Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.11.2022, Síða 2

Víkurfréttir - 16.11.2022, Síða 2
 FINNDU OKKUR Á FACEBOOK DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K 845 0900 FERÐIR Á DAG ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM HREINSUM RIMLAGARDÍNUR OG MYRKVUNARGARDÍNUR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS Tillaga að breytingu á deiliskipu- lagi Garðskaga gerir m.a. ráð fyrir heilsulind með baðlóni. Tillagan er nú til auglýslingar og kynningar og verður aðgengileg á vef Suðurnesja- bæjar til 23. desember nk. Athuga- semdum skal skilað til skrifstofu Suðurnesjabæjar, hvort sem er bréflega eða með tölvupósti. Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar samþykkti á fundi sínum þann 4. maí 2022 að auglýsa og kynna til­ lögu að breytingu á deiliskipulagi Garðskaga samhliða aðalskipulags­ auglýsingu. Núverandi deiliskipu­ lagssvæði er vestast á Garðskaga og býr að nálægð við hafið, vitana tvo og byggðasafnið ásamt gamla vitavarðarhúsinu. Tillaga að deili­ skipulagi gerir ráð fyrir að svæðið sé stækkað og komið fyrir nýrri að­ stöðu sunnan Skagabrautar, þar sem m.a. verði heilsulind með baðlóni og veitingastað og möguleiki fyrir tjaldsvæði. Þessi aðstaða samnýtist svæði norðan Skagabrautar, þar sem byggingarreitur fyrir byggðasafnið er stækkaður ásamt skilgreiningu aksturs­ og gönguleiða og mögu­ leika á frekari nýtingu svæðisins til útivistar og fræðslu. Á vefsíðunni Mermaid.is má sjá tillögu að „Mermaid – Geothermal Seaweed Spa“, sem er metnaðarfullt verkefni sem felst í því að byggja upp hágæða heilsulind við fallega sand­ fjöru við Garðskaga. Heilsulind og baðlón á Garðskaga? Fyrirhuguð heilsulind og baðlón. Svona eru fyrstu drög að útliti heilsulindarinnnar, samkvæmt mermaid.is „Að mati bæjarráðs er húsnæðið óhæft til móttöku flóttafólks og því óskar bæjarráð eftir fundi með Vinnumálastofnun,“ segir í afgreiðslu bæjarráðs Grindavíkur á erindi frá Vinnumálastofnun er varðar móttöku flóttafólks að Víkurbraut 58 í Grindavík. Erindi frá Vinnumálastofnun, dags 20. október sl., var lagt fyrir bæjarráð Grindavíkur á þriðjudag í síðustu viku en með erindinu vill stofnunin upplýsa um fyrirhugaða leigu á hús­ næði fyrir alþjóðlega vernd sem og að kanna hvort sveitarfélagið myndi vilja gera þjónustusamning er snýr að félagslegri þjónustu og stuðningi við umsækjendur um alþjóðlega vernd. Í afgreiðslu bæjarráðs Grindavíkur segir að bæjarráð geri athugasemdir við það að Vinnumálastofnun leigi húsnæði í sveitarfélaginu til móttöku flóttafólks án samráðs við bæjaryfir­ völd. Ekki hefur enn komið til þessa fundar. Ólíklegt að hælisleitandi kvarti undan myglu „Eigandi húsnæðis má dvelja í myglu ef hann svo kýs en ef um leiguhús­ næði er að ræða þá þarf kvörtun að koma frá sjálfum leigjandanum. Mér finnst harla ólíklegt að hælis­ leitandi myndi gera það og svo er enn annað mál hvernig líta beri á svona skammtímabúsetu. Þetta er allt saman ansi loðið en mér þætti ótrúlegt ef ríkið ætlaði sér ekki að fara eftir þeim reglum sem það setur sjálft varðandi heilnæmi íbúðar­ húsnæðis,“ segir Magnús H. Guð­ jónsson, framkvæmdastjóri Heil­ brigðiseftirlits Suðurnesja, en eins og fram hefur komið hafa eigendur