Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Page 29
ákvörðun að flýja nasismann í Þýska-
landi og flutti því til Bretlands.
Áhugavert er að staldra aðeins við
þetta atriði, því eflaust hefðu þau
lent snemma á svörtum lista hjá nas-
istunum, þar sem afi hennar, Max
Born, var nokkuð þekktur sem dokt-
or í eðlisfræði og var gyðingur. Síðar
fékk hann nóbelsverðlaunin í eðl-
isfræði eða árið 1954.
Walesverjinn, faðir Oliviu, gekk í
leyniþjónustuna MI5 og tók þátt í
baráttunni gegn Þýskalandi í síðari
heimsstyrjöldinni frá Bletchley
Park. Var hann einn þeirra sem
kepptust við að leysa dulmál Þjóð-
verja, sem hafði sitt að segja þegar
uppi var staðið.
Söng lag eftir Dylan
Saga forfeðra Oliviu Newton-John er
því einnig athyglisverð en nóg um
það. Þar sem hún flutti ung til Ástr-
alíu var ástralska taugin sterk í
henni. Þar fór hún snemma að láta til
sín taka í tónlistinni og fór að koma
fram í litlum sjónvarpsþáttum, strax
á unglingsaldri.
Móðir hennar hvatti hana til að
fara aftur til Evrópu og víkka sjón-
deildarhringinn. Var hún komin aft-
ur til Bretlands þegar hún var 18 ára
og fór fljótlega að troða upp á
skemmtistöðum ásamt Pat Carroll.
Um þetta leyti sendi Newton-John
frá sér lag í fyrsta skipti sem heitir
Till You Say You’ll Be Mine. Um
fimm árum síðar eða árið 1971 kom
fyrsta platan út sem heitir If Not for
You. Lagið The Little Track fór í 25.
sæti á vinsældalista í Bandaríkj-
unum og var samið af Bob Dylan.
Söngrödd Oliviu Newton-John
vakti smám saman hrifningu og var
hún valin söngkona ársins tvö ár í röð
af tímaritinu Record Mirror. Lagið
Let Me Be There sló í gegn árið 1973
og fékk hún ýmis verðlaun í heimi
kántrýtónlistar í kjölfarið.
Travolta sannfærði hana
Olivia Newton-John hafði nokkuð
sérstaka rödd en var auk þess nokk-
uð fjölhæf dægurlagasöngkona. Hún
gat sungið hugljúf lög eins og Hope-
lessly Devoted to You en einnig lög
eins og Physical þar sem töff-
araskapurinn var meiri.
Þótt kántrýtónlist sé risastór iðn-
aður, þá verður Newton-John eflaust
ávallt frægust fyrir myndina Grease
sem kom út árið 1978, þar sem hún
söng og dansaði í túlkun sinni á hinni
áströlsku Sandy Olsson. Tæpast þarf
að segja lesendum mikið frá Grease
en kvikmyndin og tónlistin sló í gegn
svo um munaði. Engin mynd dró
fleiri í kvikmyndahús árið 1978 og
platan var í efsta sæti vinsælda vest-
anhafs í tólf vikur. Varð Newton-
John aðeins önnur konan sem náði
því að vera með tvö lög í fimm efstu
sætunum á Billboard-vinsældalist-
anum. Voru það lögin Hopelessly
Devoted to You og Summer Nights.
Í ljósi allrar velgengninnar er
merkilegt að Oliviu Newton-John
leist ekki of vel á að taka að sér hlut-
verkið í Grease. Henni fannst hún
einfaldlega vera orðin of gömul til að
leika svo unga konu en Newton-John
var 28 ára þegar tökur hófust og þrí-
tug þegar myndin var frumsýnd.
Mótleikaranum John Travolta tókst
að sannfæra hana um að vera með í
myndinni en hann var sannfærður
um að hún væri besti kosturinn. Þeg-
ar Newton-John gerði síðar upp fer-
ilinn sagðist hún hafa leikið á móti
tveimur bestu karlkyns dönsurum í
kvikmyndasögunni: Travolta og
Gene Kelly sem lék á móti henni í
Xanadu árið 1980.
Giftist tvívegis
Olivia Newton-John skilur eftir sig
eina dóttur, Chloe Lattanzi, sem kom
í heiminn árið 1986. Var Olivia gift
barnsföður sínum Matt Lattanzi frá
1984 til ársins 1995. Árið 2008 giftist
hún Ástralanum John Easterling
sem lifir hana.
Í millitíðinni hafði hún átt í ást-
arsambandi við tökumanninn Patrick
McDermott sem týndist á sjó sum-
arið 2005. Er hann talinn hafa
drukknað en ekki liggur fyrir hvort
hann hafi þá farist af slysförum, hafi
stytt sér aldur eða eitthvað saknæmt
hafi gerst. Þar sem hann hafði verið
kærasti Oliviu Newton-John fjölluðu
slúðurblöðin reglulega um hvarf
hans í mörg ár. Sum héldu því fram
að hann væri sprelllifandi og búsett-
ur í Mexíkó.
Þegar Olivia Newton-John fór að
vera með John Easterling kom upp
úr krafsinu að hann hafði aldrei séð
kvikmyndina Grease.
Olivia Newton-John
kynnir Grease á blaða-
mannafundi. Mótleik-
arinn John Travolta er
henni á vinstri hönd.
AFP/Mychele Daniau
14.8. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Skeifan 3 • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is • rafver@rafver.is
K 7 Premium
Smart Control
Háþrýstidæla
SÖFN Tekist er nú á um Franken-
stein gamla eða öllu heldur stærð-
arinnar styttu af söguhetjunni. Vic-
toria and Albert-safnið í London er
með styttuna til sýnis. Hún er úr viði,
um 220 cm á hæð og klædd í föt sem
notuð voru í kvikmynd árið 1935.
