Fréttablaðið - 18.01.2023, Page 14
Útgáfufélag: Torg ehf. Stjórnarformaður: Helgi Magnússon forStjóri og Útgefandi: Jón Þórisson ritStjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is aðStoðarritStjóri: Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is
fréttaStjóri: Lovísa Arnardóttir lovisa@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út fimm daga í viku og hægt er að nálgast það ókeypis á 120 fjölförnum stöðum á höfuðborgarsvæðinu, á Suðurnesjum, Árborg, Ölfusi, Akranesi, Borgarnesi,
Akureyri og víðar. Að auki er blaðið aðgengilegt í pdf-formi og í appi. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 fréttaBlaðið Kalkofnsvegur 2, 101
reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is. VefStjóri: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is marKaðurinn: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is HelgarBlað: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is
menning: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is Íþróttir: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
halldór
Frá degi til dags
Ég sit alltaf
í sömu
umferðar-
súpunni
og aðrir
klukkan
16.15.
Það er
mikil-
vægara að
halda sam-
starfinu
gangandi
en að
standa fast
við sann-
færinguna
og gildin.
Lovísa
Arnardóttir
lovisaa
@frettabladid.is
Í Stjórnarskránni segir: „Alþingismenn eru eingöngu
bundnir við sannfæringu sína og eigi við neinar
reglur frá kjósendum sínum.“ Þó virðist stundum
sem þessi sannfæring skipti ansi litlu máli. Stundum
greiða þingmenn nefnilega atkvæði með málum sem
ganga þvert á yfirlýst gildi þeirra – eins og sann-
færing þingmannsins sé látin víkja fyrir sannfæringu
f lokksforystunnar.
Nú ætla ríkisstjórnarflokkar Vinstri grænna, Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknar til að mynda að keyra
útlendingafrumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmála-
ráðherra í gegnum þingið og gera það að lögum.
Þetta er í fimmta sinn sem frumvarpið er lagt fyrir
þingið. Frumvarpið hefur beðið gallsúrt skipbrot ár
eftir ár innan þingsins vegna þess hve vanhugsað,
mannfjandsamlegt og hroðvirknislega unnið það er
í hvert sinn.
Útgáfa þessa löggjafarþings er engin undan-
tekning. Frumvarpið skerðir réttindi fólks á f lótta og
brýtur gegn lögbundnum réttindum barna. Ekki nóg
með það, heldur mun óskilvirkni í kerfinu aukast.
Umsóknum mun fjölga og úrvinnsla mun taka lengri
tíma. Sífellt f leiri umsækjendur um vernd munu
velkjast um í kerfinu árum saman. Þetta frumvarp er
bagalegt á alla kanta.
Núna virðist þó sem Sjálfstæðisflokkurinn hafi
sagt: „Hingað og ekki lengra; við afgreiðum útlend-
ingafrumvarpið eða þetta samstarf er búið.“ Og hvað
gera hinir meirihlutaflokkarnir þá? Þeir einfald-
lega lúffa. Það er mikilvægara að halda samstarfinu
gangandi en að standa fast við sannfæringuna og
gildin.
Ætli þingmenn Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs hafi fundað um málið og komist að þeirri
niðurstöðu að innihald frumvarpsins samræmist
þeirra gildum? Eða er ekki hitt þó heldur líklegra,
að gildin séu látin víkja fyrir sannfæringunni um að
f lokksforystunni beri að hlýða í einu og öllu?
Fyrir síðustu kosningar básúnaði VG viðstöðu-
laust um að það „skipti máli hver stjórnar“. Kjós-
endur þeirra virðast því miður hafa keypt köttinn í
sekknum, því þau hefðu allt eins getað kosið Sjálf-
stæðisflokkinn – svo hverful er sannfæring þing-
manna Vinstri grænna. n
Sannfæring í pólitík
Gísli Rafn
Ólafsson
þingmaður Pírata
Okkur Íslendingum finnst svo
gaman að slá met. Við erum
einmitt búin að vera að slá
eitt slíkt síðustu daga. Þetta er
meira að segja met á þessari
öld eða það sagði sérfræðingur Umhverfis-
stofnunar í Fréttablaðinu í gær. Ég er ekkert
sérstaklega stolt af þessu meti samt.
Samkvæmt reglugerð mega loftmengun-
argildi ekki fara yfir 200 nema 18 sinnum
á ári. Á þessu ári er það búið að gerast 40
sinnum og við erum núna á degi 18 og
þannig erum við búin að setja nýtt met.
Sérfræðingurinn, Þorsteinn Jóhannsson,
sagði líka að við gætum spennt horft til
næstu helgar en þá á að vera bæði rok og
rigning og þá nær mengunin ekki að hanga
yfir okkur eins og hún hefur gert síðustu
daga í miklu frosti og stillu.
