Fréttablaðið - 18.01.2023, Blaðsíða 8
Ástand heimsins
Birtingarmynd baráttunnar er misjöfn og á
meðan sumir berjast fyrir breyttum heimi
þurfa aðrir að berjast fyrir landi sínu, við tárin
eða jafnvel fyrir næstu máltíð.
Ólík barátta
Hvítu englarnir,
lögreglusveit
í Úkraínu sem
sérhæfir sig í
að sækja lík og
líkamsleifar og
flytja í líkhús,
við störf í Bak-
hmút í austur-
hluta Úkraínu
eftir sprengju-
árás Rússa.
Myndir/EPA
Loftslagsbaráttukonan Greta Thunberg var viðstödd loftslagsmótmæli nærri þýska þorpinu Lützerath. Til stendur að jafna þorpið við
jörðu fyrir kolanámu þrátt fyrir stefnu yfirvalda um að hætta kolanotkun í áföngum í Þýskalandi.
Pavlos, áður
krónprins
Grikklands,
stendur við
kistu föður síns
í konunglegri
útför í Aþenu.
Konstantín us
II, fyrrverandi
konungur Grikk-
lands, lést 10.
janúar síðast-
liðinn, 82 ára að
aldri.
Hafernir takast á nærri bráð í Hortobagy-þjóðgarðinum í Ungverjalandi.
Árlega fer fram talning á ránfuglum sem hafa vetursetu í garðinum.
Maður og asni stilla sér upp fyrir sjálfu í tilefni af hátíð
heilags Antons, verndardýrlings dýra, í Valencia á Spáni.
8 fréttir FRÉTTABLAÐIÐ 18. jAnúAR 2023
MiÐViKUDAGUr