Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.03.2022, Blaðsíða 15

Víkurfréttir - 23.03.2022, Blaðsíða 15
Valur Axel er sextán ára gamall ofurvenjulegur strákur í Reykjanesbæ. Hann hefur prófað allflestar þær íþróttagreinar sem hafa verið í boði; körfubolta, fótbolta, júdó og eiginlega allt nema handbolta. Það var hins vegar dansinn sem varð á endanum fyrir valinu hjá Vali en hann byrjaði að æfa dans fyrir sjö árum. „Ég hætti í flestum íþróttum af því mér fannst þær vera leiðinlegar – allt nema körfuboltinn og dansinn. Ég ákvað svo að taka dansinn framyfir körfuboltann núna í vetur. Einbeita mér að honum og náminu,“ segir Valur Axel í viðtali við Víkurfréttir. Átti erfitt uppdráttar í skóla „Jú, ég er nokkurn veginn búinn að ákveða hvað ég ætla að gera. Ég ætla að verða kennari þegar ég verð eldri. Kennari, skólastjóri, menntamálaráð­ herra eða eitthvað svoleiðis. Ég get ekki ímyndað mér að hafa skólakerfið svona áfram, það er ekki hægt að hafa það svona lengur. Ein­ hver þarf að taka að sér að breyta því,“ segir Valur en sjálfur er hann lesblindur og fékk að vita það síð­ ustu vikuna sína í tíunda bekk. Var ógreindur fram að því og fékk enga aðstoð, engan stuðning og sagður vera leslatur. Fyrir vikið upplifði Valur sig vitlausan en hann átti sem betur fer góða að í fjölskyldunni sem voru tilbúin til að liðsinna honum. Móðursystir Vals er Halla Karen Guðjónsdóttir en hann hefur búið hjá henni og Arnari Inga Tryggva­ syni, manni hennar, síðustu ár. „Upp­ haflega flutti hann til okkar af því að ég ætlaði að aðstoða hann í náminu,“ segir Halla Karen sem starfaði sem grunnskólakennari á þeim tíma. „Um leið og ég fór að lesa fyrir hann þá kom bara í ljós að hann var ekkert svona vitlaus. Ég er voðalega stolt af því að Valur skuli vilja breyta skóla­ kerfinu því þegar ég var að kenna krökkum í fimmta, sjötta og sjöunda bekk þá var hann mikið að hjálpa mér. Ég spurði hann hvort honum fyndist hitt og þetta námsefni sem ég var að útbúa vera leiðinlegt eða skemmtilegt og við komumst að því í sameiningu að námsefni þarf alls ekkert að vera leiðinlegt. Þær breytingar sem Valur vill sjá er að kennarar leggi meiri metnað í sínar kennsluaðferðir.“ Dansinn á hug hans allan Valur hefur náð einstökum árangri í aðaláhugamáli sínu, dansi, sem hann æfir af krafti í DansKompaní í Reykjanesbæ og hefur gert síðustu sjö ár. Í síðustu viku tók DansKompaní þátt í forkeppni Dance World Cup. Dansskólinn sendi 24 atriði til leiks og kom heim með 22 gull­, tvenn silfurverðlaun og fern dómaraverð­ laun en dómarar völdu einnig sín uppáhaldsatriði. Valur var með fimm atriði, eitt sólóatriði, einn dúett og þrjú hópatriði. Öll atriðið fengu gull­ verðlaun og yfir 80 stig sem er mjög gott en til þess að komast áfram í aðalkeppnina þarf að ná 70 stigum. „Fæstir voru að fara yfir 75 stig, þannig að það er mjög gott að fá 80 stig. Svo var sólóatriðið mitt næst­ stigahæsta atriðið í keppninni, fékk 89,6 stig. Atriðið mitt var um Volde­ mort [vonda kallinn í Harry Potter] og ég fékk dómaraverðlaun fyrir það, svo fékk ég líka dómaraverðlaun fyrir eitt hópatriðið sem ég tók þátt í,“ segir Valur sem fer til Spánar í sumar þar sem tíu daga aðalkeppnin mun fara fram. „Svo er bara að fara út, leggja sig fram og hafa gaman af keppninni. Ég segi kannski ekki að líf mitt snúist al­ gerlega um þetta hjá mér en dansinn og þessi keppni er ansi stór hluti af því núna.“ Halla Karen bendir á að dómara­ verðlaunin sem Valur fékk fyrir sólóatriðið sitt var veitt fyrir bestu frammistöðu allra keppenda. „Bæði stráka og stelpur, sem er svolítið mikið afrek miðað við öll tækifærin sem stelpur fá. Ég meina fyrstu árin gat hann bara æft einu sinni í viku.“ „Já, ég er bara búinn að vera að æfa svona tekknískan dans í eitt og hálft ár.“ Hvernig stóð á því að þú byrjaðir í dansi? „Ég byrjaði í dansi eins og öllu öðru sem ég hef byrjaði í. Var til í að prófa, þetta var eitthvað nýtt og það voru nokkrir strákar þarna sem ég þekkti. Við vorum örugglega orðnir tólf strákar þarna að æfa dans en síðan fór þeim að fækka – núna erum við bara þrír. Ég kynntist vini mínum þarna og við héldum bara áfram.