Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Side 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Side 29
ákvörðun að flýja nasismann í Þýska- landi og flutti því til Bretlands. Áhugavert er að staldra aðeins við þetta atriði, því eflaust hefðu þau lent snemma á svörtum lista hjá nas- istunum, þar sem afi hennar, Max Born, var nokkuð þekktur sem dokt- or í eðlisfræði og var gyðingur. Síðar fékk hann nóbelsverðlaunin í eðl- isfræði eða árið 1954. Walesverjinn, faðir Oliviu, gekk í leyniþjónustuna MI5 og tók þátt í baráttunni gegn Þýskalandi í síðari heimsstyrjöldinni frá Bletchley Park. Var hann einn þeirra sem kepptust við að leysa dulmál Þjóð- verja, sem hafði sitt að segja þegar uppi var staðið. Söng lag eftir Dylan Saga forfeðra Oliviu Newton-John er því einnig athyglisverð en nóg um það. Þar sem hún flutti ung til Ástr- alíu var ástralska taugin sterk í henni. Þar fór hún snemma að láta til sín taka í tónlistinni og fór að koma fram í litlum sjónvarpsþáttum, strax á unglingsaldri. Móðir hennar hvatti hana til að fara aftur til Evrópu og víkka sjón- deildarhringinn. Var hún komin aft- ur til Bretlands þegar hún var 18 ára og fór fljótlega að troða upp á skemmtistöðum ásamt Pat Carroll. Um þetta leyti sendi Newton-John frá sér lag í fyrsta skipti sem heitir Till You Say You’ll Be Mine. Um fimm árum síðar eða árið 1971 kom fyrsta platan út sem heitir If Not for You. Lagið The Little Track fór í 25. sæti á vinsældalista í Bandaríkj- unum og var samið af Bob Dylan. Söngrödd Oliviu Newton-John vakti smám saman hrifningu og var hún valin söngkona ársins tvö ár í röð af tímaritinu Record Mirror. Lagið Let Me Be There sló í gegn árið 1973 og fékk hún ýmis verðlaun í heimi kántrýtónlistar í kjölfarið. Travolta sannfærði hana Olivia Newton-John hafði nokkuð sérstaka rödd en var auk þess nokk- uð fjölhæf dægurlagasöngkona. Hún gat sungið hugljúf lög eins og Hope- lessly Devoted to You en einnig lög eins og Physical þar sem töff- araskapurinn var meiri. Þótt kántrýtónlist sé risastór iðn- aður, þá verður Newton-John eflaust ávallt frægust fyrir myndina Grease sem kom út árið 1978, þar sem hún söng og dansaði í túlkun sinni á hinni áströlsku Sandy Olsson. Tæpast þarf að segja lesendum mikið frá Grease en kvikmyndin og tónlistin sló í gegn svo um munaði. Engin mynd dró fleiri í kvikmyndahús árið 1978 og platan var í efsta sæti vinsælda vest- anhafs í tólf vikur. Varð Newton- John aðeins önnur konan sem náði því að vera með tvö lög í fimm efstu sætunum á Billboard-vinsældalist- anum. Voru það lögin Hopelessly Devoted to You og Summer Nights. Í ljósi allrar velgengninnar er merkilegt að Oliviu Newton-John leist ekki of vel á að taka að sér hlut- verkið í Grease. Henni fannst hún einfaldlega vera orðin of gömul til að leika svo unga konu en Newton-John var 28 ára þegar tökur hófust og þrí- tug þegar myndin var frumsýnd. Mótleikaranum John Travolta tókst að sannfæra hana um að vera með í myndinni en hann var sannfærður um að hún væri besti kosturinn. Þeg- ar Newton-John gerði síðar upp fer- ilinn sagðist hún hafa leikið á móti tveimur bestu karlkyns dönsurum í kvikmyndasögunni: Travolta og Gene Kelly sem lék á móti henni í Xanadu árið 1980. Giftist tvívegis Olivia Newton-John skilur eftir sig eina dóttur, Chloe Lattanzi, sem kom í heiminn árið 1986. Var Olivia gift barnsföður sínum Matt Lattanzi frá 1984 til ársins 1995. Árið 2008 giftist hún Ástralanum John Easterling sem lifir hana. Í millitíðinni hafði hún átt í ást- arsambandi við tökumanninn Patrick McDermott sem týndist á sjó sum- arið 2005. Er hann talinn hafa drukknað en ekki liggur fyrir hvort hann hafi þá farist af slysförum, hafi stytt sér aldur eða eitthvað saknæmt hafi gerst. Þar sem hann hafði verið kærasti Oliviu Newton-John fjölluðu slúðurblöðin reglulega um hvarf hans í mörg ár. Sum héldu því fram að hann væri sprelllifandi og búsett- ur í Mexíkó. Þegar Olivia Newton-John fór að vera með John Easterling kom upp úr krafsinu að hann hafði aldrei séð kvikmyndina Grease. Olivia Newton-John kynnir Grease á blaða- mannafundi. Mótleik- arinn John Travolta er henni á vinstri hönd. AFP/Mychele Daniau 14.8. