Víkurfréttir - 10.08.2022, Page 15
Góð þátttaka á Pure Sweat-æfingabúðum
Pure Sweat-æfingabúðir hófust
hjá körfuknattleiksdeild Grinda-
víkur í byrjun þessarar viku en
Pure Sweat-þjálfarinn James
Purchin kom til landsins til þess
að halda tvennar körfuboltabúðir
í Grindavík nú í ágúst. Purchin til
halds og trausts á námskeiðinu er
Danielle Rodriguez, leikmaður og
þjálfari hjá Grindavík.
Rodrigues gekk til liðs við
Grindavík í vor en hún lék með
Stjörnunni og KR í efstu deild á Ís-
landi frá 2016 til 2020. Hún hefur
starfað sem þjálfari undanfarin
ár og var aðstoðarþjálfari hjá San
Diego síðasta vetur, þá var Ro-
drigues einnig aðstoðarþjálfari hjá
báðum meistaraflokkum Stjörn-
unnar tímabilið 2020–2021.
Æfingabúðirnar eru tvískiptar,
fyrri hluti búðanna ber yfirskriftina
„að skora“ en sá seinni „leikskiln-
ingur“. Farið er yfir ólíka þætti
leiksins með því að horfa á mynd-
skeið í byrjun dags áður en þátt-
takendur færa sig yfir á vellina.
Búðirnar eru fyrir alla fædda 2010
og síðar og er þátttakendum skipt í
hópa eftir aldri.
Í samtali við Víkurfréttir sagði
Daniella að þátttaka á æfingabúð-
unum hafi farið langt fram úr vænt-
ingum og færri komist að en vildu,
því hafi verið ákveðið að halda
aðrar Pure Sweat-æfingabúðir í
næstu viku og er skráning hafin hjá
körfuknattleiksdeild Grindavíkur.
Í rafrænni útgáfu Víkurfrétta er
hægt að smella á þennan tengil að
fara á skráningarsíðuna.
DansKompaní í hópi sterkustu listdansskóla í heimi
Hóf til heiðurs keppendum á heimsmeistaramótinu í
dansi var haldið á fimmtudaginn 4. ágúst síðastliðinn.
Dönsurum Team DansKompaní og aðstandendum var
boðið á skemmtilegt hóf í Gyllta sal Hótel Keflavíkur í
tilefni glæsilegs árangurs dansaranna á mótinu. Fluttar
voru ræður og öllum þátttakendum, keppendum og
þjálfurum afhendir blómvendir, rósir og minjagripir
fyrir árangurinn. Þá voru einnig hamborgarar, franskar
og gos í boði Reykjanesbæjar fyrir viðstadda og sýnt
var myndband frá ferlinu.
Hafþór Barði Birgisson, íþrótta- og tómstundafulltrúi
Reykjanesbæjar, hóf kvöldið með því að bjóða alla vel-
komna og segja nokkur orð. „Ég get fullyrt það að enginn
viðburður hefur vakið jafn mikla athygli,“ var meðal þess
sem Hafþór sagði. Þegar hann hafði lokið ávarpi tók
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, forseti bæjarstjórnar, við
orðinu fyrir hönd bæjarstjórnar og óskaði Team Dans-
kompaní innilegra hamingjuóska. „Það var stórkostlegt
að fylgjast með ykkur öllum, að sjá gleðina skína af and-
litunum og fá að fylgjast með ykkur þegar þið tókuð við
verðlaunapeningunum. Þetta var stórkostlegt! Við erum
rosalega stolt af ykkur og hlökkum til að fylgjast með
ykkur í framtíðinni. Hjartanlega til hamingju með þennan
stóra árangur,“ sagði Halldóra.
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri, sagði einnig
nokkur orð um árangur skólans. „Við erum ákaflega stolt
af ykkur. Ég er sannfærður um að þið munuð búa að
þessu alla ævi. Þessum aga, þessu álagi og því sem þið
hafið lagt að mörkum. Allar fórnirnar, að hafa þurft að
segja nei við einhverju sem þið vilduð gera af því þið
þurftuð að fara á dansæfingu. Þetta er þjálfun sem mun
nýtast ykkur, trúi ég, alla ævi,“ sagði Kjartan. Mikill undir-
búningur fór í keppnina og Kjartan þakkaði foreldrum og
aðstandendum fyrir að leggja sitt að mörkum. „Vonandi
dafnar skólinn okkar og ykkar sem allra, allra best um
ókomna framtíð og til hamingju með allt Helga Ásta, for-
eldrar, þjálfarar og síðast en ekki síst, nemendur,“ sagði
Kjartan að lokum.
Sturlaður árangur
Til þess að fá keppnisrétt á heimsmeistaramótinu þurfa
dansarar að ná minnst 70 stigum, af 100 mögulegum, og
vera í fyrsta til fjórða sæti í forkeppninni. Yfir 20.000
dansarar frá 62 löndum víðs vegar um heiminn kepptu
í forkeppninni í sínu landi en aðeins 6.000 fá þátttöku-
rétt í úrslitum. Forkeppnin fyrir íslensku dansarana var
haldin hér á landi í mars í Borgarleikhúsinu og komust
allir dansarar og öll atriði DansKompaní áfram úr for-
keppninni í úrslitakeppnina sem haldin var í San Se-
bastian á Spáni. Þá vann Team DansKompaní tvö silfur-
verðlaun og tuttugu og tvö gullverðlaun í forkeppninni.
