Víkurfréttir - 10.08.2022, Qupperneq 12
„Sem þriggja barna móðir í fullu starfi þá er sjaldan lognmolla í kringum mig en nákvæmlega þann-
ig líður mér best,“ segir Inga Lára Jónsdóttir, nýr útibússtjóri Securitas á Reykjanesi. Auk þess að
sinna nýrri stöðu sinni hjá Securitas þjálfar hún Súperform og spinning í Sporthúsinu í Reykjanesbæ.
Inga segir nýja starfið vera krefjandi
og fjölbreytt en hún er spennt að
takast á við þetta nýja verkefni. „Það
tekur alltaf tíma að komast inn í nýtt
starf en ég hef mjög góða tilfinningu
fyrir starfinu og er þakklát fyrir
hvað ég hef fengið góðar móttökur
bæði frá viðskiptavinum og starfs-
fólki,“ segir hún. Covid hafði töluverð
áhrif á Securitas á Reykjanesi, meðal
annars vegna þess að hluti starfsem-
innar fór fram á Keflavíkurflugvelli.
Inga segir allt vera að komast í eðli-
legt horf aftur hjá fyrirtækinu. „Það
eru mörg tækifæri á Reykjanesinu og
bjartir tímar framundan,“ segir hún.
Háleit markmið
Inga er með BS-gráðu í viðskipta-
fræði og MS-gráðu í forystu og
stjórnun. Þá útskrifaðist hún einnig
sem ÍAK einkaþjálfari árið 2013.
Hún segir fátt skemmtilegra en að
þjálfa og hjálpa fólki að vinna að
markmiðum sínum. „Ég er mikil fé-
lagsvera og það gefur mér gríðarlega
mikið að vinna með fólki og hjálpa
því að ná sínum markmiðum,“ segir
hún. Inga hjálpar ekki aðeins öðrum
að ná markmiðum, hún setur sér
markmið sjálf og gefur allt sem hún
á til þess að láta þau verða að veru-
leika. „Ég hef alltaf sett mér háleit
markmið, bæði í leik og starfi, og læt
mig dreyma um þau öll þangað til ég
hef siglt þeim í mark. Minn stærsti
draumur þessa dagana er að ná þeim
markmiðum sem ég hef sett mér
varðandi nýja starfið mitt sem úti-
bússtjóri. Ég ætla að gefa allt sem ég
á og hef fulla trú á að ég nái mínum
markmiðum,“ segir Inga.
Hugsar um þjálfun sem áhugamál
Inga hætti í fótbolta í kringum 2010
eftir að hafa verið í íþróttinni nær
allt sitt líf. Eftir það þurfti hún að
finna sér annan vettvang til að fá
útrás og byrjaði því í ræktinni, það
varð til þess að áhugi hennar á
þjálfun kviknaði. „Vikar, vinur minn
í Lífsstíl, kom til mín og spurði hvort
ég hefði áhuga á að kenna spinning
hjá honum og ég hélt það nú. Í fram-
haldi af því fór ég í einkaþjálfaranám
hjá Keili sem tók um eitt ár og síðan
þá hef ég verið með annan fótinn í
þessum bransa,“ segir Inga og bætir
við: „Það hefur alltaf gefið mér mikið
að fá að hjálpa öðrum í átt að betri
lífsstíl og því hef ég aldrei hugsað
þjálfunina sem mitt aðalstarf heldur
meira sem áhugamál.“
Skemmtilegast þegar
það er nóg að gera
Utan vinnu finnst Ingu skemmti-
legast að njóta samverunnar með
fjölskyldu sinni og hreyfa sig. „Ég
er mikill íþróttaálfur og er dugleg
að hreyfa mig. Ég er dugleg að
hjóla, fara í gönguferðir og spila
annað slagið fótbolta með reynslu-
boltum héðan af svæðinu. Einnig
er ég í nokkrum félögum, hópum
og stjórnum sem hittast reglulega,“
segir hún og bætir við: „Ég er „pínu“
virk og finnst alltaf skemmtilegast
þegar ég hef nóg að gera.“ Fjölskylda
og vinir Ingu skipta hana mestu máli
í lífinu, það er henni því hugleikið
að rækta þau sambönd. „Ég er mjög
næm á fólkið mitt og það er sjaldan
hægt að leyna mig einhverju, þar
spilar jafnvel forvitnin mín aðeins
inn í. Mér líður best ef ég veit fyrir
víst að fólkinu mínu líður vel og ég er
mjög dugleg að rækta samband mitt
við mína nánustu,“ segir Inga.
Átti fullkominn brúðkaupsdag
Sumarið hennar Ingu hefur verið
„yndislegt“ að eigin sögn en hún og
eiginmaður hennar, Guðni, giftu sig
þann 18. júní. „Við áttum hreint út
sagt fullkominn dag með fjölskyldum
okkar og vinum. Við skelltum okkur
síðan í „brúðkaupsferð“ með prins-
unum okkar þremur til Spánar þar
sem við nutum þess að leika okkur
saman frá morgni til kvölds,“ segir
Inga en henni dreymir einnig um að
fara í rómantíska brúðkaupsferð á
fallegan stað með eiginmanninum.
Aðspurð hvernig síðustu dagar sum-
arsins munu líta út hjá fjölskyldunni
segir hún: „Það sem eftir lifir sumars
ætlum við að ferðast innanlands og
fara nokkrar ferðir í sveitina okkar,“
segir Inga.
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma@vf.is
Bjartir tímar
framundan
Það hefur alltaf
gefið mér mikið
að fá að hjálpa öðrum
í át t að betri l ífsstíl
og því hef ég aldrei
hugsað þjálfunina sem
mit t aðalstarf heldur
meira sem áhugamál . . .
Brúðkaupsdagurinn: Mynd: Eygló Gísla
Brúðkaupsferðin með fjölskyldunni.
12 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM