Ótrúlegt en satt - 31.07.1940, Page 14
hernum. En mér fannsl er til kom, að ég’ væi'i enn of skammt á
veg kominn á framabraut minni. Ég hafði ásett mér að koma ekki
heim fyrr en ég væri orðinn liðsforingi í sjóhernum og það varð
ég að efna. Framhald.
Leitin að gullnámum Salómós.
Renders hugsaði mikið um þessa frásögn Mógómas um gullnám-
urnar í fjollunum. Hann reyndi með ýmsu móti að fá það upp úr
honum, hvernig unt væri að komast þangað. En það bar engan ár-
angur. Mógóma, sagði, að það væri leyndardómur, sem enginn Maka-
langi mætti ljóstra upp. Renders fór margar rannsóknarferðir um
hinar fornu rústir og fann ýmsa markverða hluti. I kastalanum uppi
á hæðinni fann hann herbergi eitt, þar sem gull hafði sennilega
verið brætt, því að þar voru enn þá gamlar deiglur, og á víð og
dreií fann hann gullmola og skartgripi úr undnum gullvír( mjög
hagiega gerða. Virtist alt benda til þess, að þjóðflokkur sá, er bygöi
þessa borg, hafi oi’ðið að yfirgefa hana snögglega af einhverjum
óvæntum ástæðum.
Þessi merkilegi fornmenjafundur heillaði svo hug Renders, ao
hann dvaldi í þrjú ár meðal Makalanganna. Hann bygði sér kofa
undir bjargi einu, og þar andaðist hann eftir stutta legu, án þess
að hafa komist að leyndarmálinu um veginn til gullnámanna í
fjöllunum.
En sagan um fund Zimbabwe, en svo var þessi forna borg nefnd,
barst til Vesíurálfu, og áður en langt um leið, komu vísindamenn
til þess að rannsaka hinar fornu rústir. Þeir komust að þeirri nið-
urstöðu, að þsssi borg hefði á sínum tíma verið ein af stórborgum
heimsins, pg að allar líkur bentu til þess, að þar hefðu fjárhirslur
Salómós konungs verið.
Ekkert hefir samt fundist í Zimbabwe, sem gæti bent til þess
hvar námur Salómós hafi verið. 1 hæðunum umhverfis borgina hafa
að vi'su fundist gömul námugöng, og úr þeim hefur bersýnilega veriö
unnio gull á hðnum öldum, en þau eru ábyggilega ekki guli-
hellar þeir, sem leitað hefur verið að svo öldum skiftir. Salómó hlýt-
nr að hafa fengið auð sinn úr ríkari námum.
En ef hinir fornu múrar Zimbabwe-borgar gætu talað, mundu
þeir vafalaust geta sagt. heillandi sögur af dýrð þeirri, er þar ljóm-
aði fyrir þrjú þúsund árum. Framhald.
152
OTRÖLEGT — EN SATT