Víkurfréttir - 23.03.2022, Blaðsíða 2
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
Valgerður Björk Pálsdóttir doktors-
nemi í stjórnmálafræði leiðir lista
Beinnar leiðar í sveitarstjórnar-
kosningum í Reykjanesbæ í vor.
Í öðru sæti er Helga María Finn-
björnsdóttir viðskiptafræðingur
og mannauðsráðgjafi hjá Isavia og
í þriðja sæti er Birgir Már Bragason
málari og atvinnurekandi. Bein
leið er óflokksbundið bæjarmála-
félag sem hefur verið þátttakandi í
meirihlutasamstarfi í Reykjanesbæ
undanfarin tvö kjörtímabil.
Framboðslisti Beinnar leiðar 2022:
Valgerður Björk Pálsdóttir, 35 ára,
doktorsnemi í stjórnmálafræði og
kennari við HÍ.
Helga María Finnbjörnsdóttir, 41 árs,
viðskiptafræðingur og mannauðs
ráðgjafi hjá Isavia.
Birgir Már Bragason, 49 ára, málari
og atvinnurekandi.
Halldór Rósmundur Guðjónsson, 55
ára, lögfræðingur.
Sigrún Gyða Matthíasdóttir, 34 ára,
leikskólastjóri Akurs.
Davíð Már Gunnarsson, 33 ára,
forstöðumaður Fjörheima og 88
hússins.
Kristján Jóhannsson, 54 ára, leið
sögumaður.
Þuríður Birna Björnsdóttir Debes,
23 ára, háskólanemi í uppeldis og
menntunarfræði.
Jóhann Gunnar Sigmarsson, 41 árs,
grunnskólakennari í Njarðvíkur
skóla.
Rannveig L. Garðarsdóttir, 65 ára,
bókavörður í Bókasafni Reykjanes
bæjar.
Þórarinn Darri Ólafsson, 19 ára,
nemi í Fjölbrautaskóla Suður
nesja.
Harpa Jóhannsdóttir, 34 ára, tón
listarkennari í Tónlistarskóla Reykja
nesbæjar.
Davíð Örn Óskarsson, 36 ára, mark
aðsstjóri Blue Car Rental.
Justyna Wróblewska, 32 ára, deildar
stjóri í leikskóla og BA í sálfræði.
Hannes Friðriksson, 64 ára, innan
húsarkitekt.
Eygló Nanna Antonsdóttir, 18 ára,
nemi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Sólmundur Friðriksson, 54 ára, verk
efnastjóri hjá Keili.
Aleksandra Klara Wasilewska,
26 ára, þjónustufulltrúi í Ráðhúsi
Reykjanesbæjar.
Hrafn Ásgeirsson, 66 ára, lögreglu
maður .
Freydís Kneif Kolbeinsdóttir, 49
ára, grunnskólakennari í Gerða
skóla.
Kolbrún Jóna Pétursdóttir, 54 ára,
lögfræðingur hjá Lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu.
Guðbrandur Einarsson, 64 ára, al
þingismaður.
valgerður björk leiðir lista
beinnar leiðar í reykjanesbæ
Formaður umhverfis- og skipu-
lagsráð Reykjanesbæjar lagði á
síðasta fundi ráðsins fram tillögu
um skipun stýrihóps sem vinni til-
lögu að Hjólreiðaáætlun Reykja-
nesbæjar 2022–2026 og leggi fyrir
umhverfis- og skipulagsráð.
Hjólreiðaáætlunin verði hluti
af heildarsýn á samgöngur, þróun
byggðar og lífsgæði í fjölbreyttu
sveitarfélagi í takti við svæðis
skipulag Suðurnesja, aðalskipulag
Reykjanesbæjar og umhverfis og
loftslagsstefnu Reykjanesbæjar.
Meginmarkmið hjólreiðaáætl
unarinnar verði að efla hjólreiðar í
Reykjanesbæ með því að þétta og
bæta hjólanetið í bænum og bæta
tengingar við nágrannasveitarfélög.
Í áætluninni verði staðan greind og
sett fram framtíðarsýn fyrir hjól
reiðauppbyggingu í Reykjanesbæ
með mælanlegum markmiðum til
ársins 2026 auk þeirra framkvæmda
og aðgerða sem stefnt er að á tíma
bilinu.
Umhverfis og skipulagsráð
samþykkti tillöguna og skipar Ey
steinn Eyjólfsson og Róbert J. Guð
mundsson í stýrihópinn.
Fimm hæðir
með 60 íbúðum
ásamt verslun
og þjónustu að
iðjustíg 1
JeES arkitektar ehf. hafa lagt fram
frumdrög að deiliskipulagstillögu
fyrir Iðjustíg í Reykjanesbæ. Er-
indið var kynnt á síðasta fundi um-
hverfis- og skipulagsráðs Reykja-
nesbæjar. Tillagan er af fimm hæða
húsi með 60 íbúðum og 700 m2
rými fyrir verslun og þjónustu. Nýt-
ingarhlutfall ofanjarðar verði 1,6.
Umhverfis og skipulagsráð hefur
samþykkt er heimild til að vinna
tillögu að deiliskipulagsbreytingu
í samvinnu við skipulagsfulltrúa.
Skipulagssvæði þarf að fylgja lóða
mörkum og ná yfir heild. Skipulagið
nái yfir Iðjustíg 1, Hafnargötu 91 og
Pósthússtræti 5, 7 og 9. Erindinu var
frestað og skipulagsfulltrúa falið að
vinna málið áfram.
Iðjustígur 1 í Reykjanesbæ.
Stýrihópur vinni Hjólreiða-
áætlun Reykjanesbæjar
Stjórn Reykjaneshafnar fagnar því framtaki sem felst í endurreisn Siglinga-
félagsins Knarrar. Stjórnin samþykkti samhljóða stöðuleyfi viðkomandi
aðstöðu og vonar að starfsemi siglingafélagsins eigi eftir að eflast og
blómstra.
Siglingafélagið Knörr hefur fengið aðstöðu í bráðabirgðahúsnæði í eigu
Reykjanesbæjar sem staðsett er við smábátahöfnina í Grófinni.
Fagna endurreisn Knarrar
Verkefnið „Skapandi sumarstörf“ hefur verið starfrækt síðustu sumur í
Reykjanesbæ. Verkefnið var styrkt af ríkinu vegna falls WOW og heims-
faraldurs. Sú styrkveiting er ekki til staðar lengur og er því verkefninu
lokið, að því er fram kom á síðasta fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar.
Engin „skapandi sumarstörf“
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Grindavíkurbæjar hefur óskað
eftir heimild til að hefja vinnu við að óska framkvæmdaleyfis fyrir grjót-
námu í Eldvarpahrauni. Svæðið er þegar raskað vegna grjótvinnslu m.a.
þegar sjóvarnargarðar voru settir við Grindavíkurhöfn. Á aðalskipulagi er
svæðið merkt sem E6 og gert er ráð fyrir að vinna 100 þúsund rúmmetra
grjóts. Skipulagsnefnd Grindavíkur samþykkir að heimila sviðsstjóra að
hefja vinnuna.
vinna 100.000 rúmmetra
grjóts úr Eldvarpahrauni
2 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM