Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.11.2022, Page 6

Víkurfréttir - 16.11.2022, Page 6
Rétturinn Ljúengur heimilismatur í hádeginu Opið: 11-13:30 alla virka daga   Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is Ökuskóli allra landsmanna Finndu næsta námskeið inn á www.aktu.is Allir réttindaflokkar Verkleg kennsla í boði víða um land Bókleg kennsla á netinu MEIRAPRÓF Fjarkennsla Heyrn // Hlíðasmára 19 // Kópavogur // heyrn@heyrn.is // HEYRNARTÆKI // HEYRNARGREINING // RÁÐGJÖF Heyrðu umskiptin, fáðu heyrnartæki til reynslu HEYRN.IS Röstin hefur gefið vel í gegnum árin Það er að verða komið fram í miðjan nóvember og ennþá bólar ekkert á því sem kalla mætti vetur því að veðurfarið hefur verið ansi gott núna, hlýtt og fáir dagar þar sem maður hefur þurft að skafa bílrúðuna. Þetta góða haust hefur gert það að verkum að handfærabátarnir hafa náð að róa og flestir á ufsann í röstinni, þá frá Grindavík og Sand­ gerði. Er þetta frekar óvenjulegt að geta róið svona langt fram á haustið á handfærum. Veiðin hjá færabátunum er búin að vera mjög góð og verð á ufs­ anum, sem bátarnir eru flestir að eltast við, hefur verið mjög gott á fiskmörkuðum. Ef við lítum á bátana það sem af er núna í nóvember og byrjum í Grindavík. Þar er t.d. Agla ÁR með 4,6 tonn í fjórum róðrum og af því er ufsi 4,4 tonn, Særós ST 3,9 tonn í fimm róðrum, Hafdalur GK 5,5 tonn í fjórum róðrum og mest 1,7 tonn og Líf NS 896 kg í einni löndun Í Sandgerði er Guðrún GK með 5,5 tonn í fjórum róðrum, Kvika GK er með 1,3 tonn í þremur róðrum, Von GK 978 kíló í einni löndun, Geiri HU 610 kíló í einni löndun, Dímon GK 5,7 tonn í sex róðrum og mest 1,7 tonn og Arnar ÁR 7,2 tonn í fjórum róðrum og mest 2,3 tonn í róðri. Í gegnum tíðina þá hefur Röstin, sem er svæði á milli Valahnúks þar sem Reykjanesviti er og að Eldey, gefið ansi vel í gegnum árin og þá mest af ufsa. Mjög margir bátar hafa stundað færaveiðar þar í gegnum árin og kannski þeirra allra þekktustu voru Svanur á Birgir RE og Kristján, eða Stjáni eins og hann var alltaf kallaður, sem var með Skúm RE. Báðir þessir skipstjórar stunduðu veiðar með handfærum allt árið þau ár sem þeir gerðu bátana sína út – og er það þá tímabil frá um 1975 og fram að aldamótunum. Á þessum árum var eiginlega ekkert um það að útgerðarmenn stunduðu handfæraveiðar allt árið en það gerðu þessi tveir. Til að mynda árið 1982, eða fyrir 40 árum síðan, þá hófu bæði Svanur og Stjáni veiðar á bátum sínum í apríl og voru báðir á handfærum alveg fram í nóvem­ berlok. Öll árin sem þeir gerðu út þá réru þeir frá Sandgerði og árið 1982 þá má segja að þeir hafi átt ansi gott ár. Birgir RE var með 202,7 tonn í 92 róðrum og stærsti mánuðurinn hjá honum var maí en þá landaði Birgir RE alls 51,5 tonnum í fjórtán róðrum, eða 3,7 tonn í róðri. Stjáni á Skúmi RE réri yfir jafn langt tímabil og félagi hans Svanur og var með 172 tonn í 85 róðrum, eða 2,1 tonn í róðri. Stærsti mánuðurin hjá honum var líka maí en þá landaði Skúmur RE 42 tonnum í ellefu róðrum, eða 3,8 tonn í róðri. Margir eldri sjómenn, sem stunduðu sjóinn á þessum tíma, muna mjög vel eftir þeim Svani og Stjána því þeir voru iðulega á sömu slóðum og voru ekkert mikið fyrir það að hafa talstöðina í gangi. En hvar eru þessir bátar í dag? Jú, Skúmur RE endaði söguna sína árið 2002. Arney ehf. hafði keypt bátinn og kvótann árið 1999 og síðan keypti Skinney Þinganes Arney ehf. og þá eignaðist Skinney Þinganes þennan þekkta bát, Skúm RE, og þar með urðu endalok hans. Saga Birgis RE var eiginlega frekar svakaleg því 3. október árið 1987 voru þeir á leið í land og það var frekar þungt í sjóinn. Sævar Ólafsson, sá mikli snillingur, var þá skipstjóri á Reyni GK. Hann fylgdi bátnum inn í innsiglinguna en þar fékk Birgir RE mikið brot á sig og bátnum hvolfdi og áhöfn hans, tveir menn, komust upp á kjöl Birgis RE. Sævar og áhöfn hans á Reyni GK sigldi Reyni GK á grynningar til þess að ná áhöfn Birgis RE um borð í Reyni og strandaði Reynir GK tvisvar á meðan á þessu stóð. Áhöfn Birgis tókst að bjarga og var þetta mikið þrekvirki hjá Sævar og hans áhöfn á Reyni GK. Eftir þetta slys varð Birgir RE ónýtur en Svanur var nú ekkert á því að hætta útgerð því hann lét smíða fyrir sig plastbát, nokkuð stærri en gamli Birgir RE var. Sá bátur hét líka Birgir RE og gerði Svanur þann bát út til ársins 2004 – og þessi bátur er ennþá til í dag, heitir Kaldi SK 121 og er gerður út frá Sauðárkróki á net, grásleppu og færi. Svanur og Stjáni voru þekktir um allt land fyrir það hversu fast­ heldnir þeir voru á færaveiðar, því þeir héldu sig við þetta veiðarfæri svo til öll sín útgerðarár,, réru svo til iðulega á sömu miðin og alltaf frá Sandgerði. aFlaFrÉttir á SuðurneSJuM Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183­0319. Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmói 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421­0000. Ristjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893­3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, s. 898­2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421­0001, andrea@vf.is. Blaðamenn: Jóhann Páll Kristbjörnsson, Thelma Hrund Hermannsdóttir og Sigurbjörn Daði Dagbjartsson. Útlit og umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson og Hilmar Bragi Bárðarson. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar hefur samþykkt samhljóða að staðfesta að Suðurnesjabær samþykkir um- sókn Bjargs íbúðafélags hses. um stofnframlag til byggingar ellefu leiguíbúða að Báruskeri 1 í Suður- nesjabæ. Fyrir liggur útreikningur á stofnframlagi Suðurnesjabæjar. Erindi frá Húsnæðis­ og mann­ virkjastofnun um staðfestingu á stofnframlagi Suðurnesjabæjar vegna umsóknar Bjargs íbúðafélags hses. um stofnframlag var tekið fyrir á fundinum. Þar kemur fram að áætlaður stofnkostnaður er rúmar 437,3 milljónir króna, þar af er 12% stofnframlag Suðurnesjabæjar áætlað tæpar 52,5 milljónir króna.Þann 1. desember næstkomandi verður kveikt á jólaljósum í báðum byggðarkjörnum Suður- nesjabæjar. Þann 21. desember er svo áætlað að afhenda viður- kenningar fyrir jóla- og ljósahús í Suðurnesjabæ. Ferða-, safna- og menningarráð Suðurnesja- bæjar hvetur íbúa til þess að lýsa upp skammdegið með jóla- og ljósaskreytingum. Áramótabrenna og flugelda­ sýning verður í umsjón Björg­ unarsveitarinnar Ægis í Garði og fer viðburðurinn fram í Garði í ár. Minnisblöð frá sviðsstjórum skipu- lags- og umhverfissviðs, stjórn- sýslusviðs og fjölskyldusviðs varð- andi íbúðarhúsnæði við Melteig í Suðurnesjabæ og minnisblað um félagslegt leiguhúsnæði voru tekin fyrir hjá bæjarráði Suðurnesja- bæjar nýverið. Samþykkt var samhljóða að íbúðir við Melteig verði leigðar út fyrir 60 ára og eldri skv. sama fyrirkomulagi og er í Miðhúsum í Sandgerði og verði umsjón með úthlutun íbúða á höndum fjölskyldusviðs. Samþykkt var á fundi bæjar­ stjórnar að veita bæjarstjóra umboð til að vinna áfram að niðurstöðu varðandi tillögu um kaup á félagslegu leiguhúsnæði samkvæmt minnis­ blaði þar um. Alþjóðlega listahátíðin Ferskir vindar fer fram í desember 2022 og janúar 2023 í Suðurnesjabæ. Hátíðin hefur fest sig í sessi og verið haldin reglulega undanfarin ár. Fyrst í Sveitarfélaginu Garði en síðar í Suðurnesjabæ, eftir samein- ingu Garðs og Sandgerðis. Þá fékk hátíðin m.a. Eyrarrósina árið 2018. Mireya Samper fer fyrir Ferskum vindum og hún kynnti komandi hátíð fyrir Ferða­, safna­ og menn­ ingarráði Suðurnesjabæjar á síðasta fundi. Ráðið þakkaði henni fyrir góða og áhugaverða kynningu á Ferskum vindum og óskar skipu­ leggjendum hátíðarinnar góðs gengis með komandi hátíð. Blásið hefur verið til þorrablóts Suðurnesjamanna í Garði 21. janúar 2023. Þetta er fyrsta þorrablótið í Garðinum síðan 2020 en veislan féll niður á síðasta ári vegna heims- faraldurs kórónuveirunnar. Eva Ruza verður veislustýra en fram koma Ragga Gísla, Jóhanna Guðrún, Herra Hnetusmjör og fleiri. Múlakaffi sér um matinn í ár en í boði verður þorramatur, steik og vegan. Forsala á Þorrablót Suðurnesja­ manna verður 5. desember en það er knattspyrnufélagið Víðir sem stendur að þorrablótinu að þessu sinni. Bæjarráð Suðurnesjabæjar áréttar að í gildi eru rekstrarsamningar milli Suðurnesjabæjar og rekstraraðila leikskólanna í sveitarfélaginu. Ef rekstraraðili óskar eftir breytingum á þjónustu leikskóla þá leitar verktaki eftir samkomulagi við verkkaupa um breytta starfsemi á grundvelli rekstrarsamnings. Þetta kemur fram í afgreiðslu bæjarráðs en á 50. fundi bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar þann 2. nóvember var tekið fyrir minnisblaði er snýr að lokun leikskóla á milli jóla­ og nýárs og því vísað til frekari úrvinnslu í bæjarráði. SUÐURNESJABÆR Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is Íbúðir við Mel- teig leigðar til 60 ára og eldri Blásið til þorrablóts í Garði Jólaljósin í Suður- nesjabæ kveikt 1. desember Stofnframlag Suðurnesjabæjar til Bjargs 52,5 milljónir króna Ferskir vindar haldnir í Suður- nesjabæ í desember og janúar BÆJARRÁÐ ÁRÉTTAR AÐ Í GILDI ERU REKSTRARSAMNINGAR 6 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.