Mér finnst reyndar bara ekkert spennandi
við veðurspána næstu helgi en fyrir utan
það þá er það kannski eitthvað skrítið að
vera að tala um veðrið þegar við eigum að
vera að tala um mengunina. Veðrið er auð-
vitað faktor í málinu, ég neita því ekki, en
það er ekki aðalmálið. Ekki að mínu mati.
En við getum líklega öll verið sammála
um staðreyndir málsins sem eru að loft-
mengunin er of mikil því hér eru of margir
sem fara allra sinna ferða á bíl. Allt of
margir.
En ég hef alveg skilning á því. Því þetta
er bara svo erfitt. Ég tek strætó í vinnuna á
hverjum degi og reyni að nota aðra ferða-
máta eins og að hjóla og ganga þegar ég
get, og auðvitað nenni, en viðurkenni að
síðustu daga hef ég ekkert mjög oft nennt
því.
Því þótt ég leggi mitt fram og noti
almenningssamgöngur á hverjum degi er
ég ekkert betur sett en þau sem gera það
ekki. Ég sit alltaf í sömu umferðarsúpunni
og aðrir klukkan 16.15 og vona að ég nái og
að ég verði komin tímanlega til að sækja
barnið mitt áður en loka á leikskólanum
16.30. Yfirleitt kem ég hlaupandi inn 16.28
eftir að hafa setið í umferðarteppu á Sund-
laugavegi í um tólf mínútur.
Manni finnst lausnin í þessu eitthvað svo
augljós. Að það þurfi hvata til að skipta.
Þeir geta verið margs konar. Fjárhagslegir
og sem snerta tíma okkar, því hann skiptir
okkur öll máli og á meðan við erum að
fara yfir loftmengunarmet 40 sinnum á
18 dögum er nokkuð ljóst að fólki finnst
hvatinn ekki vera til staðar. n
Met sem við
viljum ekki slá
info@arcticstar.is - www.arcticstar.is
Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618
MARINE COLLAGEN
Kollagen er eitt helsta uppbyggingarprótein líkamans.
Kollagen er að finna í öllum liðum, liðamótum, vöðvum,
sinum og beinum mannslíkamans.
Arctic Star Marine Collagen inniheldur
íslensk sæbjúgu, kollagen úr þorskroði
og C vítamíni.
C vítamín er þekkt fyrir:
• Stuðlar að eðlilegri myndun kollagens
fyrir starfsemi brjósks, beina og húðar.
• Stuðlar að eðlilegri starfsemi tauga-
kerfisins og ónæmiskerfisins.
• Stuðlar að því að verja frumur fyrir
oxunarálagi og draga úr þreytu og lúa.
• Stuðlar að endurnýjun afoxaðs forms
E-vítamíns og auka upptöku járns.
• Stuðlar að eðlilegum orkugæfum
efnaskiptum.
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA,
Framleiðandi er Arctic Star ehf.
Allar nánari upplýsingar fast www.arcticstar.is
Arctic Star Marine Collagen
Varan fæst í flestum apótekum, heilsubúðum,
Hagkaupum, Fjarðakaup og Heimkaup.is
kristinnhaukur@frettabladid.is
Saurlát Viðskiptablaðsins
Það má með sanni segja að Við-
skiptablaðið hafi skitið í heyið
með klámfenginni fyrirsögn um
Kristrúnu Frostadóttur, formann
Samfylkingarinnar. Ótímabært
sáðlát, hét pistillinn, skrifaður úr
launsátri undir nafnleysi og hug-
leysi. Tý kalla þeir sig, blaðamenn-
irnir á Viðskiptablaðinu, þegar
þeir skrifa á þennan hátt. Týr var
hugprúðastur og djarfastur allra
ása. Já, stórt líta þeir á sig blaða-
mennirnir á Viðskiptablaðinu.
Svo stórt að þeir hafa um árabil
skrifað svokallaða fjölmiðla-
rýni, þar sem þeir gagnrýna aðra
fjölmiðla landsins. Hvort einhver
taki mark á slíkri gagnrýni lengur
skal ósagt látið. Sennilega skrifa
þeir þetta aðeins til að fróa eigin
hégóma.
Lélegir á skautum
Fjölmiðlamaðurinn Egill Helga-
son spyr hvers vegna borgin skafi
ekki Tjörnina fyrir skautasvell í
froststillunum. Ástæðan er hins
vegar augljós. Íslendingar hafa
engan áhuga á skautum. Þegar
Skautahöllin í Laugardal er opin
mæta þangað nánast aðeins börn
og útlendingar, aðallega frá Pól-
landi og fleiri löndum þar sem
skautahefðin er sterk. Íslendingar
hafa líka aldrei verið góðir á skaut-
um eða í skautaíþróttum. Árið
1998 tapaði íslenskt landslið fyrir
Kasakstan 63–0. Það er meira en
mark á mínútu. Margir halda að
Íslendingar séu góðir á skautum af
því að hér er kalt og út af Mighty
Ducks. Það er ekki rétt. n
14 skoðun FRÉTTABLAÐIÐ 18. jAnúAR 2023
MIðVIkuDAGuR