Festi (Víkurbraut 58 í Grindavík), en þar hefur hótelið verið rekið síðan 2012, átt í viðræðum við íslenska ríkið varðandi að leigja húsnæðið undir flóttafólk. Einnig kom fram í fréttinni að húsnæðinu var lokað í sumar vegna myglu og framkvæmdir standa yfir. Ekki undir eftirliti varðandi aðbúnað „Hælisleitendur á Íslandi er eini við­ kvæmi hópurinn sem ekki er undir eftirliti Heilbrigðiseftirlitsins varð­ andi aðbúnað. Heilbrigðiseftirlitið vinnur eftir reglugerð síðan 2002 og kannski má segja að hún sé orðin úreld því málefni hælisleitanda áttu varla við þá. Ríkið hlýtur að breyta þessum reglum m.v. núverandi stöðu þessara mála,“ segir Magnús. Ásmundur Þorkelsson, starfs­ maður HES, segir að bróðurpartur íbúðarhúsnæðis á Íslandi heyri ekki undir eftirlit. „Ef einhver vill búa í myglu í eigin húsnæði þá er það einkamál viðkomandi. Hins vegar ef leigjandi húsnæðis býr við myglu, þá getur hann farið fram á úttekt á húsnæðinu og ef satt reynist, þá verður eigandinn að gera úrbætur ef hann ætlar að leigja húsnæðið út til búsetu.“ Magnús segir að húsnæði hælis­ leitenda þurfi að uppfylla ákvæði heilbrigðisreglugerðar. „HES var búið að úrskurða að húsnæðið við Víkurbraut 58 sé heilsuspillandi til íbúðar. Embættið hefur ekki fengið neinar upplýsingar um að búið sé að uppfylla þær kröfur sem gerðar voru um úrbætur. Hins vegar er reglugerðin orðin úrelt eins og áður kom fram og við vitum ekki alveg hvernig við myndum bregðast við ef ríkið myndi ákveða að hýsa hælis­ leitendur í Festi.“ Kór Keflavíkurkirkju fagnar 80 ára afmæli í ár og ætlar í því tilefni að halda af- mælistónleika. Flutt verða óskalög kórsins í gegnum árin. Tónleikarnir verða laugardaginn 19. nóvember og byrja kl. 14 og er boðið til kaffisamsætis í Kirkju- lundi eftir tónleikanna. Frítt er inn á tónleikana og allir hjartanlega velkomnir. „Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt áherslu á að atvinnumálum í Reykja­ nesbæ verði gert hærra undir höfði enda fjölbreytt og traust atvinna grundvöllur velferðar íbúanna. Við fögnum því aukna vægi sem at­ vinnumál fá á 37. fundi menningar­ og atvinnuráðs og hvetjum til áfram­ haldandi áherslu á eflingu atvinnu­ starfsemi í sveitarfélaginu,“ segir í bókun sem Birgitta Rún Birgisdóttir lagði fram í nafni Sjálfstæðisflokks á síðasta fundi menningar­ og atvinnu­ ráðs Reykjanesbæjar undir liðnum atvinnumál. Undir þeim lið fór Sigurgestur Guðlaugsson, verkefnastjóri at­ vinnu­ og viðskiptaþróunar, yfir stöðu atvinnumála. Húsnæðið óhæft til móttöku flóttafólks Sigurbjörn Daði Dagbjartsson sigurbjorn@vf.is Fjölbreytt og traust atvinna grundvöllur velferðar íbúanna Óskalög Kórs Keflavíkurkirkju flutt á laugardag Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma GUÐRÚN ÁSTA ÞÓRARINSDÓTTIR Grænulaut 8, áður Langholti 7, Keflavík lést á heimili sínu föstudaginn 11. nóvember. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, þriðjudaginn 22. nóvember klukkan 13. Bragi Pálsson Kristín Bragadóttir Tryggvi Þór Bragason Áslaug B. Guðjónsdóttir Ólafur Bragi Bragason Gunnheiður Kjartansdóttir Birgir Már Bragason Halldóra G. Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn 2 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.