“ Halla Karen og Valur segja að á þessum tíma hafi verið að reyna að fjölga strákum í dansi og þeim var smalað nokkrum saman í tíma. Í dansinum fann Valur fjölina sína og nú hefur hann lagt körfuboltann á hilluna til að einbeita sér að dans­ inum. En hvernig dansar eru það sem þú leggur áherslu á? „Ég geri allt nema samkvæmis­ dansa. Ég er svona í öllu en ef ég ætti að velja eitthvað eitt þá myndi ég velja það sem við köllum Jazz Showdance,“ segir Valur en hann hefur æft marga mismunandi stíla eins og ballett, contemporary, street og commercial. Halla segir að fyrst hafi strákarnir bara verið í street­dansi einu sinni í viku og þeim hafi aldrei verið fjölgað. „En þegar þeir voru búnir að vera þarna svolítið lengi var farið að setja þá í aðra heimahópa, með stelpunum sem voru að æfa djass. Þá opnuðust svo margar dyr, þá var hægt að fara í svo ótrúlega margt.“ Valur segist aðeins vera búinn að hugsa um sviðslistanám. „Það væri draumur að komast eitthvað út, til London eða LA, og læra dans þar.“ „Svo ertu líka mikill leikari,“ segir Halla Karen. „Já, ég hef voða gaman af því að leika. Ég er að leika í Grease núna með FS.“ Halla Karen skýtur inn í að hann sé búinn að leika í mörgum sýn­ ingum Leikfélagsins líka. „Var það ekki bara 2010 eða eitthvað sem þú byrjaðir að leika?,“ spyr Halla. „Jú, ég var fimm ára þegar ég lék í Jólasögu Charles Dickens. Síðan er ég búinn að leika í mörgum leik­ ritum, eiginlega öllu sem ég hef mátt leika í. Svo er ég aðeins byrjaður að læra að syngja líka. Það eru haldnar æfingabúðir á hverju sumri á Laug­ arvatni, svona sviðslistanámskeið, sem ég tek þátt í. Þar er líka kennt að syngja og leika samhliða dansinum.“ Fann fyrir fordómum í byrjun Valur segir að hann hafi fundið fyrir fordómum þegar hann byrjaði í dansinum og þeir eru ennþá til staðar. „En flestir sjá hvað þetta er erfitt, allavega þeir sem ég umgengst sjá það. Þeir eru hættir að líta á þetta sem svona „stelpulegt“. Dansinn er þrælerfið íþrótt og reynir mjög á mann líkamlega.“ „Svo voruð þið líka að fá skot á ykkur vinirnir að vera hommar,“ bætir Halla við, „og þeir sögðu bara já við því. Þá var það ekkert skemmtilegt lengur.“ „Ég fæ ennþá þennan stimpil. Ég var síðast spurður bara fyrir viku síðan,“ segir Valur. „Það er líka alveg óhætt að segja það að hann er á íþrótta­ og lýð­ heilsubraut og þar líta ekkert allir íþróttakennararnir á dansinn sem íþrótt – en drengur sem er búinn að vera bæði í körfubolta og dansi segist fá miklu meira líkamlega út úr dansi. Þegar hann var að fara að keppa í síðustu viku og vildi taka því rólega á æfingu til að hvíla sig fyrir keppnina þá fékk hann að heyra: „Keppa í dansi?,“ með fyrirlitning­ artón – eins og þetta sé eitthvað einfalt,“ segir Halla Karen. „Kannski það líti þannig út af því þetta virðist vera svo auðvelt þegar Valur gerir æfingarnar sínar.“ Valur heldur út með Team Dans­ Kompaní í júní til að keppa í aðal­ keppni Dance World Cup og mun án efa vera skólanum sínum og sjálfum sér til sóma. Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennisHÖ NN UN : V ÍK UR FR ÉT TIR Orlofshús VSFK Sumar 2022 Opnað hefur fyrir UMSÓKN-SUMAR 2022 inn á orlofssíðu VSFK vsfk.is (grænn takki merktur Orlofsvefur) eða orlof.is/vsfk Eftirtalin orlofshús félagsins verða leigð út sumarið 2022: 3 hús í Svignaskarði (veiðileyfi í neðra svæði Norðurá í boði) 1 hús í Húsafelli 64 (hundahald leyft) 2 hús í Ölfusborgum 4 hús við Syðri Brú (Grímsnesi) (hundahald leyft í húsi nr.10) 1 íbúð í raðhúsi að Núpasíðu 8h, á Akureyri Útleigutímabil er frá föstudeginum 20.maí til og með föstudagsins 19. ágúst 2022. Félagsmenn fara inn á www.orlof.is/vsfk og skrá sig inn með Íslykli eða rafrænum skilríkjum, fylla skal út Sumar Umsókn 2022 þar með allt að 4 valmöguleikum. Einnig er hægt að fara inn á vsfk.is – Orlofsvefur (grænn takki) Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 þriðjudagsins 29. mars 2022. Úthlutað verður samkvæmt punktakerfi. Orlofsstjórn VSFK Jóhann Páll Kristbjörnsson johann@vf.is Það væri draumur að komast til London eða LA og læra dans Valur var ekki hár í loftinu þegar hann byrjaði að taka þátt í starfi Leikfélags Keflavíkur. Valur með brot af verðlaunagripum sínum. Á innfelldu myndinni er hann í hlutverki sími Voldemort sem fékk dómaraverðlaun fyrir í forkeppni World Dance Cup. Halla Karen og Valur Axel er ósjaldan talin vera mæðgin – þeim er alveg sama og þau eru ekkert endilega að leiðrétta það. Valur er prófaði hinar og þessar íþróttagreinar áður en dansinn varð fyrir valinu. vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM // 15

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.