Fréttablaðið - 18.01.2023, Blaðsíða 2
Hann er algjör goð-
sögn á Íslandi og
ótrúlega vinalegur.
Tómas
Guðbjartsson,
hjartalæknir og
fjallagarpur
Tré víkur fyrir framkvæmdum
Tré fellt við Suðurlandsbraut á hinni svokölluðu Orkuhússlóð. Allt að 500 íbúðir verða byggðar á lóðinni sem nær einnig yfir á Ármúlann. Fréttablaðið/Valli
2 fréTTir FRÉTTABLAÐIÐ 18. jAnúAR 2023
MiÐViKUDAGUr
- einfaldara
getur það
ekki verið!
ninarichter@frettabladid.is
menning Föstudaginn 13. janúar
ögraði Borgarleikhúsið örlaganorn-
unum með frumsýningu á Macbeth.
Óvænt bilun leiddi til þess að tæpra
fjörutíu mínútna hlé var gert á sýn-
ingu. Samkvæmt gamalli hjátrú má
ekki nefna hið fjögur hundruð ára
gamla verk á nafn í leikhúsi, ella fer
allt í skrúfuna.
„Þetta var svokallaður upsi, vara-
af l gjarnan notað á tölvubúnað,“
segir Kári Gíslason, skipulagsstjóri
Borgarleikhússins, um bilunina sem
á sér engin fordæmi. „Hann bilaði og
fór að senda út spennuspæka, raf-
magnstoppa, sem ollu því að tækin
voru að slá út,“ segir hann.
Kári líkir tækinu við gagnnjósn-
ara. „Þetta var tækið sem átti að
verja okkur,“ segir hann og hlær.
Hléið lengdist í 38 mínútur vegna
þess hve vel gestir hússins skemmtu
sér frammi. „Það tók góðan tíma að
ná fólkinu aftur inn,“ segir hann.
Hjörtur Jóhann Jónsson leikari
fer með aðalhlutverkið. Hann sagði
í samtali við Fréttavaktina í gær
að leikhópurinn hefði haft gaman
af uppákomunni. „Þetta var svo
hreint og tært leikhús-augnablik.
Leikhúsið er list augnabliksins.“ n
Gagnnjósnari olli bilun á Macbeth
Kári Gíslason,
skipulagsstjóri
Borgarleik
hússins
birnadrofn@frettabladid.is
HeiLBRigÐiSmÁL Mik ið er um
streptókokkasýkingar hér á landi,
þá sérstaklega hjá börnum. Sigríður
Dóra Magnúsdóttir, framkvæmda-
stjóri lækninga hjá Heilsugæslunni
á höfuðborgarsvæðinu, segir ekki
ástæðu til að hafa áhyggjur en hvet-
ur þau sem finna fyrir einkennum
til að leita til heilsugæslunnar.
„Streptókokkasýkingar koma
alltaf upp á veturna en núna er
í gangi streptókokkasýking sem
reynst hefur erfitt að ráða við. Þetta
er búið að vera svona í allan vetur,“
segir Sigríður Dóra.
Helstu einkenni streptókokka-
sýkingar eru hiti og mjög sár verkur
í hálsi. Sýkingin er smitandi en
samkvæmt Sigríði þó ekki þannig
að fara þurfi í sóttkví eða eitthvað
slíkt. „Bara passa að spritta og þvo
hendur.“
Spurð að því hvort fólk þurfi
sýklalyf við sýkingunni segir hún
það algengt. „Allavega þau sem eru
lasin,“ segir hún. n
Streptókokkar
grassera í landinu
Sigríður Dóra
Magnúsdóttir,
framkvæmda
stjóri lækninga
Sjerpinn Dendi, sem hefur
hjálpað á þriðja hundrað
Íslendingum við rætur
Himalajafjalla, er staddur
hér á landi og sagði sögur frá
starfi sínu á sérstakri góð-
gerðarsamkomu í gær. Forseti
Íslands lagði málefninu lið
en markmiðið er að kaupa
hlýjan fatnað fyrir fátæk börn
í heimabæ Dendi.
kristinnpall@frettabladid.is
SamféL ag Hjartalæknirinn og
fjallagarpurinn Tómas Guðbjarts-
son stóð fyrir sérstakri góðgerðar-
samkomu fjallaáhugafólks í gær þar
sem allur ágóði rennur til fátækra,
munaðarlausra barna í heimabæ
Sjerpans Dendi í Taksindu í Nepal.
Dendi mætti kalla Íslandsvin
því hann hefur aðstoðað á þriðja
hundrað Íslendinga við rætur
Himalajafjalla. Hann hitti forseta
Íslands, Guðna Th. Jóhannesson, í
gær og færði honum um leið að gjöf
nepalskan viðhafnartrefil (khata)
og mandölu-listaverk, en Guðni var
fyrsti Íslendingurinn til að leggja
söfnuninni lið.
„Þetta eru sennilega á bilinu 250–
280 Íslendingar sem ég hef aðstoðað.
Það hefur helst verið í grunnbúðum
Everest en líka í Annapurna, Ama
Dablam og Imja Tse,“ segir Dendi
sem hefur aðstoðað þekkta fjalla-
kappa eins og Harald Örn Ólafsson,
Vilborgu Örnu Gissurardóttur og
John Snorra Sigurjónsson heitinn.
Dendi ber Íslendingum vel söguna
þegar talið berst að reynslu hans
af þeim á leið upp á hæstu tinda
heims.
„Íslendingar eru of boðslega
indælir. Þetta er önnur ferð mín til
Íslands, sú fyrsta var árið 2017 og
ég kann afskaplega vel við landið,“
segir Dendi sem hefur nýtt ferðina
til að fara í fjallgöngur um Ísland.
Tómas segir marga fagnaðar-
fundi hafa átt sér stað á Íslandi þar
sem göngugarpar hittu Dendi á ný
eftir langa fjarveru. „Hann er algjör
goðsögn á Íslandi og ótrúlega vina-
legur. Hann er líka ótrúlega fær í
að redda hlutum fyrir einstaklinga
sem eru á ferðalagi um Nepal. Ég
hafði sérstakan áhuga á að kynna
mér heilsugæslu í fátækari þorp-
unum og honum tókst að aðstoða
mig að heimsækja sjúkrahús og sjá
hluti sem eru allt öðruvísi en hérna
heima,“ segir Tómas.
„Ísland er enn lítið land og við
hittum fyrrverandi ferðafélaga í
Vesturbæjarlaug og annan í fyrir-
tæki sem við heimsóttum. Það
vilja allir fá að faðma hann,“ segir
Tómas og bætir við að Dendi hafi
verið boðið í margar skötuveislur í
aðdraganda jólanna.
„Þetta málefni er mér ofboðslega
kært. Þetta rennur allt til fátækra
barna í Nepal,“ segir Dendi en
Tómas segir markmiðið að safna
150 þúsund krónum til að kaupa
hlýjan fatnað fyrir fátæk börn í
Taksindu. n
Sjerpi með ríka tengingu
við Ísland safnar fyrir börn
Dendi ásamt forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, en hann varð fyrstur
til að veita málstaðnum lið. Fréttablaðið/ernir