Fréttablaðið - 18.01.2023, Qupperneq 15
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
MIÐVIKUDAGUR 18. janúar 2023
Nýtur þess heils hugar að spila á
ný eftir tveggja ára hlé
Körfuboltakonan Danielle Rodriguez hefur reynst öflug lyftistöng fyrir lið Grindavíkur í
körfubolta eftir tveggja ára hlé frá íþróttinni. Hún segir bætiefnunum frá Feel Iceland vera
að hluta til að þakka árangursríka endurkomu á völlinn. 2
Körfuboltakonan Danielle Rodriguez hefur átt farsæla endurkomu í íþróttina síðustu mánuði og spilar sem einn af lykilmönnum körfuboltaliðs Grindavíkur.
Kollagenduft og Joint Rewind hylkin frá Feel Iceland eru eitt af því sem gera henni kleift að njóta sín á vellinum. Fréttablaðið/Valli
Myndin verður sýnd í Bíó Paradís í
kvöld. Fréttablaðið/StEFÁN
sandragudrun@frettabladid.is
Í tilefni af Veganúar verður heim-
ildarmyndin Slay sýnd í Bíó Paradís
í kvöld klukkan 21.00. Í myndinni
er skyggnst á bak við tjöldin í tísku-
iðnaðinum og skinna-, leður- og
ullariðnaðurinn rannsakaður, auk
grænþvottar og þeirra áhrifa sem
notkun tískumerkja á dýraskinni
hefur á fólk, jörðina og auðvitað
dýrin sjálf.
Framleiðendur myndarinnar eru
þeir sömu og framleiddu heim-
ildarmyndirnar Cowspiracy og
What the Health, sem hafa báðar
vakið verðskuldaða athygli. Slay
fylgir í fótspor þeirra mynda og
hefur þegar vakið mikið umtal, en
um hana hefur meðal annars verið
fjallað í Forbes og tískumiðlunum
WWD og thred. Þetta er í fyrsta
sinn sem myndin er sýnd á Íslandi,
sýningin er á vegum Samtaka
grænkera á Íslandi og Veganúar og
aðgangur er ókeypis.
Ókeypis að prófa
Veganúar er stærsta vegan hreyf-
ing í heiminum í dag og hvetur fólk
til að prófa að vera vegan í janúar-
mánuði og helst til frambúðar.
Ýmsir viðburðir hafa verið haldnir
á vegum Veganúar í janúar og fleiri
eru fram undan. Allir viðburðirnir
eru þátttakendum að endurgjalds-
lausu. Fyrir þau sem vilja taka þátt
í Veganúar er hægt að skrá sig og
fá þá sendar ýmsar gagnlegar upp-
lýsingar um vegan lífsstíl. Einnig er
hægt að finna ýmsar upplýsingar
og uppskriftabók á veganuar.is. n
Vegan og
tískuiðnaðurinn
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is