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 Skeifan 3 • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is • rafver@rafver.is K 7 Premium Smart Control Háþrýstidæla SÖFN Tekist er nú á um Franken- stein gamla eða öllu heldur stærð- arinnar styttu af söguhetjunni. Vic- toria and Albert-safnið í London er með styttuna til sýnis. Hún er úr viði, um 220 cm á hæð og klædd í föt sem notuð voru í kvikmynd árið 1935. Styttan var áður í breska kvikmynda- safninu sem keypti styttuna á upp- boði. Safnið lokaði árið 1988 og fékk Frankenstein þá nýtt heimili á V&A- safninu. Þjóðminjasafnið í LA gerir nú tilkall til hennar og segist hafa fengið styttuna að gjöf árið 1935. Hvar á Frankenstein heima? Styttan sem um ræðir. Ljósmynd/Victoria and Albert Mu BÓKSALA 3.-9. ÁGÚST Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Elspa – saga konu Guðrún Frímannsdóttir 2 Independent People Halldór Laxness 3 Þessu lýkur hér Colleen Hoover 4 Leyndarmálið Kathryn Hughes 5 Vængjalaus Árni Árnason 6 Sólrún Sigurlín Bjarney Gísladóttir 7 Iceland Visual Explorer Guide Chris McNab 8 Dagbók Kidda klaufa 16 – meistarinn Jeff Kinney 9 HVA David Walliams 10 Iceland in a Bag Ýmsir höfundar 1 Dagbók Kidda klaufa 16 – meistarinn Jeff Kinney 2 HVA David Walliams 3 Ísadóra Nótt lendir í vandræðum Harriet Muncaster 4 Litli prinsinn Antoine de Saint-Exupéry 5 Hanni granni dansari Gunnar Helgason 6 Handbók fyrir ofurhetjur 7 Elias/AgnesVahlund 7 Depill kann að telja Eric Hill 8 Ekki opna þessa bók! Þú munt sjá eftir því Andy Lee 9 Kennarinn sem fuðraði upp Bergrún Íris Sævarsdóttir 10 Lyftimyndir – sveitin Allar bækur Barnabækur Í starfi mínu á Bókasafni Kópavogs, þar sem ég held m.a. utan um inn- kaup safnsins, fylgist ég vel með bókaútgáfunni árið um kring. Eitt af mörgu sem gerir vinnu á bóka- safni skemmtilega er að við sem þar störfum erum alltaf með putt- ann á púlsinum varðandi það hvaða bækur eru vinsælastar hjá okkar notendum. Auk þess að lesa mikið hlusta ég þó nokkuð á hljóðbækur, sem mér finnst mikil hvíld í, sérstaklega ef upplesarinn er góður. Í sumar hefur t.d. verið mikil eftirspurn eftir bókum Colleen Hoover sem er margfaldur met- söluhöfundur. Hún hefur skrifað yf- ir 20 bækur og þrisv- ar hlotið Goodreads Choice Awards. Fyrsta bók hennar sem kom út á ís- lensku er Þessu lýk- ur hér og þar sem ég var forvitin að kynn- ast höfundinum er ég að hlusta á þessa bók í frábærum upplestri Þrúðar Vilhjálmsdóttur. Bókin hef- ur djúpan undirtón og endur- speglar þær aðstæður sem höf- undur ólst upp við. Nýlega las ég tvær fyrstu bæk- urnar í bókaflokkn- um Sjö systur eftir Lucindu Riley, sem er írskur rithöf- undur, en bókaflokk- ur þessi hefur farið sigurför um heim- inn. Bækurnar eru sjö og segir hver þeirra sögu einnar systur en stjúpfaðir þeirra ætt- leiddi þær alls staðar að úr heim- inum. Bókaflokkinn byggir höf- undur lauslega á goðsögnum um stjörnuþyrpinguna Sjöstirnið. Bæk- urnar komu út á árunum 2014- 2021 og var sjöunda bókin nýkomin út er Lucinda lést úr krabbameini, langt um aldur fram. Tvær fyrstu bækurnar eru komnar út á íslensku og von á þeirri þriðju síðsumars. Einnig er ég nýbúin að hlusta á Sextíu kíló af kjaftshöggum eftir Hallgrím Helgason, sem er einn af mín- um uppáhalds- höfundum. Þessi bók er sjálfstætt fram- hald af Sextíu kílóum af sólskini en Hall- grímur hlaut ís- lensku bókmenntaverðlaunin fyrir þær báðar. Ég hlustaði á þær með upplestri höfundar, eða réttara sagt leiklestri, því hann leikur allar persónur bókanna með miklum til- þrifum. Ég á marga aðra íslenska uppá- haldshöfunda og einn af þeim er Einar Kárason og vil ég sérstaklega nefna tvær síðustu bækur hans, Stormfugla og Þung ský. Báðar þessar bækur byggjast á sönnum atburðum, hafa mjög knappan stíl og eru gríðarlega áhrifamiklar. Að lokum langar mig að nefna bók Sigríðar Hagalín Björnsdóttur, Eldana, sem kom út árið 2020. Bókin fjallar um eldgos á Reykjanesskaga, virkilega áhrifarík og flott bók, sem á svo sannarlega vel við í dag. Þótt gaman sé að fylgjast með bókaútgáfunni allt árið er haustið samt skemmtilegasti tíminn á safn- inu þegar jólabækurnar streyma inn til okkar. RAGNA GUÐMUNDSDÓTTIR ER AÐ LESA Eftirspurn eftir Hoover Ragna Guð- mundsdóttir er deildarstjóri hjá Bókasafni Kópavogs.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.