína sigraði í keppninni sem kunnugt er en gefur frá sér gestgjafahlutverkið vegna innrásar Rússa. The Guardian nefnir til sögunnar sex enskar borgir og eina skoska. Eru það Birmingham, Leeds, Liverpool, Manchester, Newcastle og Sheffield ásamt Glasgow. Á þeim bæjum er tal- in vera áhugi fyrir því að fá keppnina til sín. Aldarfjórðungur er liðinn síðan keppnin fór síðast fram á Bretlandseyjum. Verður Eurovision í Skotlandi? Úkraínumenn í keppninni síðasta vor. AFP/Marco Bertorello Ozzy Osbourne tekur lagið Paranoid á lokaathöfninni í Birmingham. Steig á svið á æskuslóðum LEIKAR Skipuleggjendum Com- monwealth-leikanna tókst að koma mörgum mjög á óvart á lokaathöfn leikanna í upphafi vikunnar. Leik- arnir eru fjölgreina íþróttamót þeirra þjóða sem tilheyra eða til- heyrðu breska heimsveldinu. Leikarnir voru haldnir í Birm- ingham og á lokaathöfninni stigu rokkararnir í Black Sabbath á svið. „Myrkrahöfðinginn“, Ozzy Osbo- urne, uppskar mikinn fögnuð 30 þúsund áhorfenda en lítið hefur farið fyrir honum síðustu árin vegna veikinda. Hafði hann raunar ekki troðið upp í sjö ár en Osbourne er 73 ára gamall. „Ég elska þig Birmingham,“ kallaði söngvarinn en þar sleit hann barnsskónum. S ú harmafregn barst frá Kali- forníu í vikunni að Olivia New- ton-John hefði andast, 73 ára að aldri. Var hún ein þeirra sem tókst að hasla sér völl á tveimur sviðum í listsköpun en á áttunda áratugnum var hún orðin vel þekkt, bæði sem söng- og leikkona. Krabbamein tók sig upp hjá New- ton-John árið 2017 og dró hana til dauða en hún lést á heimili sínu í Santa Ynez Valley. Fyrst greindist hún með brjóstakrabbamein árið 1992 og tók það sig einnig upp árið 2013. Hún glímdi því þrívegis við veikindin á þrjátíu ára tímabili. Margir gera tilkall til þess að eiga eitthvað í Oliviu Newton-John. Hún bjó í Bandaríkjunum en lengst af í Ástralíu. Eflaust tengja flestir hana við Ástralíu en þangað fluttu for- eldrar hennar þegar hún var fimm ára. Sjálf kallaði hún sig Ástrala. Viktoríuríki í suðausturhluta Ástr- alíu hefur boðist til að annast útför Oliviu Newton-John og var það sam- þykkt af ástvinum. Ef til vill vita færri að hún kom í heiminn í háskólabænum kunna, Cambridge á Englandi. Fæddist hún 26. september árið 1948 en foreldrar hennar hétu Brinley Newton-John og Irene Helene. Olivia var Wales- verji í föðurættina en af þýskum gyð- ingaættum í móðurættina. Árið 1933 tók fjölskylda hennar í móðurætt þá Ætlaði ekki að leika Sandy Olivia Newton-John lét tilleiðast að vera með í myndinni sem olli straumhvörfum á hennar ferli. Kristján Jónsson kris@mbl.is Margir hafa minnst Oliviu Newton-John á Hollywood Boulevard. AFP/Robyn Beck Margir úr tónlistar- og kvikmyndaiðnaðinum hafa vottað Oliviu Newton-John virðingu sína í vikunni eða eftir að fregnin um andlát hennar barst. John Travolta, sem lék með henni í Grease, minnist hennar á hlýlegan hátt. „Áhrifin sem þú hafðir voru ótrúleg. Ég elska þig svo heitt. Við munum sjást aftur þótt síðar verði og þá munum við öll sameinast á ný. Ég var þinn frá því ég leit þig fyrst augum og verð það ávallt. Þinn Danny, þinn John,“ skrifaði Travolta á samfélagsmiðla. Persón- an sem hann túlkaði í Grease hét Danny Zuko. John Travolta er fæddur árið 1954 og er því sex árum yngri. Hann var því einungis 24 ára gamall þegar kvik- myndin Grease kom út en hafði hins vegar slegið í gegn þegar Saturday Night Fever kom út árið áður. „Þinn Danny, þinn John“ Olivia New- ton-John and John Travolta árið 2018.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.