Víkurfréttir - 10.08.2022, Síða 14
Ingibjörg Sigurðardóttir er 24 ára og kemur frá Grindavík. Hún var
í liði íslenska landsliðsins á Evrópumótinu í fótbolta sem haldið
var á Englandi í sumar. Víkurfréttir náðu tali af henni eftir mótið
en þá var hún búin að vera í fríi í Albaníu til að „safna kröftum
fyrir haustið.“
Aðspurð hvernig tilfinningin var
að spila á stórmóti eins og Evrópu-
mótinu segir hún: „Hún var alveg
mögnuð! Maður fann það bara um
leið og maður hitti landsliðið á Ís-
landi, þegar við vorum að byrja að
æfa þar, að þetta væri ekki bara ein-
hver undankeppni fyrir stórmót.
Þetta var stórmót en samt eitthvað
miklu stærra og meira í gangi. Maður
fann það líka þegar maður fór á hót-
elið á Englandi að þetta er mjög
stórt og mikil vinna sem er búið að
leggja í það að gera þetta að stóru
móti. Þetta var mjög gaman og góð
reynsla.“
Spilaði á móti þriðja
besta landi heims
Ingibjörg segir að á heildina litið
hafi henni fundist liðinu hafa gengið
ágætlega. „Við áttum, að mér finnst,
góðar æfingavikur fyrir mótið. Við
áttum góðan leik við Pólland og
síðan fyrstu tvo leikina á EM spilaði
ég náttúrlega ekki neitt þannig að
auðvitað hefði ég viljað spila meira
en mér fannst stelpurnar standa sig
mjög vel og við vorum eiginlega bara
óheppnar að ná ekki að klára þetta.
Mér fannst við eiga að fá alla vegana
einn sigur í þessum tveimur leikjum
en það eru náttúrlega bara góð lið á
svona stórmótum þannig það eru
bara erfiðir leikir og mikil pressa,“
segir Ingibjörg.
Það sem stendur upp úr að móti
loknu fyrir Ingibjörgu er að hún fékk
að spila í leik Íslands gegn frökkum.
„Það voru ekkert smá mikil læti í
stúkunni. Eftir að við komum út úr
klefanum fyrir upphitun þá var strax
fullt af fólki í stúkunni að hvetja
okkur áfram. Ég held að sá leikur
verði að vera mín besta minning,“
segir hún. Þá segist Ingibjörg vera
sátt við frammistöðu sína og liðsins
á mótinu. „Við stóðum okkur mjög
vel, svona miðað við að við vorum
að spila við þriðja besta landið í
heiminum,“ segir Ingibjörg og bætir
við: „Heilt yfir er ég ágætlega sátt en
auðvitað vildum við komast upp úr
riðlinum. Það situr alveg eftir smá
svekkelsi í manni.“
Fann fyrir miklum stuðning
Ingibjörg segist hafa fundið fyrir
miklum stuðning á mótinu og þá
aðallega frá fólkinu sínu. Þá segir
hún aðstandendur hennar vita að
hún hafi beðið eftir tækifæri að spila
á mótinu og því voru þeir afar stoltir
þegar hún kom inn á í leiknum gegn
frökkum. „Eiginlega öll fjölskylda
mín kom út, leigði stórt hús og
horfði á alla leikina. Það var ekkert
smá gaman að hafa fólkið sitt með
úti og geta hitt þau alla dagana. Ég
var með nóg af fólki bak við mig. Þau
voru náttúrlega mjög ánægð að sjá
mig fara inn í frakkaleiknum, þeim
fannst geggjað að geta fengið að sjá
mig spila á þessu sviði. Þau vita nátt-
úrlega að ég var búin að bíða eftir
að fá tækifæri á þessu móti þannig
þau voru bara mjög ánægð fyrir mína
hönd,“ segir Ingibjörg.
Spennt fyrir komandi tímum
Ingibjörg Sigurðardóttir spilar einnig
með fótboltaliðinu Vålerenga FC
í Noregi og segir hún stór verkefni
vera að fara í gang hjá henni með
haustinu. „Það er úrslitakeppni
að fara að byrja og síðan eru tveir
landsliðsleikir aftur í september,
tveir mjög mikilvægir leikir til að
reyna að komast á HM. Þannig það
verður nóg að gera,“ segir Ingibjörg.
Aðspurð hvort hún sé spennt fyrir
framhaldinu svarar hún játandi. „Ég
er mjög spennt, eins og ég segi það
er mikið af stórum og mikilvægum
leikjum framundan, það er alltaf
gaman að spila þá þannig ég er mjög
spennt fyrir komandi tímum.“
Stolt
Grindavíkur á stórmóti
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma@vf.is
Kadeco leitar að skrifstofustjóra í 50% starf.
Skrifstofustjóri hefur yfirumsjón með skrifstofunni okkar
og sér um að allt gangi smurt fyrir sig.
Viðkomandi þarf að hafa reynslu af bókhaldi (DK), skýrslu-
og áætlanagerð.
Dagleg verkefni snúa meðal annars að bókun reikninga,
skjalastjórnun, símsvörun, móttöku, innkaupum og ýmiss
konar stoðvinnu, svo sem samskiptum við lóðarhafa og aðra
viðskiptavini.
Við erum að leita að lífsglöðum vinnufélaga til að taka þátt
í spennandi verkefnum og hlúa að góðum starfsanda, með
starfsstöð á skrifstofunni okkar á Ásbrú.
Starfið er laust nú þegar.
Nánari upplýsingar og umsókn er að finna á alfred.is:
https://alfred.is/starf/skrifstofustjori-23
Skrifstofustjóri Kadeco
KEFLAVIK AIRPORT DEVELOPMENT COMPANY
Mynd: UEFA
sport