Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.08.2022, Blaðsíða 15

Víkurfréttir - 10.08.2022, Blaðsíða 15
Góð þátttaka á Pure Sweat-æfingabúðum Pure Sweat-æfingabúðir hófust hjá körfuknattleiksdeild Grinda- víkur í byrjun þessarar viku en Pure Sweat-þjálfarinn James Purchin kom til landsins til þess að halda tvennar körfuboltabúðir í Grindavík nú í ágúst. Purchin til halds og trausts á námskeiðinu er Danielle Rodriguez, leikmaður og þjálfari hjá Grindavík. Rodrigues gekk til liðs við Grindavík í vor en hún lék með Stjörnunni og KR í efstu deild á Ís- landi frá 2016 til 2020. Hún hefur starfað sem þjálfari undanfarin ár og var aðstoðarþjálfari hjá San Diego síðasta vetur, þá var Ro- drigues einnig aðstoðarþjálfari hjá báðum meistaraflokkum Stjörn- unnar tímabilið 2020–2021. Æfingabúðirnar eru tvískiptar, fyrri hluti búðanna ber yfirskriftina „að skora“ en sá seinni „leikskiln- ingur“. Farið er yfir ólíka þætti leiksins með því að horfa á mynd- skeið í byrjun dags áður en þátt- takendur færa sig yfir á vellina. Búðirnar eru fyrir alla fædda 2010 og síðar og er þátttakendum skipt í hópa eftir aldri. Í samtali við Víkurfréttir sagði Daniella að þátttaka á æfingabúð- unum hafi farið langt fram úr vænt- ingum og færri komist að en vildu, því hafi verið ákveðið að halda aðrar Pure Sweat-æfingabúðir í næstu viku og er skráning hafin hjá körfuknattleiksdeild Grindavíkur. Í rafrænni útgáfu Víkurfrétta er hægt að smella á þennan tengil að fara á skráningarsíðuna. DansKompaní í hópi sterkustu listdansskóla í heimi Hóf til heiðurs keppendum á heimsmeistaramótinu í dansi var haldið á fimmtudaginn 4. ágúst síðastliðinn. Dönsurum Team DansKompaní og aðstandendum var boðið á skemmtilegt hóf í Gyllta sal Hótel Keflavíkur í tilefni glæsilegs árangurs dansaranna á mótinu. Fluttar voru ræður og öllum þátttakendum, keppendum og þjálfurum afhendir blómvendir, rósir og minjagripir fyrir árangurinn. Þá voru einnig hamborgarar, franskar og gos í boði Reykjanesbæjar fyrir viðstadda og sýnt var myndband frá ferlinu. Hafþór Barði Birgisson, íþrótta- og tómstundafulltrúi Reykjanesbæjar, hóf kvöldið með því að bjóða alla vel- komna og segja nokkur orð. „Ég get fullyrt það að enginn viðburður hefur vakið jafn mikla athygli,“ var meðal þess sem Hafþór sagði. Þegar hann hafði lokið ávarpi tók Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, forseti bæjarstjórnar, við orðinu fyrir hönd bæjarstjórnar og óskaði Team Dans- kompaní innilegra hamingjuóska. „Það var stórkostlegt að fylgjast með ykkur öllum, að sjá gleðina skína af and- litunum og fá að fylgjast með ykkur þegar þið tókuð við verðlaunapeningunum. Þetta var stórkostlegt! Við erum rosalega stolt af ykkur og hlökkum til að fylgjast með ykkur í framtíðinni. Hjartanlega til hamingju með þennan stóra árangur,“ sagði Halldóra. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri, sagði einnig nokkur orð um árangur skólans. „Við erum ákaflega stolt af ykkur. Ég er sannfærður um að þið munuð búa að þessu alla ævi. Þessum aga, þessu álagi og því sem þið hafið lagt að mörkum. Allar fórnirnar, að hafa þurft að segja nei við einhverju sem þið vilduð gera af því þið þurftuð að fara á dansæfingu. Þetta er þjálfun sem mun nýtast ykkur, trúi ég, alla ævi,“ sagði Kjartan. Mikill undir- búningur fór í keppnina og Kjartan þakkaði foreldrum og aðstandendum fyrir að leggja sitt að mörkum. „Vonandi dafnar skólinn okkar og ykkar sem allra, allra best um ókomna framtíð og til hamingju með allt Helga Ásta, for- eldrar, þjálfarar og síðast en ekki síst, nemendur,“ sagði Kjartan að lokum. Sturlaður árangur Til þess að fá keppnisrétt á heimsmeistaramótinu þurfa dansarar að ná minnst 70 stigum, af 100 mögulegum, og vera í fyrsta til fjórða sæti í forkeppninni. Yfir 20.000 dansarar frá 62 löndum víðs vegar um heiminn kepptu í forkeppninni í sínu landi en aðeins 6.000 fá þátttöku- rétt í úrslitum. Forkeppnin fyrir íslensku dansarana var haldin hér á landi í mars í Borgarleikhúsinu og komust allir dansarar og öll atriði DansKompaní áfram úr for- keppninni í úrslitakeppnina sem haldin var í San Se- bastian á Spáni. Þá vann Team DansKompaní tvö silfur- verðlaun og tuttugu og tvö gullverðlaun í forkeppninni. Helga Ásta Ólafsdóttir, eigandi DansKompaní, segir árangur skólans í keppninni hafa farið fram