Styttan var áður í breska kvikmynda-
safninu sem keypti styttuna á upp-
boði. Safnið lokaði árið 1988 og fékk
Frankenstein þá nýtt heimili á V&A-
safninu. Þjóðminjasafnið í LA gerir
nú tilkall til hennar og segist hafa
fengið styttuna að gjöf árið 1935.
Hvar á Frankenstein heima?
Styttan sem um ræðir.
Ljósmynd/Victoria and Albert Mu
BÓKSALA 3.-9. ÁGÚST
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1
Elspa – saga konu
Guðrún Frímannsdóttir
2
Independent People
Halldór Laxness
3
Þessu lýkur hér
Colleen Hoover
4
Leyndarmálið
Kathryn Hughes
5
Vængjalaus
Árni Árnason
6
Sólrún
Sigurlín Bjarney Gísladóttir
7
Iceland Visual Explorer
Guide
Chris McNab
8
Dagbók Kidda klaufa 16
– meistarinn
Jeff Kinney
9
HVA
David Walliams
10
Iceland in a Bag
Ýmsir höfundar
1
Dagbók Kidda klaufa 16
– meistarinn
Jeff Kinney
2
HVA
David Walliams
3
Ísadóra Nótt lendir í
vandræðum
Harriet Muncaster
4
Litli prinsinn
Antoine de Saint-Exupéry
5
Hanni granni dansari
Gunnar Helgason
6
Handbók fyrir ofurhetjur 7
Elias/AgnesVahlund
7
Depill kann að telja
Eric Hill
8
Ekki opna þessa bók! Þú
munt sjá eftir því
Andy Lee
9
Kennarinn sem fuðraði upp
Bergrún Íris Sævarsdóttir
10 Lyftimyndir – sveitin
Allar bækur
Barnabækur
Í starfi mínu á Bókasafni Kópavogs,
þar sem ég held m.a. utan um inn-
kaup safnsins, fylgist ég vel með
bókaútgáfunni árið um kring. Eitt
af mörgu sem gerir vinnu á bóka-
safni skemmtilega er að við sem
þar störfum erum alltaf með putt-
ann á púlsinum varðandi það
hvaða bækur eru vinsælastar hjá
okkar notendum.
Auk þess að lesa mikið hlusta ég
þó nokkuð á hljóðbækur, sem mér
finnst mikil hvíld í, sérstaklega ef
upplesarinn er góður.
Í sumar hefur t.d. verið mikil
eftirspurn eftir bókum Colleen
Hoover sem er margfaldur met-
söluhöfundur. Hún hefur skrifað yf-
ir 20 bækur og þrisv-
ar hlotið Goodreads
Choice Awards.
Fyrsta bók hennar
sem kom út á ís-
lensku er Þessu lýk-
ur hér og þar sem ég
var forvitin að kynn-
ast höfundinum er ég að hlusta á
þessa bók í frábærum upplestri
Þrúðar Vilhjálmsdóttur. Bókin hef-
ur djúpan undirtón og endur-
speglar þær aðstæður sem höf-
undur ólst upp við.
Nýlega las ég tvær fyrstu bæk-
urnar í bókaflokkn-
um Sjö systur eftir
Lucindu Riley, sem
er írskur rithöf-
undur, en bókaflokk-
ur þessi hefur farið
sigurför um heim-
inn. Bækurnar eru
sjö og segir hver þeirra sögu einnar
systur en stjúpfaðir þeirra ætt-
leiddi þær alls staðar að úr heim-
inum. Bókaflokkinn byggir höf-
undur lauslega á goðsögnum um
stjörnuþyrpinguna Sjöstirnið. Bæk-
urnar komu út á árunum 2014-
2021 og var sjöunda bókin nýkomin
út er Lucinda lést úr krabbameini,
langt um aldur fram. Tvær fyrstu
bækurnar eru komnar út á íslensku
og von á þeirri þriðju síðsumars.
Einnig er ég nýbúin að hlusta á
Sextíu kíló af kjaftshöggum eftir
Hallgrím Helgason,
sem er einn af mín-
um uppáhalds-
höfundum. Þessi bók
er sjálfstætt fram-
hald af Sextíu kílóum
af sólskini en Hall-
grímur hlaut ís-
lensku bókmenntaverðlaunin fyrir
þær báðar. Ég hlustaði á þær með
upplestri höfundar, eða réttara
sagt leiklestri, því hann leikur allar
persónur bókanna með miklum til-
þrifum.
Ég á marga aðra íslenska uppá-
haldshöfunda og einn af þeim er
Einar Kárason og vil ég sérstaklega
nefna tvær síðustu bækur hans,
Stormfugla og Þung
ský. Báðar þessar
bækur byggjast á
sönnum atburðum,
hafa mjög knappan
stíl og eru gríðarlega
áhrifamiklar.
Að lokum langar
mig að nefna bók Sigríðar Hagalín
Björnsdóttur, Eldana, sem kom út
árið 2020. Bókin fjallar um eldgos á
Reykjanesskaga, virkilega áhrifarík
og flott bók, sem á svo sannarlega
vel við í dag.
Þótt gaman sé að fylgjast með
bókaútgáfunni allt árið er haustið
samt skemmtilegasti tíminn á safn-
inu þegar jólabækurnar streyma
inn til okkar.
RAGNA GUÐMUNDSDÓTTIR ER AÐ LESA
Eftirspurn eftir Hoover
Ragna Guð-
mundsdóttir
er deildarstjóri
hjá Bókasafni
Kópavogs.