Fréttablaðið - 18.01.2023, Blaðsíða 12
helgisteinar@frettabladid.is
Hin árlega Viður kenningar há tíð
FKA, Félags kvenna í atvinnulífinu,
mun fara fram á Hótel Reykja vík
Grand þann 26. janúar þar sem þrjár
konur verða heiðraðar. Dóm nefnd
skipuð sjö einstaklingum hefur
legið undir feldi og farið yfir fjöl
margar til nefningar af landinu öllu.
Chanel Björk Sturludóttir, einn
af meðlimum dómnefndarinnar,
segir að hópnum hafi samið mjög
vel og eins hafi verkefnið verið mjög
gefandi. Mörg ólík sjónarmið hafi
komið fram sem endurspegluðust
í áhugaverðum umræðum, en við
skipan dóm nefndar var leitast við
að setja saman ein stak linga sem
hefðu sem fjölbreyttastan bak grunn
í aldri, reynslu, bú setu og upp runa.
„Mér fannst mjög skemmtilegt
að sjá að tilnefningar komu frá svo
mörgum ólíkum sviðum innan
atvinnulífsins. Það voru margar
tilnefningar úr hinum ýmsu list
greinum auk hönnunar og nýsköp
unar. Maður sér að það er komin ný
áunnin virðing fyrir þessum fjöl
breyttu atvinnugreinum.“
Dóm nefndin mun velja konur
sem hljóta FKAviður kenninguna,
þ a k k a r v iðu r ke n n i ng u n a o g
h v a t n i n g a r v i ð u r
kenning u na . Hú n
segir að sér hafi fundist
einstaklega gaman að ræða
tilnefningar fyrir hvatningarviður
kenninguna.
„Þetta eru einstaklingar sem eru
akkúrat á þeim stað á ferli sínum að
þau geta fengið aukna orku við að
fá svona viðurkenningu. Það sendir
líka mikilvæg skilaboð til annarra
einstaklinga sem eru kannski í svip
uðum rekstri eða með svipaðan
bakgrunn,“ segir Chanel.
Viður kenningin var fyrst veitt árið
1999 en á tímum heims far aldurs
Covid19 var Viður kenningar há tíð
FKA haldin í sjón varps þætti í sam
starfi við Torg. Há tíðin í ár verður
einnig í beinu
streymi á vefsíðu
Frétta blaðsins. n
Það voru margar tilnefn-
ingar úr hinum ýmsu
listgreinum auk hönn-
unar og nýsköpunar.
Chanel Björk
Sturludóttir
Meiri virðing borin fyrir
nýjum atvinnugreinum
helgisteinar@frettabladid.is
Tveir eru látnir og hluti verksmiðju
brann til grunna eftir átök milli
kínverskra og indónesískra starfs
manna við nikkelbræðslu í Indó
nesíu. Átökin eru dæmi um reiðina
sem ríkir í landinu í garð kínverskra
fjárfesta í námurekstri.
Slagsmálin brutust út á laugar
daginn við PT Gunbuster Nickel
Industryverksmiðjuna, sem er í
eigu kínverska fyrirtækisins Jiangsu
Delong Nickel Industry Co. Tals
maður lögreglunnar segir að starfs
menn hafi beitt rörum og kastað
steinum í miðjum átökum áður en
þeir kveiktu í matsalnum, tugum
herbergja og vélarbúnaði verk
smiðjunnar.
Kínverjar hafa fjárfest gríðarlega
í nikkelforða Indónesíu á undan
förnum árum en nikkel er mikið
notað í rafgeyma fyrir rafmagns
Létust eftir slagsmál í nikkelbræðslu
Kínverjar hafa fjárfest gríðarlega í nikkelforða Indónesíu. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
bíla og í stálframleiðslu. Ríkisstjórn
Indónesíu heimilar ekki útflutning
á hráu nikkeli og neyðast þar með
erlendir fjárfestar til að reisa verk
smiðjur sínar í landinu.
Fjárfestingin hefur meðal ann
ars leitt til aukins fjölda kínverskra
verkamanna í landinu og vilja indó
nesísk verkalýðsfélög meina að sú
þróun taki störf frá heimamönnum.
Mikil spenna hefur einnig verið í
verksmiðjunni eftir vinnuslys sem
varð til þess að tveir indónesískir
starfsmenn brunnu til bana. n
Kaup, sala og
samruni fyrirtækja.
kontakt@kontakt.is I 414 1200 I www.kontakt.is
FYRIRTÆKJARÁÐGJÖF
• Verðmat
• Ráðgjöf og undirbúningur
fyrir sölumeðferð
• Milliganga um fjármögnun
• Samningagerð
Í næstu viku gefur Sigurður
Þórðarson, fyrrverandi settur
ríkisendurskoðandi í mál
efnum Lindarhvols ehf., sem
fór með stöðugleikaeignir
frá föllnu bönkunum, vitna
skýrslu í Héraðsdómi Reykja
víkur. Þá gætu orðið opin
berar upplýsingar sem forseti
Alþingis hefur haldið leyndum
frá því í apríl í fyrra varðandi
starfsemi Lindarhvols.
olafur@frettabladid.is
Í næstu viku verður málflutningur
í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli
Frigusar II gegn íslenska ríkinu og
Lindarhvoli ehf. vegna meints tjóns
sem Frigus II varð fyrir þegar Lindar
hvoll, fyrir hönd íslenska ríkisins,
gerði kaupsamning 1. nóvember
2016, við BLM fjárfestingar ehf.
um kaup þess á skuldakröfum og
eignarhlutum ríkisins í Klakka ehf.
að undangengnu útboði.
