Víkurfréttir - 16.11.2022, Síða 8
Kæru velunnarar!
Við erum að fara af stað með sölu á sælgætiskrönsunum okkar. Kransinn
kostar 8000 kr. Allur ágóði af sölunni rennur til líknarmála á Suðurnesjum
eins og verið hefur.
Lionskonur munu fara á milli fyrirtækja eins og verið hefur og bjóða kransa
til sölu ein einnig er hægt að leggja inn pantanir í síma 895 1229 (Gunn
þórunn) og 866 3799 (Margrét).
Með ósk um góðar móttökur og þökkum stuðninginn á liðnum árum.
Lionsklúbburinn Freyja
(áður Lionessuklúbbur Keflavíkur)
Jólakransar Lionskvenna
til styrktar líknarmála
á Suðurnesjum
Virkniþing Suðurnesja var haldið í fyrsta sinn í Hljómahöll á dögunum en
þingið er í raun hátíð á vegum Velferðarnets Suðurnesja. Þar mátti kynnt
framboð á fjölbreyttri afþreyingu, virkniúrræðum og iðju fyrir fullorðið
fólk á Suðurnesjum með skemmtilegum hætti. Yfir 30 félagasamtök,
starfsstöðvar ríkis og sveitarfélaga og einkafyrirtæki tóku þátt í hátíðinni.
Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir,
verkefnastjóri fjölmenningarmála hjá
Reykjanesbæ, segir markmiðið með
þinginu hafa verið að ýta undir virkni
meðal fullorðinna á svæðinu og þar
með ýta undir vellíðan. „Það skiptir
svo miklu máli að vera virkur einhvers
staðar, hér erum við að einblína á full
Virkni og vellíðan Suðurnesjafólks
Pólskri menningu fagnað
Íbúar Reykjanesbæjar voru hvattir
til að fagna fjölbreytileikanum
saman og fá innsýn í pólska menn-
ingu með skemmtilegum hætti en
pólsk menningarhátíð var haldin
í Reykjanesbæ dagana 10. til 13.
nóvember sl.
Viðburðir voru á bókasafni Reykja-
nesbæjar, í Fjörheimum, Duus
safnahúsum, Njarðvíkurskógum
og í SBK í gömlu dráttarbrautinni í
Keflavík. Þar var m.a. haldinn mark-
aður og boðið upp á listsýningar.
Hátíðin var formlega sett á bóka-
safni Reykjanesbæjar þar sem
sendiherra Póllands á Íslandi
ávarpaði samkomuna og afhenti
einnig pólska bókagjöf til safnsins.
Meðfylgjandi myndir tók Hilmar
Bragi á hátíðinni. Fleiri myndir
verða birtar á vef Víkurfrétta, vf.is.
8 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM