Fréttablaðið - 18.01.2023, Síða 19
Öll börn eiga rétt á
að vera vernduð gegn
ofbeldi. Ofbeldi getur
verið líkamlegt, and-
legt eða kynferðislegt.
„Ég lá andvaka í margar nætur og
hugsaði um hvernig ég gæti bjargað
litlu systur minni frá mömmu og
pabba,“ sagði mér kona sem hafði
verið tekin frá foreldrum sínum
sem barn vegna vanrækslu. Þessi
kona var eldri systirin sem hafði
fundið hjá sér kjark til að segja
frá ástandinu á heimilinu. Mikil
drykkja og stöðugt partístand. Hún
bjó í litlu samfélagi þar sem „allir“
vissu hvernig ástandið var, en eng-
inn gerði neitt. Enginn tilkynnti.
Það var ekki fyrr en hún sjálf sagði
frá að hún komst undan. En yngri
systir hennar var áfram á heimilinu.
Hún, sem barn, var með stöðugt
samviskubit yfir því að yngri systir
hennar hefði verið skilin eftir. Hún,
sem barn, var með stöðugt sam-
viskubit yfir því að hafa ekki getað
bjargað systur sinni. Enginn vernd-
aði hana í raun.
Óþægilegt að bjarga barni
Það er svo óþægilegt að tala um
þessa hluti. Að tala um þegar barn
verður fyrir ofbeldi, líkamlegu eða
kynferðislegu. Það er svo óþægi-
legt að segja upphátt: „Þú drekkur
of mikið og hugsar illa um barnið
þitt.“ Það er svo óþægilegt til þess
að hugsa ef einhver kemur til manns
og segir: „Varst það þú sem klagaðir
mig til barnaverndar? Þú sem ert
engu skárri? Viltu að barnið verði
foreldralaust? Ég elska barnið mitt?“
Allt er þetta svo hryllilega óþægilegt
og sérstaklega í litlu samfélagi eins
og okkar.
En hverju erum við að fórna til að
forðast þessi óþægindi? Mögulega
heilli mannsævi og kannski fleiri en
einni mannsævi. Ef ekki er hlúð að
barninu og það fær rétta umönnun,
vernd, næringu og athygli, þá er allt
eins líklegt að það vaxi úr grasi sem
brotinn einstaklingur. Einstakling-
ur sem gæti átt erfitt með að fóta sig
í lífinu, þátttöku í samfélaginu, gæti
átt við langvarandi kvíða, þung-
lyndi eða önnur veikindi að stríða.
Það getur verið rándýrt að forðast
þessi óþægindi. Dýrt í víðasta skiln-
ingi þess orðs, það er félagslega, til-
finningalega, fjárhagslega og sam-
félagslega dýrt.
Verndaðu barnið með okkur
Öll börn eiga rétt á að vera vernduð
gegn of beldi. Of beldi getur verið
líkamlegt, andlegt eða kynferðis-
legt. Refsingar og einelti teljast
líka til of beldis og þá skiptir engu
hver beitir refsingunni. Það að búa
við of beldi á heimili telst einnig
ofbeldi, svo sem ef barn er vitni að
ofbeldi sem er beitt á heimilinu, þó
það snúi ekki beint að barninu. Ef
þig grunar að barn búi við óviðun-
andi uppeldisaðstæður, verði fyrir
áreitni eða of beldi, þá er þér skylt
að tilkynna það til barnaverndar
eða lögreglu. Mjög brýnt er að
sinna þeirri skyldu og tilkynna öll
tilfelli, hvort sem þau hafa átt sér
stað innan fjölskyldu barnsins eða
af hálfu einhvers annars. Allar til-
kynningar telja og eru vistaðar í
gagnagrunnum viðeigandi emb-
ætta eða stofnana. Barnaheill hafa
lagt sig fram um að vera leiðandi í
baráttunni gegn ofbeldi á börnum
ásamt því að standa vörð um rétt-
indi barna.
Barnaheill bjóða upp á ráðgjöf og
námskeið til foreldra og starfsfólks
sem starfa með eða fyrir börn sem
hefur verið einn af hornsteinum
starfsins.
Ég hvet þig, lesandi góður, til að
sýna hugrekki og vera verndari
barna í hvívetna. Þú getur einnig
lagt lið með því að gerast Heilla-
vinur Barnaheilla. n
Að vernda barnið sem liggur andvaka
Ellen Calmon
framkvæmdastýra
Barnaheilla
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
ÚTSALA
á sýningarvörum í verslun
Borðstofuborð, borðstofustólar, eldhússtólar,
sófaborð, sófar o.fl. o.fl.10-60%
afsláttur
Ciro 3 litir
Áður 39.900
NÚ 29.900
Alison
snúnings
Áður 33.900
NÚ 27.000Sierra
nokkrir litir
Áður 25.700
NÚ 19.200
Kato svart
Áður 29.900
NÚ 19.400
Adele
Áður 39.900
NÚ 23.900
Obling 3ja sæta
Áður 129.000 NÚ 103.000
Brookliyn borðstofuborð
220x98, stækkun 2x50 cm, reykt eik – hvítuð eik
Áður 199.000 NÚ 149.000
Notthingham sófaborð
Áður 116.000 NÚ 58.000
Hill hvíldarstóll með tauáklæði
Áður 176.000 NÚ 123.000
Staturn 3ja sæta
Áður 159.000 NÚ 119.000
25%
25%
25%
25%
40%
50%
35%
30%
20%
20%
FréttAblAðið skoðun 1518. jAnúAr 2023
MIðVIkuDAGuR