Frigus II heldur því fram að Lind
arhvoll hafi brotið með margvís
legum hætti gegn reglum sem gilt
hafi um félagið og reglum útboðs
og stjórnsýsluréttar um gagnsæi og
jafnræði bjóðenda.
Athygli hefur vakið að Steinar Þór
Guðgeirsson lögmaður skuli hafa
verið valinn til að gæta hagsmuna
íslenska ríkisins í málinu, en Steinar
Þór var umsjónaraðili Lindarhvols,
samkvæmt samningi við fjármála
ráðuneytið og ágreiningsefni snýst
að verulegum hluta um gjörðir hans
og ákvarðanir í því hlutverki.
Steinar Þór þarf að gefa vitna
skýrslu fyrir dómi í málinu og dóm
ari úrskurðaði að þá skýrslu verði að
gefa áður en annar málflutningur
hefst vegna þess að vitni má ekki
fylgjast með því sem fram kemur
í málf lutningi áður en það gefur
skýrslu og lögmaður aðila verður að
geta fylgst með öllum málflutningi
málsins. Steinar Þór barðist gegn
því að þurfa að gefa vitnaskýrslu
áður en annar málflutningur hæfist
en dómari féllst ekki á hans rök.
Steinar Þór barðist einnig gegn því
að Frigus II fengi að leiða fyrir dóm
vitnin Þór Hauksson, Valtý Sigurðs
son og Sigurð Þórðarson, fyrrverandi
settan ríkisendurskoðanda til að
endurskoða ársreikning Lindarhvols
og annast eftirlit með framkvæmd
samningsins milli fjármálaráðu
neytisins og Lindarhvols.
Héraðsdómur heimilaði að Þór
og Valtýr yrðu kallaðir sem vitni en
ekki að Sigurður Þórðarson fengi að
bera vitni. Rétt fyrir jól úrskurðaði
Landsréttur hins vegar að Sigurður
fengi að bera vitni í málinu.
Í svari við fyrirspurn frá Frétta
blaðinu segir Fanney Rós Þorsteins
dóttir ríkislögmaður að fyrir komi
að embættið leiti til sjálfstætt starf
andi lögmanna til að „annast hags
muni íslenska ríkisins fyrir dómi
og þá jafnan að höfðu samráði við
hlutaðeigandi ráðuneyti“. Að sögn
Fanneyjar Rósar taldi fjármála og
efnahagsráðuneytið að hagsmunir
Lindarhvols og ríkissjóðs færu
saman í málinu og því hefði Steinari
verið falið að fara jafnframt með
málið fyrir hönd ríkisins.
Í framhaldi af þessu svari beindi
Fréttablaðið þeirri spurningu til
ríkislögmanns í síðustu viku hvort
henni væri kunnug einhver dæmi
þess að lögmaður sem tekið hefði að
sér störf ríkislögmanns í dómsmáli
hafi verið kvaddur sem vitni í því
sama máli. Engin svör hafa borist.
Þegar Sigurður Þórðarson lét af
störfum sem settur ríkisendurskoð
andi í málefnum Lindarhvols skilaði
hann skýrslu til forsætisnefndar
Alþingis með harðorðri gagnrýni um
ótal mörg atriði í starfsemi félagsins
og beindist gagnrýni hans meðal
annars að eftirliti með störfum
Steinars Þórs Guðgeirssonar.
Forsætisnefnd Alþingis samþykkti
í apríl í fyrra að gera skýrslu Sigurðar
opinbera en Birgir Ármannsson
hefur upp á sitt einsdæmi setið á
henni og neitað að gera hana opin
bera, vegna andstöðu fjármála
ráðuneytisins. Nú liggur hins vegar
fyrir að Sigurður gefur Héraðsdómi
Reykjavíkur skýrslu um málið í
næstu viku og mögulega verða þá
opinberar þær upplýsingar sem
Birgir Ármannsson og fjármála
ráðuneytið virðast fyrir alla muni
vilja halda leyndum. n
Lindarhvolsmálið fyrir dóm
Birgir Ár-
mannsson,
forseti Alþingis,
hefur neitað
að afhenda
skýrslu Sigurðar
Þórðarsonar
þrátt fyrir að
forsætisnefnd
hafi samþykkt
að gera það.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Steinar Þór
Guðgeirsson,
lögmaður og
fyrrverandi
umsjónaraðili
Lindarhvols
Sigurður
Þórðarson, fyrr-
verandi settur
ríkisendurskoð-
andi um málefni
Lindarhvols
12 Markaðurinn FRÉTTABLAÐIÐ 18. jAnúAR 2023
MiðVikuDaGur