Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.08.2022, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 10.08.2022, Blaðsíða 2
 FINNDU OKKUR Á FACEBOOK DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K 845 0900 FERÐIR Á DAG ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM HREINSUM RIMLAGARDÍNUR OG MYRKVUNARGARDÍNUR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS Vilja meta hvort ráðast eigi í endurbæturnar eða byggja nýjan Myllubakkaskóla frá grunni Húsnæði Myllubakkaskóla var til umræðu á fundi bæjarráðs Reykja- nesbæjar 4. ágúst síðastliðinn. Kjartan Már Kjartansson, bæjar- stjóri, fór yfir verkefnastöðu og kostnaðarmat framkvæmda við Myllubakkaskóla. Á fundinum lagði Margrét A. Sanders, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, fram eftirfar- andi bókun Sjálfstæðisflokksins: „Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins telja mikilvægt vegna myglu í Myllubakkaskóla að fara vel yfir hvaða leið skuli fara í við endur- gerð skólans. 1. Byggja að hluta til nýtt húsnæði og endurgera að hluta til eldra húsnæðið eins og áætlað er. Nú- verandi kostnaðarmat er um 4 milljarðar 2. Byggja nýjan skóla í heild sinni sambærilegan þeim sem fyrir- liggjandi teikningar gera ráð fyrir. Sérstakt kostnaðarmat liggur ekki fyrir. Áður en ákvörðun er tekin þarf að koma fram, með óyggjandi hætti, í hvernig ástandi sá hluti skólans er sem ekki er áætlað að rífa. Auk þess þarf að liggja fyrir kostnaður nýbygg- ingar á skólanum í heild sinni sam- kvæmt fyrirliggjandi teikningum til samanburðar svo meta megi hvort ráðast eigi í endurbæturnar eða byggja nýjan skóla frá grunni.“ Undir bókunina skrifa þau Mar- grét Sanders, Guðbergur Reynisson og Helga Jóhanna Oddsdóttir. Lýsa andstöðu sinni við fyrirhuguðu breytingar á starfsemi sýslumanns í Grindavík Málefni skrifstofu sýslumannsins á Suðurnesjum í Grindavík voru tekin fyrir á síðasta fundi bæjarráðs Grindavíkur. Fyrir liggur í samráðs- gátt frumvarp til laga um sýslumann með það að markmiði að sameina öll sýslumannsembætti landsins í eitt. Bæjaryfirvöld í Grindavík gagn- rýna þá stefnu dómsmálaráðherra að leggja niður útibú sýslumanns í bænum. Gagnrýnin er óháð sam- einingu embættanna í eitt embætti til að tryggja samræmda og góða þjónustu um allt land líkt og frum- varpið leggur til. Það vekur þó furðu að samhliða sameiningu embætta eigi að skerða þjónustu í Grindavík og mótmæla bæjaryfirvöld harðlega lokun útibúsins og um leið skerðingu á þjónustu við bæjarbúa, þvert á markmið frumvarpsins. Í umsögn um frumvarpið er þess getið að samráð var haft við ákveðin sveitarfélög en óskiljanlegt er að ekki var haft samráð við Grindavík, sem er það sveitarfélag ásamt Dalvík sem eiga að missa starfsstöðvar sínar. Í dag er sýslumaður með starfs- mann í 68% starfshlutfalli í bæjar- félaginu en frá byrjun desember hefur útibúinu verið lokað og hefur það valdið miklum óþægindum fyrir íbúa Grindavíkur, segir í afgreiðslu bæjarráðs Grindavíkur á málinu. „Bæjaryfirvöld í Grindavík telja þetta vera gríðarlega mikla þjónustu- skerðingu og lýsa andstöðu sinni við þessar fyrirhuguðu breytingar en í sumar hefur ríkið ákveðið að loka bæði útbúi Póstsins og útibúi sýslu- mannsins og er staðan því orðin sú að ríkið er með nánast enga þjónustu hér í Grindavík í ört stækkandi sam- félagi,“ segir jafnframt í afgreiðslu bæjarráð Grindavíkur. Gunnar Axel Axelsson ráðinn bæjarstjóri Voga Gunnar Axel Axelsson viðskipta- og stjórnsýslufræðingur og deildar- stjóri á efnahagssviði Hagstofu Ís- lands hefur verið ráðinn bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga. Alls sóttu 40 umsækjendur um starfið og sex drógu umsóknir sínar til baka. Gunnar Axel hefur starfað hjá Hagstofu Íslands frá 2005. Hann er deildarstjóri þjóðhagsreikninga og opinberra fjármála hjá Hagstofu Íslands en starfaði áður sem sér- fræðingur í gerð hagtalna um fjármál sveitarfélaga og sérfræðingur á sviði launa- og kjararannsókna. Gunnar Axel var aðstoðarmaður velferðar- ráðherra á árunum 2012–2013. Gunnar Axel hefur víðtæka reynslu af sveitarstjórnarmálum, sat í bæjarstjórn Hafnarfjarðar- bæjar á árunum 2010-2018 og sinnti m.a. formennsku í bæjar- ráði og fjölskylduráði auk annarra nefndarstarfa. Gunnar Axel hefur setið í ýmsum stjórnum, nefndum og ráðum fyrir hið opinbera og sem kjörinn fulltrúi. Hann sat í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga um árabil, í stjórnum Strætó Bs og Rio Tinto Alcan á Íslandi og í nefnd ráðherra sveitarstjórnarmála um stöðu og framtíð sveitarstjórnar- stigsins. Gunnar Axel lauk MPA-gáðu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands árið 2014, BS-gráðu í við- skiptafræðum frá Háskólanum á Bifröst árið 2003 og stundaði nám í Evrópufræðum við Viðskiptahá- skólann í Árósum 2003–2004. Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga hlakkar til samstarfsins við Gunnar Axel en hann mun hefja störf á haustmánuðum. Lj ós m yn d af ve f S ve ita rf él ag si ns V og a Séð yfir Grindavík. VF-mynd: HIlmar Bragi TELJA AÐ AFLÖGUN VIÐ GRINDAVÍK SÉ EKKI VEGNA KVIKU Vísindaráð Almannavarna fundaði á þriðjudagsmorgun um eldgosið á Reykjanesskaga. Farið var yfir nýjustu gögn og mælingar til að meta stöðuna og framhald gossins. Er það mat vísindamanna að fram- gangur gossins er eins og við mátti búast. Gosvirknin hefur haldist nokkuð stöðug síðustu daga og er mikilvægt að undirbúa sig undir að gosið standi yfir í nokkuð langan tíma. Á gervihnattamyndum, sem sýna landbreytingar á Reykjanesskaga frá lok júlí, má sjá merki um aflögun skammt norðaustur af Grindavík (sjá svæði innan svarta kassans á myndinni með fréttinni). Aflögunin sem sést á gervihnattamyndunum er við upptök skjálftans sem varð 31. júlí og mældist M5,5. Á fundi vís- indaráðs var farið yfir önnur gögn frá svæðinu, s.s. GPS-mælingar, skjálfta- gögn og sýna þau engar vísbendingar um að kvika sé þarna á ferðinni og líklegast skýringin sé breytingar á yf- irborði sem urðu í skjálftanum fyrir um tíu dögum síðan. Engu að síður munu vísindamenn safna frekari gögnum til að staðfesta ennfrekar að svo sé. Rætt var að mikilvægt væri að auka vöktun enn frekar á þeim umbrotasvæðum sem geta haft áhrif nærri byggð með því að setja upp fleiri mælitæki til rauntímavöktunar. VF -m yn d: J PK 2 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.