úr fram úr vonum. „Í úrslitakeppninni unnum við þennan heims- meistaratitil, sem er algjörlega sturlaður árangur, en það má líka nefna að níu af atriðum skólans voru í topp tíu. Við lentum með eitt atriði í tíunda sæti, eitt í áttunda, eitt í fimmta, þrjú í fjórða sæti og svo var eitt atriði sem fékk bronsverðlaun, eitt silfur og svo gullverðlauna at- riðið. Allir þrjátíu og átta dansararnir voru í einu eða fleiri atriðum af þessum níu atriðum. Þannig að allir keppendur skólans voru í topp tíu,“ segir Helga Ásta. Í mörg horn að líta Í keppninni eru einnig talin svo kölluð landsstig en þau eru gefin í flestum keppnisflokkum. Hvert land fær stig fyrir að eiga atriði sem lenda í fyrsta til sjötta sæti. Þá er gefið eitt stig fyrir sjötta sætið, tvö stig fyrir það fimmta og svo framvegis. Öll stig Íslands komu frá nemendum DansKompaní og er því óhætt að segja að skólinn sé einn sterkasti list- dansskóli landsins og er nú meðal þeirra sterkustu í heiminum. Helga Ásta segir árangur sem þennan aðeins nást með gífurlegri vinnu og sterkri liðsheild meðal allra þeirra sem koma að hópnum, keppenda, danshöfunda, kennara og foreldra og aðstandenda. „Það er í ansi mörg horn að líta þegar keppt er á heimsmeistaramóti og mikil- vægt að hafa góðan stuðning heima fyrir. Verkefnið er dýrt og það var aðdáunarvert að sjá hvað hópurinn var duglegur að safna styrkjum og fjárafla. Einnig vil ég þakka sérstaklega öllum þeim frábæru fyrirtækjum af Suðurnesjum, sem styrktu okkur, þeir styrkir hjálpuðu mikið,“ segir Helga Ásta og bætir við: „Það vakti sérstaka athygli í San Sebastian hvað aðstandendahópur Team DansKompaní var flottur. Hópurinn keypti boli sem stóð á „dans systir“ og „dans bróðir“ og meira að segja „dans amma“ og „dans afi“. Þetta sýnir svo vel hvað hópurinn er þéttur og ótrúlega flottur,“ segir Helga Ásta. Hún segir það vera forréttindi að vinna með hópi sem þessum og að það sé ólýsanlegt að ná svo góðum árangri. „Ég er ótrúlega stolt af þessum hópi og hlakka mikið til að sjá framtíðardansara á Suðurnesjum „brillera“ á þessu sviði,“ segir Helga að lokum. Úrslit leikja og fréttir af íþróttaviðburðum á Suðurnesjum birtast reglulega á vefnum vf.issport Davíð Örn Óskarsson setti saman skemmtilegt myndband frá undirbúningnum sem og keppninni sjálfri og var það sýnt á hófinu. Myndbandið má sjá hér í rafrænni útgáfu Víkurfrétta. Störf í boði hjá Reykjanesbæ Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef Reykjanesbæjar. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf. Hægt er að notast við QR kóða til að fara beint inn á vefinn Starf við liðveislu Umhverfissvið - Starfsmaður á eignaumsýslu Velferðarsvið - Deildarstjóri á Hæfingarstöð Velferðarsvið - Dagdvalir aldraðra Velferðarsvið - Stuðningsfjölskyldur Velferðarsvið - Tilsjónaraðilar í barnavernd Viltu starfa hjá Reykjanesbæ? Almenn umsókn Við óskum eftir tilnefningum Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar óskar eftir tilnefningum frá bæjarbúum fyrir fegursta garðinn 2022. þá óskar ráðið einnig eftir tilnefningum fyrirtækja og/eða einstaklinga sem hafa staðið vel að uppbyggingu húsnæðis og/eða umhverfis á árinu 2022. Vinsamlegast sendið ábendingar netfangið umhverfismal@reykjanesbaer.is fyrir 19. ágúst nk. Umhverfis- og skipulagsráð Heimsmeistari í backhold Njarðvíkingurinn Heiðrún Fjóla Pálsdóttir keppti nýlega um heimsmeist- aratitilinn í opnum flokki kvenna í backhold. Heiðrún gerði sér lítið fyrir og vann flokkinn og er því heimsmeistari kvenna 2022. „Við vorum tólf í flokknum,“ sagði heimsmeistarinn eftir sigurinn. „Þetta voru allt mjög góðar glímukonur og allar krefjandi á sinn hátt. Fyrstu glím- urnar voru minnst krefjandi en þær urðu svo meira krefjandi eftir því sem á leið.“ Heiðrún byrjaði að æfa júdó sem barn með pabba sínum í Grindavík og hefur æft með glímudeild Njarðvíkur síðustu ár. Hún hlaut titilinn glímukona ársins af Glímusambandi Íslands um síðustu áramót en hún hefur stundað glímu í um sex ár. Heiðrún átti góðu gengi að fagna á glímuvellinum á síðasta ári og tók þátt í öllum mótum Glímusambandsins á árinu og var iðulega í verðlaunasæti. Heiðrún Fjóla kyssir heimsmeistarabikarinn. Mynd af Facebook-síðu Heiðrúnar vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM // 15

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.