Helga Ásta Ólafsdóttir, eigandi DansKompaní, segir
árangur skólans í keppninni hafa farið fram úr fram úr
vonum. „Í úrslitakeppninni unnum við þennan heims-
meistaratitil, sem er algjörlega sturlaður árangur, en það
má líka nefna að níu af atriðum skólans voru í topp tíu.
Við lentum með eitt atriði í tíunda sæti, eitt í áttunda,
eitt í fimmta, þrjú í fjórða sæti og svo var eitt atriði sem
fékk bronsverðlaun, eitt silfur og svo gullverðlauna at-
riðið. Allir þrjátíu og átta dansararnir voru í einu eða
fleiri atriðum af þessum níu atriðum. Þannig að allir
keppendur skólans voru í topp tíu,“ segir Helga Ásta.
Í mörg horn að líta
Í keppninni eru einnig talin svo
kölluð landsstig en þau eru gefin
í flestum keppnisflokkum. Hvert
land fær stig fyrir að eiga atriði
sem lenda í fyrsta til sjötta sæti. Þá
er gefið eitt stig fyrir sjötta sætið,
tvö stig fyrir það fimmta og svo
framvegis. Öll stig Íslands komu
frá nemendum DansKompaní og
er því óhætt að segja að skólinn sé einn sterkasti list-
dansskóli landsins og er nú meðal þeirra sterkustu í
heiminum. Helga Ásta segir árangur sem þennan aðeins
nást með gífurlegri vinnu og sterkri liðsheild meðal allra
þeirra sem koma að hópnum, keppenda, danshöfunda,
kennara og foreldra og aðstandenda. „Það er í ansi mörg
horn að líta þegar keppt er á heimsmeistaramóti og mikil-
vægt að hafa góðan stuðning heima fyrir. Verkefnið er
dýrt og það var aðdáunarvert að sjá hvað hópurinn var
duglegur að safna styrkjum og fjárafla. Einnig vil ég
þakka sérstaklega öllum þeim frábæru fyrirtækjum af
Suðurnesjum, sem styrktu okkur, þeir styrkir hjálpuðu
mikið,“ segir Helga Ásta og bætir við: „Það vakti sérstaka
athygli í San Sebastian hvað aðstandendahópur Team
DansKompaní var flottur. Hópurinn keypti boli sem stóð
á „dans systir“ og „dans bróðir“ og meira að segja „dans
amma“ og „dans afi“. Þetta sýnir svo vel hvað hópurinn
er þéttur og ótrúlega flottur,“ segir Helga Ásta. Hún segir
það vera forréttindi að vinna með hópi sem þessum og
að það sé ólýsanlegt að ná svo góðum árangri. „Ég er
ótrúlega stolt af þessum hópi og hlakka mikið til að sjá
framtíðardansara á Suðurnesjum „brillera“ á þessu sviði,“
segir Helga að lokum.
Úrslit leikja og fréttir af íþróttaviðburðum á Suðurnesjum birtast reglulega á vefnum vf.issport
Davíð Örn Óskarsson setti saman skemmtilegt myndband frá
undirbúningnum sem og keppninni sjálfri og var það sýnt á
hófinu. Myndbandið má sjá hér í rafrænni útgáfu Víkurfrétta.
Störf í boði
hjá Reykjanesbæ
Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef
Reykjanesbæjar. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst
störf. Hægt er að notast við QR kóða til að fara beint inn á vefinn
Starf við liðveislu
Umhverfissvið - Starfsmaður á eignaumsýslu
Velferðarsvið - Deildarstjóri á Hæfingarstöð
Velferðarsvið - Dagdvalir aldraðra
Velferðarsvið - Stuðningsfjölskyldur
Velferðarsvið - Tilsjónaraðilar í barnavernd
Viltu starfa hjá Reykjanesbæ? Almenn umsókn
Við óskum eftir
tilnefningum
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar óskar
eftir tilnefningum frá bæjarbúum fyrir fegursta garðinn
2022. þá óskar ráðið einnig eftir tilnefningum fyrirtækja
og/eða einstaklinga sem hafa staðið vel að uppbyggingu
húsnæðis og/eða umhverfis á árinu 2022.
Vinsamlegast sendið ábendingar netfangið
umhverfismal@reykjanesbaer.is fyrir 19. ágúst nk.
Umhverfis- og skipulagsráð
Heimsmeistari í backhold
Njarðvíkingurinn Heiðrún Fjóla Pálsdóttir keppti nýlega um heimsmeist-
aratitilinn í opnum flokki kvenna í backhold. Heiðrún gerði sér lítið fyrir
og vann flokkinn og er því heimsmeistari kvenna 2022.
„Við vorum tólf í flokknum,“ sagði heimsmeistarinn eftir sigurinn. „Þetta
voru allt mjög góðar glímukonur og allar krefjandi á sinn hátt. Fyrstu glím-
urnar voru minnst krefjandi en þær urðu svo meira krefjandi eftir því sem
á leið.“
Heiðrún byrjaði að æfa júdó sem barn með pabba sínum í Grindavík og
hefur æft með glímudeild Njarðvíkur síðustu ár. Hún hlaut titilinn glímukona
ársins af Glímusambandi Íslands um síðustu áramót en hún hefur stundað
glímu í um sex ár. Heiðrún átti góðu gengi að fagna á glímuvellinum á síðasta
ári og tók þátt í öllum mótum Glímusambandsins á árinu og var iðulega í
verðlaunasæti.
Heiðrún Fjóla kyssir
heimsmeistarabikarinn.
Mynd af Facebook-síðu Heiðrúnar
vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM // 15