Ótrúlegt en satt - 31.07.1940, Blaðsíða 9

Ótrúlegt en satt - 31.07.1940, Blaðsíða 9
maðurinn tók aö sér stjórn annars bátsins, en skipstjórinn stjórn- aði hinum. Við höfðum það eitt í huga að verja bátana áfölluni og reyndum að halda stefnunni í veðrið. Daga og nætur sátum við undir árum, jafnvel ég, með minn brotna fót, varð að taka þátt í baráttunni fyrir lífi okkar. Við vorum svo fáir og urðum að hvíla bkkur til skiptis. Vistir voru mjög af skornum skammti, aðeins nokkur brauö, sem fljótt urðu vot af sjó, og svo vatn. Það var mjög kalt og hviJdarstundirnar voru okkur lítilsvirði, því við gátum ekk- ert sofið. Þannig liðu fjórir langir sólarhringar og við vorum aðfram komnir af þveytu, vcsbúð og svefnleysi. En er við vorum alveg að því komnir að gefast upp sáum viö til ferða gufuskips eins. Við settum druslnr á eina árina og héldum uppi. Okkur virtist skipiö hafa komið auga á okkur og stefna í áttina til okkar. En svo var þó ekki, og áður en varði var það horfið. Þetta ætlaði alveg að ríða okkur að fullu. Við misstum alla von. Skipstjórinn reyndi að telja í Oikkur kjark. Til allrar hamingju var storminn ögn tekið að lægja, svo við gátum nú sofið til skiptis. Vatn var mjög til þurrðar gengið, það voru aðeins eftir dreggjar í síðasta vatnskútnum. Skip- stjórinn reyndi að treina það sem lengst, en að lokum gat hann ekki við neitt ráðið og við drukkum upp allt vatnið sem eftir var: »Komi svo það, sem koma skal«, sögðum við. Og daginn eftir var okkur bjargað. Við sáum skip cg við notuð- um okkar síðustu krafta til að reyna að gera vart við okkur og að þessu sinni tókst það. Það var ítalskt gufuskip. En svo aðfram komnir vorum við, að þegar skipsmennirnir köstuðu kaðalstigum niður í bátana okkar gat enginn okkar gengið upp stigana hjálpar- laust, Við gátum varla staðið á fætur. Það ráð var því tekið, að við vorum hifðir upp með spili eins og dauðir hlutir. Þegar við komum ti] New York varð ég að fara á sjúkrahús og það voru í fyrstu allar líkur til þess að taka yrði af mér fótinn. En svo varð þó ekki. Að átta vikum liðnum gat ég farið á kreik aftur og skömmu seinna réði ég mig á þrísilgda kanadiska skonn- ortu, sem flutti trjávið iil Jamaica, en er þangað kom varð ég enn fyrir þeirri óheppni að fótbrotna svo ég varð að fara í land og leggjast afur á sjúkrahús cg fóturinn var settur í gipsumbúðir. Frá borði hafði ég ekki haft með mér annað en þau föt sem ég stóð í er slysið vildi til. Allt annað hafði orðið eftir um borð. Er ég hafði ve.rið á sjúkrahúsinu komst ég að raun um að ég var töluvert illa cettur: Skipstjórinn hafði ekkert skilið eftir af far- angri mínum og ég hafði átt. inni mest allt kaup mitt. Það eina sem ég hafði voru nokkrir fataræflar og sex ensk pund. Ég var OTRúLEGT — EN SATT 147

x

Ótrúlegt en satt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ótrúlegt en satt
https://timarit.is/publication/1765

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.